SunnudagsMogginn - 15.04.2012, Side 41
15. apríl 2012 41
LÁRÉTT
1. Alltaf fálki og kringdur. (7)
4. Hopp þunglamalegs fugls endar í dýfu. (10)
8. Stjórna frjálsir og úrræðalitlir. (10)
10. Dýrka ama og koma í annarlegt ástand. (7)
11. Hvar einn sést með SS við vont veður. (10)
12. Fugl tekur draumana enn úr landamæravirkinu.
(7)
14. Hugtak sem málfræðikennarar nota til að þyngja
nám? (8)
17. Katrín illmenni snýr aftur við fögnuð. (7)
19. Selur bletti (5)
20. Öfugugginn er óhrjálegur. (7)
21. Sé þó nokkurn poka þvert á móti. (4,4)
23. Súpuskál frá íþróttafélagi lendir hjá konu. (8)
26. Lifandi svamlið yfir fen. (10)
27. Svínska sést einhvern veginn í pæjunni (7)
29. Afsökunarbeiðni byggir að endingu á natni. (4)
32. Sjá Veigar heilsa drykkjum. (10)
34. Ruglaður lasti tvo. (8)
35. Að næturgagni getur naðran orðið. (10)
36. Sögnin segir að þið drepið. (7)
LÓÐRÉTT
1. Óttasleginn eins og sá sem er óeðlilega þrifinn.
(11)
2. Virk og aðall fá högg af taug. (9)
3. Seinlærð kemur aftur af fikti. (5)
5. Taki að sér hlutverk Veru í því sem er til. (9)
6. Ekkja hjá Tryggingarstofnun nær að draga að. (7)
7. Fleygaði skástar án höggs og fékk út ófimastar.
(12)
9. Hvers litla götuefni birtist hér? (7)
13. Heilagur staður vatna. (7)
15. Skortur á ásökunum veldur trassaskap. (9)
16. Kembdi í burtu og þjónustaði. (9)
18. Hald sem hundurinn fær út úr herkænsku. (8)
22. Gæðajörð blandast fimm kílóum í skáldskap. (10)
23. Erfiður sjúkdómur úr eldsneyti hrjáir dýr. (9)
24. Sá sem gengur í gegnum létt slit á hjónabandi er
einfaldur. (10)
25. Lofti of mikið í stormi. (7)
28. Depill á mörkum frelsisteikna. (6)
30. Gísli snýr sig og tapar örlitlu við fótamein. (5)
31. Íþróttafélag nær að ýta og krafsa. (5)
33. Svæði í hlandforinni. (4)
Verðlaun eru veitt fyrir rétta lausn
krossgátunnar. Senda skal þátt-
tökuseðilinn í umslagi merktu:
Krossgáta Morgunblaðsins, Há-
degismóum 2, 110 Reykjavík.
Frestur til að skila úrlausn kross-
gátu 15. apríl rennur út á hádegi
20. apríl. Nafn vinningshafans
birtist í Sunnudagsmogganum
22. apríl. Heppinn þátttakandi hlýtur bók í vinning.
Vinningshafi krossgátunnar 15. apríl er Pálmar
Kristinsson, Sólheimum 14, Reykjavík. Hann hlýtur
að launum bókina Veiðimennirnir eftir Jussi Adler
Olsen. Forlagið gefur út.
Krossgátuverðlaun
Hannes Hlífar Stefánsson er sig-
urstranglegastur allra keppenda
á Skákþingi Íslands sem hófst í
Stúkunni á Kópavogsvellinum á
föstudaginn. Hannes hefur unnið
titilinn ellefu sinnum. Mótið nær
styrkleikaflokki sjö, sem gefur
möguleika á titiláföngum. Næstir
á eftir Hannesi að stigum eru þeir
Henrik Danielssen, Stefán Krist-
jánsson og Bragi Þorfinnsson.
