Morgunblaðið - 12.05.2012, Blaðsíða 27
FRÉTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2012
Jose Manuel Barroso, forseti fram-
kvæmdastjórnar Evrópusambands-
ins, sagði í gær að Grikkland þyrfti
að segja skilið við evruna ef landið
virti ekki samning sem gerður var
við fráfarandi stjórn landsins um
skilmála neyðarláns til að hindra
greiðsluþrot gríska ríkisins.
„Ég ber mikla virðingu fyrir
grísku lýðræði og gríska þinginu en
ég ber líka virðingu fyrir þjóðþing-
um hinna evruríkjanna sextán,“
sagði Barroso í sjónvarpsviðtali á
Ítalíu.
Pattstaða var enn í stjórnar-
myndunarviðræðum í Aþenu í gær.
Leiðtogi jafnaðarmannaflokksins
PASOK, Evangelos Venizelos,
reyndi að mynda nýja samsteypu-
stjórn en fregnir hermdu að líkurnar
á að honum tækist það væru mjög
litlar. Venizelos er þriðji flokksleið-
toginn sem fengið hefur umboð til að
mynda nýja ríkisstjórn.
Talið var í gærmorgun að Ven-
izelos gæti hugsanlega myndað sam-
steypustjórn með mið- og hægri-
flokknum Nýju lýðræði og
Lýðræðislega vinstriflokknum.
Leiðtogi Lýðræðislega vinstriflokks-
ins, Fotis Kouvelis, tilkynnti hins
vegar síðar að ekki kæmi til greina
að mynda stjórn með flokkunum
tveimur án aðildar vinstriflokksins
Syriza, sem fékk næstmest fylgi í
þingkosningunum á sunnudaginn
var.
Takist flokkunum ekki að mynda
stjórn verður boðað til nýrra þing-
kosninga.
Patt Leiðtogar Nýs lýðræðis og
PASOK í þinghúsinu í Aþenu.
Pattstaða í Aþenu
Barroso segir að Grikkir verði að segja skilið við evruna
ef þeir virða ekki samninginn við ESB um neyðarlánin
Konur í danshópi frá Mexíkó dansa á hátíðarsýningu á
lóð Windsor-kastala á Suðaustur-Englandi í tilefni af
því að sextíu ár eru liðin frá því að Elísabet II. varð
drottning Breta. Um 1.200 manns og 600 hestar taka
þátt í sýningunni sem hófst á fimmtudag og lýkur á
morgun, sunnudag.
AFP
Dansað drottningu til heiðurs
Nefnd sérfræð-
inga í Bandaríkj-
unum hefur í
fyrsta skipti lagt
til að heimilað
verði að lyf verði
notað til að
hindra að heil-
brigt fólk smitist
af HIV-veirunni
sem veldur alnæmi. Nefndin lagði
til að Matvæla- og lyfjastofnun
Bandaríkjanna (FDA) heimilaði að
lyfið Truvada yrði notað til að
hindra smit meðal fólks sem er talið
í mikilli smithættu, meðal annars
homma og maka HIV-smitaðra, að
því er fram kemur á fréttavef
breska ríkisútvarpsins.
Matvæla- og lyfjastofnunin þarf
ekki að fara að ráðum sérfræðing-
anna en gerir það yfirleitt. Stofnun-
in hefur þegar heimilað að fólk,
sem hefur smitast af HIV-veirunni,
taki inn lyfið.
Deilt hefur verið um hvort nota
eigi lyfið til að hindra að heilbrigt
fólk smitist af HIV-veirunni. Rann-
sókn sem gerð var árið 2010 bendir
þó til þess að lyfið minnki líkur á
smiti um 44-73%, að sögn frétta-
vefjar BBC.
Vill að lyf verði notað til að hindra HIV-smit
BANDARÍKIN
Íbúar Norður-Kóreu hafa meiri aðgang en
nokkru sinni fyrr að erlendum miðlum, þar á með-
al útvarpi, sjónvarpi og dvd-diskum. Í nýrri
skýrslu í Bandaríkjunum kemur fram að norður-
kóresk stjórnvöld hafi ekki getað viðhaldið „al-
gjörri einokun“ á upplýsingaflæði og einnig að
þekking íbúanna á umheiminum sé að breytast.
Norður-Kórea er það land heims þar sem fjöl-
miðlafrelsi er minnst. Bandarísk stjórnvöld létu
kanna hvernig þróunin hefur verið undanfarin
tvö ár og niðurstöðurnar byggjast á skoð-
anakönnunum meðal 250 Norður-Kóreumanna,
fyrst og fremst flóttamanna, auk nokkurra ferðamanna.
Meirihluti íbúa Norður-Kóreu hefur enn engan beinan aðgang að erlend-
um fjölmiðlum, en þeim fjölgar þó sem það hafa. Auk þess benda niðurstöð-
urnar til þess að Norður-Kóreumenn séu síður hræddir við að deila upplýs-
ingum sem þeir komast yfir með öðrum.
Íbúarnir hafa meiri aðgang að erlendum
fjölmiðlum og upplýsingum en áður
Vafrar Leiðtogi N-Kóreu,
Kim Jong-un, við tölvu.
NORÐUR-KÓREA
Skechers GOwalk
fisléttir og sveigjanlegir
SUMARIÐ ER KOMIÐ - Í ALVÖRUNNI!
MAUI SÓLSTÓLL
Verð frá 12.500 kr.
FLAMINGO PÚÐI
3.500 KR.
DELI SKÁL
1.900 KR.
LIMONE-LÍNAN
tveir frísklegir litir
Kauptúni
Kringlunni
www.habitat.is