SunnudagsMogginn - 15.04.2012, Blaðsíða 35
15. apríl 2012 35
„Allir mínir félagar fóru í tónlistina en
ég var með önnur áform og ákvað eftir
menntaskóla að fara í læknisfræðina.
Tónlistin fer þó ekki úr manni og ég
hef verið trúbador á fjöllum frá því ég
kom heim úr sérnámi og þeir sem
helsta hafa hlustað á mig eru þeir sem
fara með mér í hestaferðir,“ segir
Ragnar sem einnig var meðlimur í
hljómsveitinni Taktleysu en hana skip-
uðu aðallega hjartalæknar. Að hans
sögn er tónlistin það athvarf sem hann
notar til að hverfa frá amstri dagsins.
„Tónlistin losar um ákveðna streitu
sem fylgir þessu starfi. Það er gott að
eiga þetta athvarf til að hverfa frá
streitunni sem getur fylgt læknastarf-
inu. Fyrir utan það að hafi menn gam-
an af tónlist er erfitt að hlaupa frá
henni.“
Ekki bara vögguvísur frá barnalæknum
Einn þekktasti barnalæknir landsins er
Michael Clausen en hann hefur alltaf
verið mikill tónlistarmaður líkt og
bróðir hans heitinn, Andri Örn Clau-
sen, leikari og síðar yfirsálfræðingur
Landspítalans. Þeir bræður spiluðu
saman í ýmsum hljómsveitum, m.a.
Basil fursta sem þótti efnileg á sínum
tíma. Michael sinnir enn tónlistinni þó
hann spili ekki lengur með hljóm-
sveitum líkt og hann gerði á yngri ár-
um. Að hans sögn er tjáning mjög
sterkur og ríkur þáttur í starfi lækna.
„Þegar fólk upplifir að einhver er góð-
ur læknir er það ekki vegna þess að
hann hefur staðið sig vel á prófum
heldur vegna þess að hann er að sinna
þínum málum mjög vel og kemur fram
við þig með hlýju og skilning og þess
vega held ég að læknar upplifi tónlist-
ina sem tæki til að tjá sínar tilfinningar
utan vinnu og hún hjálpi þeim að tjá
sig í vinnunni.“ Þá bendir Michael á að
tónlistin sé góð leið til að fá útrás fyrir
þá erfiðleika sem lagðir eru á herðar
lækna alla daga.
Kristín Leifsdóttir sem einnig er
barnalæknir er hörku söngkona og
söng lengi í hljómsveitinni Bambínós
með læknunum Þórólfi Guðnasyni og
Viðari Einarssyni. Hún hefur mikinn
áhuga á blús og segir tónlistina vera
svipaða og það sem hún gerir í starfi
sínu. „Ég er nýburalæknir og þarf oft
að hlaupa til og bjarga lífi barna og þá
þarftu að vera til staðar í núinu og
vinna vel með þeim sem eru í kringum
og gera rétt. Þetta er svipað og með
djassinn þar sem þú þarft að spinna vel
með hljóðfærunum og vera til staðar í
stundinni.“
Læknisfræðin er „tón“list
Óhjákvæmilega velta margir fyrir sér
hvers vegna læknar sækja í tónlistina
og af svörum margra þeirra má draga
þá ályktun að þeir noti hana til að
slaka á og hvíla sig, athvarf frá amstri
dagsins eða hreinlega spila til að
gleyma. Þórður Þorkelsson, læknir og
fyrrverandi meðlimur hljómsveit-
arinnar Bambínós, spyr hins vegar
hvort læknar sæki í tónlist eða tónlist-
armenn í læknisfræði. Þeirri spurningu
verður ekki svarað svo auðveldlega en
ljóst er að fjöldi lækna spilar og gefur
út tónlist ásamt því að sinna erfiðu
starfi á spítölum og læknastofum
landsins. Þeir marka því spor sín víða í
íslensku samfélagi og má þá helst
nefna lækna á borð við Sigvalda Kalda-
lóns sem samdi lagið við Nóttin var sú
ágæt ein og Tómas Á. Jónasson en
hann er einn stofnanda Kammermús-
íkklúbbsins. Lag Stefáns Eggertssonar,
háls-, nef- og eyrnalæknis, Dimmar
rósir, er mikið sungið í söngvakeppn-
um eins og söngkeppni framhaldsskóla
og þá er Sigurður Albertsson, skurð-
læknir á Akureyri, hörku textahöf-
undur. Grétar Sigurbergsson, geðlækn-
ir, hefur átt mörg þekkt lög og oft
tekið þátt í undankeppnum Evró-
visjónkeppninnar hér heima. Þá er
Gunnar Herbertsson, kvensjúkdóma-
læknir mikill tónlistarmaður auk
hjónanna Írisar Sveinsdóttur læknis í
Bolungarvík og Lýðs Árnasonar læknis
á Flateyri og læknahjónanna Guðlaugar
Þórsdóttur og Ingólfs Kristjánssonar
sem voru með hljómsveitina Hljóm-
sveit Guðlaugar.
Margir íslenskir læknar hafa markað spor í tónlistarsöguna hér á landi frá því Sigvaldi
Kaldalóns samdi sín frægu lög í Ármúla við Ísafjarðardjúp og í Grindvarvík.
Morgunblaðið/Kristinn
Michael Clausen barnalæknir lék lengi með hljómsveitinni Ba-
sil Furst og fæst enn við tónlistina í dag fyrir vini og kunningja.
Morgunblaðið/Kristinn
’
Tónlistin
kom á
undan
læknisfræðinni
og ég byrjaði
ungur að spila.
Þegar ég fór að
hafa áhuga á
læknisfræðinni
ætlaði ég að
hætta að spila
en þá varð Óm-
ar Ragnarsson
á vegi mínum“
Haukur Heiðar Hauksson
Helgi Júlíus Óskarsson
Haukur Heiðar Ingólfsson
Hlynur Þorsteinsson
Páll Torfi Önundarson
Ragnar Danielsen
Lýður Árnason
Íris Sveinsdóttir
Michael Clausen
Þórólfur Guðnason
Viðar Einarsson
Þórður Þorkelsson
Guðlaug Þórsdóttir
Ingólfur Kristjánsson
Kjartan Hrafn Loftsson
Þórdís Kjartansdóttir
Grétar Sigurbergsson
Tómas Á. Jónasson
Kristín Leifsdóttir
Stefán Eggertsson,
Reynir Tómas Geirsson
Gunnar Herbertsson
Sigurður Albertsson
Heimir Sindrason
Hlynur Þorsteinsson
Nokkrir tónelskir læknar