Morgunblaðið - 12.05.2012, Blaðsíða 24
24 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2012
● Hagnaður Straums fjárfestingar-
banka eftir skatta á fyrsta fjórðungi
þessa árs nam 87 milljónum kr. Fram
kemur í tilkynningu frá bankanum að
arðsemi eiginfjár, reiknuð á árs-
grundvelli, nemi 29%. Heildartekjur
tímabilsins námu 345 milljónum kr.
Heildareignir í lok tímabilsins nema
8.503 milljónum kr. Þá segir að eigin-
fjárstaðan sé sterk, þar sem eiginfjár-
hlutfall (e. CAR) í lok tímabilsins sé
64%, en það er umtalsvert hærra en
hið lögbundna lágmark sem nemur 8%.
87 milljóna hagnaður
● Landsbankinn hagnaðist um 7,7
milljarða eftir skatta á fyrsta ársfjórð-
ungi 2012. Bankinn segir í tilkynningu,
að arðsemi eigin fjár hafi verið 15,2%.
Til samanburðar hafi hagnaður á sama
tíma á síðasta ári numið 12,7 millj-
örðum króna og arðsemi eigin fjár hafi
þá verið 26,7%.
Eiginfjárhlutfall (CAD) Landsbankans
er nú 22,1% en var 20,4% fyrir ári og
því vel umfram það 16% lágmark sem
Fjármálaeftirlitið gerir kröfu um.
7,7 milljarða króna
hagnaður Landsbanka
Helgi Vífill Júlíusson
helgivifill@mbl.is
Hluti af fataverslun hefur verið
skattlögð úr landi. Mun fleiri kaupa
föt erlendis en áður, segir Finnur
Árnason, forstjóri Haga. Hann telur
að stjórnvöld verði að skapa slík skil-
yrði að verslun hér sé samkeppnis-
hæf við búðir í nágrannalöndunum.
Þetta kom fram í máli Finns á vel
sóttum afkomukynningarfundi hjá
fyrirtækinu í gær.
Hlutfallið af verslun erlendis var
gjarnan um 20% af markaðnum á ár-
unum fyrir hrun en hefur nú aukist í
35%, að sögn Finns. Þessar upplýs-
ingar koma heim og saman við það
sem fram kom á kynningarfundi um
efnahagsspá Arion banka í vikunni.
Þar var sagt að Íslendingar eyddu
meira í utanlandsferðum árið 2011
en árið áður. Íslendingar eyða raun-
ar meira erlendis en erlendir ferða-
menn eyða hér.
„Við erum að keppa við það að fólk
ferðist t.d. til Bretlands, þar sem
enginn virðisaukaskattur er á barna-
fatnað, í Boston
er 8% söluskattur
og „taxfree“
verslun er víða í
Evrópu,“ sagði
Finnur. Auk þess
ber vara sem er
framleidd utan
Evrópu viðbótar-
toll; varan ber í
raun tvöfaldan
toll. Annars vegar
þegar hún er flutt
inn til Evrópusambandsins, og svo
aftur við komuna til Íslands. „Þannig
að í mörgum tilfellum er skattlagn-
ingin orðin 40% umfram það sem er
t.d. í Bretlandi eða „taxfree“-versl-
unum.“
Það eru ekki einungis íslenskar
verslanir sem tapa á því að lands-
menn kaupa í meira mæli fatnað er-
lendis, heldur verður ríkið af tölu-
verðum skatttekjum í kjölfarið, enda
hefðu vörurnar annars borið tolla og
gjöld, sem rynnu í ríkissjóð. „Ef ríkið
horfir á það að fataverslun fari úr
landi, þá getur vel verið að það borgi
sig fyrir yfirvöld að horfa á þessa
verslun og segja: Gerum hana sam-
keppnishæfa við nágrannalöndin,“
sagði Finnur og nefndi að hann vildi
geta keppt við búðir í nágrannalönd-
unum.
Á fundinum var Finnur spurður
hvort honum þætti eitthvað benda til
þess að skattaumhverfið væri að
batna. „Ég bara vona að ungt fólk
brjótist út úr þessu. Af hverju eiga
heimilin í landinu að vera þrælar
þessa kerfis? Hagur heimilanna er
að þetta verði opnað,“ sagði hann.
Eftir hrun kaupir fólk sjaldnar föt.
Samkvæmt markaðskönnunum
keypti fólk 8,8 sinnum föt á árunum
2005-2008 en við lok árs 2011 hefur
fatakaupum fækkað í 6,3 sinnum á
ári. „Þetta er magnminnkun upp á
28%,“ sagði Finnur. Hann nefndi að
kakan á markaðnum hefði minnkað
mikið og því til viðbótar versla fleiri
fatnað erlendis. Það sé því þungur
rekstur hjá fataverslunum í landinu.
