SunnudagsMogginn - 15.04.2012, Page 38
38 15. apríl 2012
Tíðindum þótti sæta sumarið 1987 þegar Jón Kristinsson, semstarfað hafði sem forstöðumaður Hlíðar, dvalarheimilis aldr-aðra á Akureyri, kom á reiðhjóli að norðan. Ferðin var farin íþeim tilgangi að safna áheitafé til frekari uppbyggingar dval-
arheimilisins, enda þykir bæði menningarauki og sjálfsagt velferð-
armál að í bæjum landsins séu starfrækt vel búin heimili fyrir gamla
fólkið.
En Jón afrekaði fleira. Á sömu dögum og Jón kom á hjólinu sínu í
bæinn komust fjölmiðlar á snoðir um að hann gerði sig líklegan til
hólmgöngu og hygðist hjóla í réttarkerfi landsmanna. Þannig vildi til
að nokkru fyrr hafði lögreglan stöðvað Jón fyrir umferðarlagabrot, það
er að hann hefði ekið umfram lögboðinn hámarkshraða og ekki virt
stöðvunarskyldu á gatnamótum Byggðavegar og Þingvallastrætis á
Akureyri.
Á almennan mælikvarða var mál þetta ekki stórt í brotinu og hefði
undir öllum venjulegum kringumstæðum verið lokið með til dæmisJón Kristinsson kemur í bæinn sumarið 1987 á hjólinu. Á þeim tíma voru mál hans farin að skekja kerfið.
Morgunblaðið/KGA
Myndasafnið Júlí 1987
Akureyringur
hjólar í kerfið
Draumur aðdáenda Guns N’ Roses umað sjá gullaldarlið sveitarinnar aftursaman á sviði fauk út í veður og vind ívikunni þegar söngvarinn, W. Axl
Rose, staðfesti að hann myndi ekki taka þátt í
athöfninni vegna innlimunar þessa goðsagna-
kennda málmbands í Frægðargarð rokksins í
Cleveland í Bandaríkjunum um helgina. Ekki
nóg með það, Rose hafnar því alfarið að vera
limaður inn í Frægðargarðinn og biður
menn þess lengstra orða að gera það ekki að
honum fjarstöddum. Þetta kemur fram í
ítarlegu opnu bréfi sem söngvarinn stílar á
Frægðargarð rokksins, aðdáendur Guns
N’ Roses og aðra sem láta málið sig varða.
Í bréfinu kveðst Rose að vandlega athug-
uðu máli hafa komist að þeirri niðurstöðu að
þetta sé öllum fyrir bestu. Endurfundir
gamla gengisins yrðu í besta falli vandræða-
legir en sem kunnugt er slitnaði upp úr sam-
starfi þess með braki og brestum um miðjan tí-
unda áratuginn. Einkum hefur verið fátt með
þeim Rose og gítarleikaranum Slash sem hafa
ekki talast við í áraraðir. „Hann hatar mig eins
og pestina,“ tjáði sá síðarnefndi hinu virta rokk-
tímariti Rolling Stone á dögunum. „Þar kemur
margt til; ég veit ekki nákvæmlega hvað. Það eru
engin samskipti okkar í milli.“
Í sama viðtali staðfesti Slash að fyrir sitt leyti
væri hann hlynntur endurfundunum.
Nefnir Slash aldrei á nafn
Rose, sem starfrækt hefur Guns N’ Roses fram á
þennan dag, nefnir Slash aldrei á nafn í bréfinu
en rifjar upp að hann hafi í seinni tíð fengið Duff
McKagan bassaleikara og Izzy Stradlin gít-
arleikara sem gesti á svið með sér. Það hafi
verið fínt, raunar alveg yfirdrifið nóg. Þá
kemur fram að Rose hafi boðið trymblinum
Steven Adler í samkvæmi eftir tónleika Guns
N’ Roses 2006 og hann þakkað fyrir sig með
því að breiða út lygar um endurkomu sveit-
Söngspíran sérlundaða W. Axl Rose
verður fjarri góðu gamni þegar málm-
bandið vinsæla Guns N’ Roses,
verður limað inn í Frægðargarð
rokksins um helgina.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Frægð og furður
Reuters
W. Axl Rose þykir
með fremstu söngv-
urum rokksögunnar.
Talað
undir Rose
Rose á sviði með Guns N’
Roses í Brasilíu á síðasta ári.
AFP