Morgunblaðið - 12.05.2012, Blaðsíða 22
BAKSVIÐ
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Veturinn var starfsmönnum á virkjunarsvæð-
inu við Búðarháls erfiður. Tveggja stafa frost-
tölur lengi og allt á kafi í snjó. Þrátt fyrir það
urðu litlar tafir á verkinu en veðráttan hjálpaði
ekki til og vinnan varð meiri fyrir vikið.
Gísli Kristófersson, yfirverkstjóri hjá Ístaki,
aðalverktaka Landsvirkjunar á svæðinu, segir
verkið að stærstum hluta hafa gengið sam-
kvæmt áætlun. „Það var byrjað heldur seinna
á þessu verki en til stóð og við erum að ná upp
þeim áætlunum þrátt fyrir að hafa þurft að
vinna þetta um veturinn, jafn erfiður og hann
var,“ segir Gísli.
Núna eru 230 starfsmenn á staðnum, í öllum
verkþáttum; steypu, jarðvinnu og gangagerð.
Að sögn Gísla voru þeir rétt undir 200 í vetur
en þeim er að fjölga og verða um 300 starfs-
menn á svæðinu í sumar. En þá á líka að spýta
í lófana. „Stærstu áfangarnir í þessu klárast í
sumar, fyrir utan gangagerðina. Fyrir næsta
vetur verður uppsteypunni að stærstum hluta
lokið og stíflugerðin verður nánast búin.
Haustið 2013 á þessu að vera lokið og virkjunin
að komast í gagnið,“ segir Gísli. Þótt mann-
virkin í kringum virkjunina virðist gríðarleg
verður Búðarhálsvirkjun ekki stór virkjun
miðað við aðrar virkjanir Landsvirkjunar.
Áætlað afl virkjunarinnar er um 95 MW og
orkugeta allt að 585 GWst á ári.
Vatnið bunar úr berginu
Það var mikið um að vera á framkvæmda-
svæði Búðarhálsvirkjunar þegar blaðamaður
og ljósmyndari skoðuðu það í vikunni. Í vélasal
stöðvarhússins var verið að járnbinda síðari
áfangann í kringum hverflana tvo sem munu
snúa vatninu í rafmagn. Vélasalur stöðv-
arhússins á að vera uppsteyptur nú í maí og 26.
júní á Ístak að afhenda það tilbúið til vélanið-
ursetningar. Vatnið sem rennur í gegnum
stöðvarhúsið fer í Sultartangalón. Fyrir aftan
húsið er sveifluþró sem veitir vatninu inn í það.
Vatnið í sveifluþróna kemur í gegnum fjögurra
kílómetra göng sem fara í gegnum Búðarháls.
Þaðan kemur það úr Sporðöldulóni sem verður
myndað fyrir austan Búðarháls með tveimur
stíflum.
Nú er unnið við gerð aðrennslisganganna
sem munu leiða vatnið úr Sporðöldulóni í
stöðvarhúsið. Þau eru komin um hálfa leið á
efri palli og er borað beggja vegna við hálsinn.
Göng Það er ekki fyrir hvern sem er að vinna við gangagerð. Aðfallsgöng virkjunarinnar verða um 4 km löng og eru nú komnir um 2 km. Þessi virtist kunna vel við sig í rakanum og dimmunni.
Klára stærstu áfangana í sumar
Framkvæmdir við Búðarhálsvirkjun eru á áætlun þrátt fyrir erfiðan vetur Um þrjú hundruð
starfsmenn verða á svæðinu í sumar Aðrennslisgöngin gegnum Búðarháls eru komin hálfa leið
Borað er beggja vegna hálsins Tungnaá stífluð um helgina og rennslinu beint yfir yfirfallið
Búðarhálsvirkjun Gísli Kristófersson er yfirverkstjóri hjá Ístaki, aðalverktaka Landsvirkjunar.
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2012