Netverslun hefur lítil áhrif
Margir hafa talað um að aukin
netverslun hafi mikil áhrif á sölu í
fataverslunum. Samkvæmt mark-
aðsrannsókn, þar sem spurt var:
„Síðast þegar þú keyptir hversdags-
föt erlendis, keyptir þú þau í gegnum
netverslun eða á staðnum?“ höfðu
einungis 4% aðspurðra keypt í gegn-
um netið.
Hagar eiga og reka nokkrar fata-
verslanir, eins og t.d. Zöru og De-
benhams, en þær skipta ekki sköp-
um fyrir rekstur fyrirtækisins.
Sérvaran telur um 6% af veltunni en
matvaran um 94%. Veltan var 68,5
milljarðar á síðasta rekstrarári.
Fataverslun er skattlögð
að hluta til út úr landinu
„Af hverju eiga heimilin í landinu að vera þrælar þessa kerfis?“
Vill lægri skatta
» Íslendingar versla í auknum
mæli erlendis
» Forstjóri Haga segir Íslend-
inga búa við mun hærri skatta
á fatnað en nágrannalöndin
» Ríkið verður af skatttekjum
ef verslun færist til útlandaFinnur
Árnason
Bandaríski viðskiptabankinn
JPMorgan Chase hefur greint frá
því að bankinn hafi tapað 2 milljörð-
um Bandaríkjadala, jafnvirði 252
milljarða íslenskra króna, á afleiðu-
viðskiptum með skuldatryggingar
frá því í marsmánuði, eða á aðeins
sex vikna tímabili.
Forstjóri JPMorgan, Jamie Di-
mon, viðurkenndi að starfsmenn
bankans hafi tekið rangar ákvarðan-
ir, verið kærulausir og sýnt af sér
mikið dómgreindarleysi. Fréttirnar
komu markaðsaðilum í opna skjöldu
og lækkaði gengi bréfa í JPMorgan
um 9% þegar markaðir voru opnaðir
vestanhafs í gærmorgun.
Dimon varaði einnig við því að
ekki væru enn öll kurl komin til graf-
ar. Á fundi með fjárfestum sagði
hann að útlit væri fyrir að bankinn
tapaði einum milljarði dala til við-
bótar á þessum fjórðungi vegna erf-
iðra markaðsaðstæðna.
Um var að ræða afleiðuviðskipti
þar sem bankinn veðjaði á hækkun
skuldabréfa með kaupum á skulda-
tryggingum. Veðmálið fór hins vegar
forgörðum og lækkaði verð skulda-
bréfanna í stað þess að hækka. Að
sögn sumra greinenda er talið líklegt
að bankinn hafi með veðmáli sínu
ætlað að græða stórfé á efnahags-
vanda evrusvæðisins. hordur@mbl.is
Töpuðu stórt á veðmáli
AFP
JPMorgan Gengi bréfa í bankanum lækkaði um 9% við opnun markaða.
JPMorgan tapaði 2
milljörðum Banda-
ríkjadala á sex vikum
!"# $% " &'( )* '$*
+,-./0
,1+.0+
+,2.3/
,+.4+0
,+./55
+4.1,/
+/-.1,
+.-53-
+0,.54
+5,.,,
+,-.50
,1,.2
+,-.+
,+.44/
,+.2,0
+4.135
+/-.2
+.-3,+
+0/.,-
+5,.53
,,/.45,3
+,-.00
,1,.40
+,-.23
,+.023
,+.20,
+4.+,0
+/-.34
+.-353
+0/.4,
+5/.+,
STUTTAR FRÉTTIR
● Spænska ríkisstjórnin kynnti í gær
verulegar breytingar á fjármálakerfi
landsins. Breytingarnar fela m.a. það í
sér að spænskir bankar þurfa að
leggja 30 milljarða evra á varúðarreikn-
ing vegna fasteignalánakreppunnar og
eins þurfa þeir að aðskilja fasteigna-
lánastarfsemi frá annarri starfsemi.
Þá hyggst spænska ríkisstjórnin fá
tvö sjálfstæð endurskoðunarfyrirtæki
til að meta virði bankanna á fast-
eignalánamarkaði.
Hlutabréfavísitalan IBEX hefur lækk-
að um tæp 3% í kauphöllinni í Madríd í
gærmorgun eftir að áform stjórnvalda
voru tilkynnt.
