Morgunblaðið - 12.05.2012, Blaðsíða 1
L A U G A R D A G U R 1 2. M A Í 2 0 1 2
Stofnað 1913 111. tölublað 100. árgangur
tvær nýjar bragðtegundir!
NÝ
BRAGÐTEGUND- SÍTRÓNA OG
KARRÍ
NÝ
BRAGÐTEGUND- BÉARNAISE
SÆTIR KOSSAR
Á GAY PRIDE
Í KÖLN
MEÐ HK-RAUTT
BLÓÐ
Í ÆÐUM
BARNAHÁTÍÐ
HALDIN Í
REYKJANESBÆ
SUNNUDAGSMOGGINN SÖGUR OG ÆVINTÝRI 10VILLTA, TRYLLTA ÁSA 50
Myllusetur, útgáfufélag Við-
skiptablaðsins og Fiskifrétta, hefur
kvartað til Samkeppniseftirlitsins
vegna meintra samkeppnislaga-
brota 365 miðla sem einkum eru
sögð tengjast útgáfu Fréttablaðsins
og auglýsingasölu.
Ari Edwald, forstjóri 365, segir
ekki mikinn veig í kvörtuninni en
hann telur að Viðskiptablaðið og
Fréttablaðið séu ekki á sama mark-
aði. Pétur Árni Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Mylluseturs, segir
blöðin vera keppinauta. „Jafnvel
þótt Viðskiptablaðið væri ekki á
sama markaði og Fréttablaðið væri
um brot að ræða, til að mynda gegn
Morgunblaðinu, DV og Fréttatím-
anum.“ skulih@mbl.is »2
Myllusetur kvartar
undan 365 miðlum
Færri störf í boði
» Vinnumálastofnun telst til að
14 laus störf hafi verið á Suð-
urnesjum í mars, eða þremur
færri en í mars í fyrra.
» Á sama tímabili hefur lausum
störfum á höfuðborgarsvæðinu
fjölgað úr 128 í 150 en alls voru
230 laus störf á landinu í mars.
Björn Jóhann Björnsson
Baldur Arnarson
Í nóvember 2010 kynntu forystu-
menn ríkisstjórnarinnar verkefna-
lista á blaðamannafundi í Reykja-
nesbæ um aðgerðir til að örva
atvinnulíf á Suðurnesjum. Skapa átti
fjölda starfa og sagði Jóhanna Sig-
urðardóttir forsætisráðherra að taka
þyrfti atvinnumálin föstum tökum.
Nú, átján mánuðum síðar, er at-
vinnuleysi á Suðurnesjum 12,2%.
Árni Sigfússon, bæjarstjóri
Reykjanesbæjar, segir miklu meira
þurfa að koma til en þau smáverk-
efni sem þó hafi ræst úr.
Þáðu „brauðmolana“
„Við ákváðum að þiggja brauðmol-
ana sem okkur voru réttir … Við
vonuðumst eftir góðu samstarfi um
alvörumálin sem ekki hafði gengið að
fá í gegn ... Virkjanaleyfi, sem voru
forsenda fyrir því að unnt væri að
semja um orku, voru tafin verulega,“
segir Árni sem telur umræðu stjórn-
valda um Suðurnes, einkum vinstri
manna, hafa aukið á doða og vonleysi
íbúa. „Umræðan gefur til kynna að
þar búi menntunarlítið og uppburð-
arlítið fólk með ónothæfar sveitar-
stjórnir, sem ekkert geri í atvinnu-
málum nema að hugsa um álver.“
Eins og komið hefur fram hefur
eftirspurn eftir matargjöfum á Suð-
urnesjum aukist. Guðbjartur Hann-
esson velferðarráðherra boðar frek-
ari aðgerðir til handa tekjulágum.
Störfin sem ekki urðu til
Lítið varð úr atvinnuátaki stjórnvalda á Suðurnesjum Færri laus störf í mars
en í mars í fyrra Bæjarstjóri Reykjanesbæjar segir „alvörumálin“ enn í biðstöðu
MBágstaddir »18
Brauðmolar »20-21
Ljósmynd/Halla Steinólfsdóttir
Fé Guðmundur bóndi sækir féð út í
Akureyjar. Því er vel í skinn komið.
Verkefni sem ábúendur í Ytri-
Fagradal á Skarðsströnd hafa verið
að þróa undanfarin ár og hverfist um
að beita lömbum á hvönn hefur
gengið vel og eftirspurn aukist ár frá
ári. Bragðið þykir nokkuð frábrugð-
ið venjulegu lambakjöti og vel til
þess fallið að skapa sérstöðu, meðal
annars með útflutning í huga, að
dómi Sverris Þórs Halldórssonar
matreiðslumeistara, sem fyrstur
matreiddi hvannarlambið. Mælir
hann hiklaust með kjötinu.
Bændurnir í Ytri-Fagradal, Halla
Steinólfsdóttir og Guðmundur K.
Gíslason, hafa fram að þessu beitt
fénu á hvönn í Akureyjum á Breiða-
firði, þangað sem það er ferjað með
gúmmíbát, en nú styttist í að akur í
landi verði tilbúinn. Það þýðir að
unnt verður að stækka beitarhópinn
til muna en aðeins hafa verið um
þrjátíu lömb í eyjunum.
Sunnudagsmogginn stakk við
stafni í Ytri-Fagradal í vikunni og
getur að líta afraksturinn í blaðinu
um helgina. Auk sauðfjárbúskapar
setja bílar og tæki sterkan svip á
bæinn en Guðmundur bóndi er með
ólæknandi bíladellu.
Féð kryddað að innan
Hvannarlambið frá Ytri-Fagradal fær góð meðmæli
Aðrennslisgöng Búðarhálsvirkjunar eru nú kom-
in hálfa leið, þau eiga að vera um fjögurra kíló-
metra löng og er borað beggja vegna við Búðar-
hálsinn. Mikið vatn er í berginu vestan megin og
þarf að styrkja það og sprautusteypa. Í gegnum
göngin kemur vatn í virkjunina úr Sporðöldu-
lóni, austan Búðarháls, og í sveifluþró sem veitir
vatninu inn í stöðvarhúsið þar sem það myndar
rafmagn og rennur svo út í Sultartangalón. »22
Borað á fullu báðum megin frá undir Búðarháls
Morgunblaðið/RAX
Kostnaður við
breytingar á
húsnæði vegna
breytingar á
stjórnarráðinu
gæti orðið 400
milljónir, jafn-
vel slagað upp í
hálfan milljarð.
Kostnaður við
að breyta hús-
næði vegna
stofnunar inn-
anríkis- og velferðarráðuneyta
reyndist 243 milljónir, liðlega 80
milljónum meiri en áætlað var.
Nú er áætlað að kostnaður við
sameiningu ráðuneyta sem Al-
þingi heimilaði í gær, meðal ann-
ars nýtt atvinnuvegaráðuneyti,
verði á bilinu 125 til 225 milljónir
kr. »6
Sameining kostar
400-500 milljónir
Jóhanna
Sigurðardóttir
Átta erlend fyrirtæki á sviði net-
þjónustu greiddu á fyrstu tveim
mánuðum ársins nær 5,5 milljónir
króna í virðisaukaskatt af rafbók-
um og öðru efni sem Íslendingar
keyptu og hlóðu niður.
Fulltrúi ríkisskattstjóra segir
stærstu fyrirtækin í greininni vilja
fara að lögum og hafa „allt sitt uppi
á borðinu“. »6
Greiða skatt af
niðurhlöðnu efni