Með keppendur í starthol-
unum er ekki úr vegi að líta um
öxl og minnast þess að Friðrik
Ólafsson á „demants-afmæli“ á
vettvangi Íslandsmóta. Um
páskana 1952 varð Friðrik Ólafs-
son jafn Lárusi Johnsen á vel
skipuðu Íslandsþingi. Móts-
stjórnin ákvað að þeir skyldu
tefla fjögurra skáka einvígi. Lár-
us, sem hafði unnið Íslands-
þingið 1951, taldi sig hafa varið
titilinn með því að ná efsta sæt-
inu með Friðriki. Sú afstaða átti
sér þó ekki stoð í reglum. Eftir
nokkurt stapp hófst fjögurra
skáka einvígi þeirra og varð
jafnt, 2:2. Þá var bætt við tveim-
ur skákum en mánaðarhlé gert á
einvíginu. Þegar fimmta skákin
átti að hefjast á veitingastaðnum
Röðli var Lárus hvergi sjáan-
legur. Stjórn SÍ með Baldur Möll-
er í broddi fylkingar stefndi
skónum heim til Lárusar á
Gunnarsbraut. Ekki opnaði Lárus
dyr sínar fyrir komumönnum,
en hlýddi á fortölur þeirra út um
glugga á húsi sínu. Taldi sig enn
hafa varið titilinn. Eftir mikið
japl, jaml og fuður dróst Johnsen
á að halda einvíginu áfram.
Skákinni lauk með jafntefli en þá
sjöttu vann Friðrik og einvígið
3½:2½. Við mótsslit steig Lárus á
pall og mælti hin fleygu orð:
„Það stöðvar enginn Frikkann úr
þessu.“
Auk hæfileika sinna virtist
Friðrik á þessum árum leggja sig
meira eftir tíðindum og við-
ureignum fremstu meistara en
keppinautar hans hér á landi. Í
annarri skák einvígisins var tafl-
mennska Lárusar stefnulaus
framan af og Friðrik byggði upp
vænlega sóknarstöðu. Lárus var
afar útsjónarsamur en missti þó
af skemmtilegri leið í miðtaflinu
og fékk ekki ráðið við sókn Frið-
riks:
Friðrik Ólafsson – Lárus John-
sen
Sikileyjarvörn
1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d4 cxd4 4.
Rxd4 Rf 5. Rc3 d6 6. Be2 a6 7.
0-0 Be7 8. f4 Dc7 9. Kh1 0-0 10.
De1 Rc6 11. Be3 Bd7 12. Hd1 b5 13.
a3 Kh8 14. Dg3 Hac8 15. Bd3 h6?
Óþarfa veiking. Fram að þessu
hafði Lárus fetað algengar slóðir
en algengast er að leika 15. … e5.
16. Rf3 16. … Ra5 17. e5 dxe5
18. fxe5 Rg8 19. Re2
Þungaflutningar hvíts eru allir
yfir á kóngsvænginn.
Bc6 20. Rf4 Bxf3 21. Hxf3 Hcd8
Beint gegn hótuninni 22. Rg6+
fxg6 23. Dxg6 sem nú strandar á
23. … Hxd3! o.s.frv.
22. He1 Rc6 23. Bc1 g5!?
Hraustlega leikið þar sem
ýmsar glufur myndast í kóngs-
stöðunni en leikurinn gefur ýmis
gagnfæri.
24. Rh5 Hd4 25. Df2 Bd8 26.
Rf6
26. … Rxf6?
- sjá stöðumynd -
Lárus sá að við 26. … Rxe5 átti
hvítur leikinn 27. Re8! Kannski
var þetta samt best vegna 27. …
Dc5!? t.d. 28. b4 Dd5 29. Bb2 Bb6
og svartur virðist geta varist.
27. exf6 Hh4 28. g3 Hd4 29. c3
Hd7 30. Bb1! Hg8 31. h4!
„Sendiboði eyðilegging-
arinnar“
31. … Re5 32. hxg5 Rg4
Eftir 32. … Rxf3 33. Dxf3 og –
Dh5 er svartur varnarlaus.
33. Dg2
32. Dc2 Hg6 34. Hxe6! kom
einnig til greina.
33. … Hd5 34. Dh3 Hdxg5 35.
Bxg5 Hxg5 36. He4 Dc6 37. Kg2
Dd5 38. Hxg4 Hh5 39. Hh4
– og Lárus gafst upp.
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
„Það stöðvar enginn Frikkann“
Skák
Nafn
Heimilisfang
Póstfang
Krossgáta