SunnudagsMogginn - 13.05.2012, Blaðsíða 17
13. maí 2012 17
Guðmundur, Hrefna, Táta og
Halla láta fara vel um sig í
Corvettu-sætunum og Coro-
net-bekknum fyrir utan fjár-
húsin í Ytri-Fagradal.
Þessi gamla fleyta hefur marga fjöruna sopið. Hún fór síðast á sjó rétt fyrir síðustu aldamót.
Sverrir Þór Halldórsson mat-
reiðslumeistari prófaði fyrstur
manna að elda hvannarlamb-
ið á mikilli matarhátíð við
Breiðafjörð árið 2008. Segir
hann það hafa verið mikla op-
inberun. „Það er virkilega
skemmtilegt að elda
hvannarlamb, ég mæli hik-
laust með því. Það getur hver
sem er eldað það.“
Sverrir segir muninn á
hvannarlambi og hefðbundnu
lambi í því fólginn að bragðið
breytist aðeins. „Lambs-
bragðið dofnar og á móti
kemur vottur af hvönninni.
Hvannarlambið er því upplagt
fyrir þá sem eru sýknt og
heilagt að röfla yfir sterku
lambakjötsbragðinu,“ segir
Sverrir og glottir við tönn.
Hann segir alla sem vanir eru
að borða lambakjöt finna
þennan mun.
Verkefnið er enn í þróun en
Sverrir er ekki í nokkrum
vafa um að markaður sé fyrir
hvannarlamb, innanlands
sem utan. „Gæti ég keypt
það í búð myndi ég gera það.
Þetta er líka akkúrat það
sem útlendingurinn vill – stef
við hið hefðbundna.“
Sverrir segir fáa geta gert
þetta í heiminum og því sé
sóknarfærið sannarlega fyrir
hendi, hvannarlamb hafi alla
burði til að verða vænleg
vara til útflutnings. Sama
máli gegni um önnur stef við
hið hefðbundna lamb, svo
sem fjörulamb, sem sé salt-
ara, og heiðarlamb, sem sé
meira út í villibráð.
Að sögn Sverris er
hvannarlambið góð viðbót við
„Beint frá býli“-verkefnið sem
matreiðslumeistarinn ber
mikið lof á. „Eftir fimm ár
verður íslenskur landbúnaður
orðinn eins og sá franski;
byggist upp á beint-frá-býli-
hugsuninni. Fólk er tilbúið að
leggja mikið á sig til að þefa
uppi hráefni beint frá býli.“
Vænlegt til útflutnings
Komdu við
í næstu verslun
sem selur lopann
og skoðaðu úrvalið
Íslenska ullin
er einstök