Leggi 30 milljarða evra
á varúðarreikning
Helgi Vífill Júlíusson
helgivifill@mbl.is
Áhugi er fyrir því innan Haga að
slíta samstarfi við 10-11-verslana-
keðjuna, samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins. 10-11 er með við-
skiptasamning við Aðföng sem er
birgða- og dreifingarstöð Haga.
Óánægja ríkir um samninginn meðal
að minnsta kosti einhverra stjórn-
enda fyrirtækisins sem íhuga nú sín
næstu skref í refskák viðskiptalífs-
ins. Það er í gildi samningur um sam-
starfið, það þarf því meira en að
smella fingrum til að rifta honum,
herma heimildir.
Hagar áttu lengi vel 10-11. Þegar
Arion banki fékk verslunarsamstæð-
una Haga, sem m.a. á Bónus og Hag-
kaup, í fangið í kjölfar bankahruns-
ins ákvað bankinn að að taka 10-11 út
úr samstæðunni. Fyrir ári keypti
Árni Pétur Jónssson, fyrrverandi
forstjóri Teymis, 10-11 af bankanum.
Teymi var umsvifamikið eignar-
haldsfélag á upplýsinga- og fjar-
skiptamarkaði, og átti meðal annars
Vodafone og Skýrr. Baugur átti kjöl-
festuhlut í Teymi. Árni Pétur kom
ekki blautur á bak við eyrun í mat-
vörugeirann, því hann var eitt sinn
yfirmaður matvörusviðs Baugs.
Ákveðið var að 10-11 myndi halda
áfram að kaupa vörur af Aðföngum
eftir yfirtöku Árna Péturs á félaginu.
Hagar voru skráðir á markað í lok
árs 2011. Árni Hauksson og Hall-
björn Karlsson fóru fyrir hópi fjár-
festa sem keypti félagið áður en því
var fleytt á markað. Hluthafar fyr-
irtækisins eru um tvö þúsund, sam-
kvæmt gögnum frá Högum.
Nokkrar hræringar hafa verið á
matvörumarkaðnum eftir banka-
hrun.
Eiríkur Sigurðsson, stofnandi 10-
11, setti á fót lágverðsverslunina Víði
og Jóhannes Jónsson, stofnandi
Bónuss, tilkynnti á fimmtudaginn að
hann hygðist opna bresku matvöru-
verslanakeðjuna Iceland hér á landi í
samstarfi við Malcom Walker, stofn-
anda og forstjóra Iceland-keðjunn-
ar.
Skoða að slíta
samstarfi við 10-11
Viðskipti Stjórnendur Haga eru
óánægðir með samning við 10-11.
Áhugi á að rifta samningi
Arion banki hóf í gær að bjóða upp
á nýja tegund sparnaðar sem nefn-
ist Íbúðarsparnaður.
„Íbúðarsparnaði er ætlað að auð-
velda leiðina að íbúðarkaupum og
felur í sér þjónustu og ráðgjöf sem
snýr að sparnaði og markmiðasetn-
ingu,“ segir í tilkynningu. Sparn-
aðurinn þurfi að vara í að minnsta
kosti tvö ár og lágmarksupphæð
sem leggja þarf fyrir á mánuði er
10.000 kr.
Fram kemur að þátttakendur að
tveimur árum liðnum njóti sérkjara
við töku íbúðalána hjá Arion banka,
eins og 50% afsláttar af lántöku-
gjaldi og 100% afsláttar af greiðslu-
mati.
Íbúðar-
sparnaður
Arion banka
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
ÍSLAND - GRÆNLAND -
FYRIRTÆKJARÀÐGJÖF
Tökum að okkur verkefni fyrir fyrirtæki og einstaklinga sem
áhuga hafa á markaðssetningu vöru eða þjónustu á Grænlandi.
Höfum góð sambönd og góða þekkingingu á Grænlensku
atvinnulífi og áratuga starfsreynslu á Grænlandi. Bjóðum uppá
heildarlausnir fyrir fyrirtæki og einstaklinga. Starfsfólk okkar
hefur fjölbreytta sérþekkingu og menntun.
Hafðu samband og kannaðu hvort við getum orðið að liði. Sendu
okkur tölvupóst, á íslensku, grænlensku, dönsku eða ensku (við
tölum öll málin) með stuttri lýsingu á verkefninu og við höfum
samband.
RENT - Sunaluunniit - Hvad som helst - Allt mögulegt
Export,Import & Konsulentfirma
Suloroq 1 - 3905
Nuuk - Grønland
Mail : Rent.gl@hotmail.com
Sími : 00299 26 29 16