Morgunblaðið - 12.05.2012, Síða 21

Morgunblaðið - 12.05.2012, Síða 21
FRÉTTIR 21Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2012 vers á Ásbrú í samstarfi við Verne Global, hafi farið til Svíþjóðar og Finnlands. Fjármálaráðuneytið hafi ekki viljað ljá máls á sérstakri skattafyrirgreiðslu sem beðið var um, en iðnaðarráðherra verið já- kvæður. Árni segir umræðu stjórnvalda um Suðurnes, einkum vinstrimanna, hafa aukið á doða og vonleysi íbúa. „Umræðan gefur til kynna að þar búi menntunarlítið og uppburðarlítið fólk með ónothæfar sveitarstjórnir, sem ekkert geri í atvinnuálum nema að hugsa um álver. Umræðan dregur úr vilja sveitarstjórnarmanna til samstarfs við ríkisstjórnina og dreg- ur úr krafti íbúa til að berjast áfram. En við berjumst þó samt.“ Þá bendir Árni á að enn hafi ekki komið samræmdar tillögur um lausn- ir á skuldavanda heimilanna sem standast dóma Hæstaréttar. Á með- an tapi fólk heimilum sínum og hundruð kröftugra Íslendinga hafi bjargað sér með því að flytjast úr landi. Suðurnesjamenn hafi orðið sérstaklega illa fyrir barðinu á þessu. Loks nefnir hann sjávarútvegs- málin. Tillögur um breytingar á fyr- irkomulagi sjávarútvegsmála hafi verið í biðstöðu í þrjú ár. „Eftir að ekkert var gert með fjölskipaða sáttanefnd stjórnmálaflokka og at- vinnuvega hefur ríkisstjórnin tekið málið í sínar hendur og ítrekað skilað ónothæfum niðurstöðum sem ekki er einu sinni samkomulag um á meðal stuðningsmanna hennar. Á meðan bíður nánast öll fjárfesting í sjávar- útvegi. Enginn veit hvað verður og þorir því ekki að fjárfesta í grein- inni,“ segir Árni og telur að þessi óvissa geti haft áhrif á hundruð starfa í sjávarútvegi á Suðurnesjum. Engin markviss vinna Um fundahöld ríkisstjórnarinnar á landsbyggðinni hafði Árni þetta að segja að endingu: „Það er ágætt að ríkisstjórnin fundi úti á landi en greinilegt er að það sem lagt er á borð er samtín- ingur frá embættismönnum í ráðu- neytunum um það sem verið er að skoða. Engin markviss vinna er unn- in áður en ríkisstjórnin fer á þessi svæði og leggur fram sínar tillögur. Við höfum kallað þetta brauðmola eða brauðmylsnu, þar sem öllu er sópað saman í einn poka og rétt landsbyggðinni. Þetta eru ekki góð vinnubrögð. Ég finn þessu ekki allt til foráttu, ákveðnir þættir hafa vissulega komið sér vel, en meg- invinnan er ekki nægilega vönduð.“ Morgunblaðið/RAX Landsbyggðarfundir » Ekki hefur verið tilkynnt hvenær eða hvort ríkisstjórnin fundar á fleiri stöðum á lands- byggðinni. » Eins og kemur fram hér til hliðar á ríkisstjórnin boð um að koma aftur norður á Akureyri en hún á eitt ár eftir á kjör- tímabili sínu. » Jóhanna Sigurðardóttir for- sætisráðherra sló á létta strengi á Austfjörðum í vikunni og sagði við sveitarstjórnar- menn að fundurinn þar yrði vonandi fordæmi fyrir næstu ríkisstjórn, sem tæki við eftir 10-15 ár. » Á fundunum í Reykjanesbæ og á Ísafirði, sem haldinn var í apríl í fyrra, var skipaður sam- ráðsvettvangur ráðuneyta og heimamanna til að vinna að eflingu byggða í þessum lands- hlutum. » Slíkur vettvangur var ekki settur á fyrir austan heldur til- kynnt stofnun nýrrar stoð- stofnunar, Austurbrúar, sem ætlað er að auka skilvirkni inn- an svæðisins og í samskiptum við ríkisvaldið. » Fram kom á Egilsstöðum að ríkisstjórnin vildi sjá sambæri- legar stofnanir verða til í öðr- um landshlutum, sem hluta af sóknaráætlunum landshlut- anna til ársins 2020. Núverandi ríkisstjórn Samfylking- arinnar og VG hélt sinn fyrsta rík- isstjórnarfund á Akureyri 12. maí 2009. Þó að sá fundur hafi verið haldinni úti á landsbyggðinni var hann annars eðlis en þeir fundir sem á eftir hafa komið, í Reykjanesbæ og á Ísafirði og Egilsstöðum. Á fundinum voru nokkur almenn mál afgreidd og engin sem kallast geta svæðisbundin fyrir Akureyri eða Norðurland. Það sem þó kemst næst því var eitt mála sem Jóhanna Sigurðardóttir lagði fram sem for- sætisráðherra. Það fjallaði um sókn- aráætlun fyrir Ísland þar sem rík- isstjórnin hugðist efna til víðtæks samráðs, undir forystu forsæt- isráðuneytisins, um sóknaráætlanir fyrir alla landshluta til eflingar at- vinnulífs og lífsgæða til framtíðar, eins og það var orðað. Velkomin aftur norður Oddur Helgi Halldórsson, formað- ur bæjarráðs Akureyrar, segir þá bæjarstjórn sem tók við árið 2010 hafa óskað eftir fundi með forsætis- ráðherra og öðrum ráðherrum en ekkert orðið af neinum formlegum fundi. Ríkisstjórnin sé velkomin aft- ur norður. „Við erum stærsta sveit- arfélagið á landsbyggðinni og höfum ákveðnar höfuðborgarskyldur gagn- vart nágrenninu. Okkur finnst allt í lagi að fá fund með ríkisstjórninni til skrafs og ráðagerða og til að heyra vonir okkar og væntingar til mála eins og Vaðlaheiðarganga og fleiri stórra verkefna. Við erum fyrst og fremst að biðja um sanngirni en enga sérstaka bitlinga,“ segir Oddur og ítrekar að Eyfirðingar vilji leggja hönd á plóg með stjórnvöldum við að koma þjóðfélaginu á flot á ný. Fyrsti fundurinn á Akureyri Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Akureyri Ný ríkisstjórn Samfylkingar og VG eftir kosningarnar 2009 fundaði á Akureyri 12. maí og heimsótti m.a. Háskólann á Akureyri. TREFJARÍKAR PRÓTEINSTANGIR FYRIR KREFJANDI AÐSTÆÐUR www.lyfja.is ÍS L E N S K A /S IA .IS /L YF 59 61 3 05 /1 2 Lægra verð í Lyfju – Lifið heil 50% afsláttur Gildir í maí. Ert þú með brjóstsviða? Galieve dregur úr brjóstsviða á 3 mínútum. Virkar í allt að 4 tíma. Galieve mixtúra og tuggutöflur innihalda virku efnin natríumalgínat, natríumhýdrógenkarbónat og kalsíumkarbónat. Galieve er notað við einkennum maga- og vélindisbakflæðis svo sem nábít og brjóstsviða. Skömmtun fyrir fullorðna og börn 12 ára og eldri: Mixtúra: 10-20 ml eða 2-4 töflur eftir máltíðir og þegar farið er að sofa, allt að 4 sinnum á dag. Börn yngri en 12 ára: skal aðeins gefið samkvæmt læknisráði. Sjúklingar með ofnæmi fyrir inni- haldsefnunum eiga ekki að nota lyfið. Ekki taka þetta lyf innan tveggja klst. frá því að þú hefur tekið inn önnur lyf þar sem það getur truflað verkun sumra annarra lyfja. Leitaðu til læknisins ef þú veist að þú ert með skert magn af magasýru í maganum, þar sem áhrif lyfsins gætu verið minni. Galieve er öruggt fyrir þungaðar konur og konur með börn á brjósti. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá til. Lesið vandlega leiðbeiningar á fylgiseðli áður en notkun lyfsins hefst. Markaðsleyfishafi: Reckitt Benckiser Healthcare A/S. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabær.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.