SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 13.05.2012, Qupperneq 38

SunnudagsMogginn - 13.05.2012, Qupperneq 38
38 13. maí 2012 Það mundi gleðja mig mjög, ef það kæmi í ljós, að útnefningmín yrði til þess að örva konur til þátttöku í stjórnmálum,“sagði Auður Auðuns í viðtali við Morgunblaðið í september1970. Þá hafði þingflokkur sjálfstæðismanna valið hana sem ráðherra og tók hún við því embætti fyrst íslenskra kvenna. Breytingar voru gerðar á skipan viðreisnarstjórnarinnar við fráfall Bjarna Benediktssonar í júlí 1970. Jóhann Hafstein varð forsætisráð- herra en lét í kjölfarið af embætti dóms- og kirkjumálaráðherra sem Auður tók við. Hún var þá þrautreyndur stjórnmálamaður. Var kjör- in borgarfulltrúi í Reykjavík fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins árið 1946 og átti þar sæti til 1970. Deildi borgarstjóraembættinu með Geir Hall- grímssyni 1959 til 1960. Var svo kjörin á þing 1959 hvar hún sat í fimmtán ár eða allt til ársins 1974. Ráðherra var hún til vors 1971. Morgunblaðsviðtalið við Auði Auðuns endurspeglar vel tíðarand- ann og viðhorfin eins og þau voru haustið 1970. „Sumir telja, að hlutverk konunnar sé fyrst og fremst það að hugsa um heimili og börn en láta önnur mál afskiptalaus,“ sagði blaðamaður og spurði„Örva konur til þátttöku í stjórnmálum,“ sagði Auður Auðuns sem varð ráðherra haustið 1970. Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Myndasafnið 12. september 1970 Brautryðjandi og ráðherra Hann var síðastur í röðinni af fjórum börn-um mínum … sá eini af þeim sem kvaldimig ekki þegar ég ól hann í heiminn,þannig vissi ég að hann yrði sérstakur,“ segir móðir Shawn Corey Carter í inngangi lagsins December 4th. Shawn Carter er betur þekktur undir nafninu Jay-Z, einhver áhrifaríkasti rappari samtím- ans. Viðskiptajöfur, samfélagsgagnrýnandi, fatafram- leiðandi og í ofanálag giftur einni fegurstu konu heims, Beyoncé Knowles. Hvernig hann lætur texta sína flæða, ýmist hægt eða ógnarhratt á svo ofursvalan og áreynslu- lausan hátt fær marga til að hrífast með. Rímnaflæði og taktur er honum eðlislægur, rembingurinn sem einkennir svo marga rappara er víðsfjarri. Það er með ólíkindum hvernig hann sam- einar næmi fyrir móðurmálinu og hrynjandi svo áreynslulítið, skil- ur áheyrendur eftir nánast steinrunna. Rapparinn er þekktur fyrir að skrifa nær aldrei niður texta, annaðhvort mætir hann í stúdíó með línurnar í höfðinu eða þær renna af vörum hans jafnóðum og takt- urinn er sleginn. Í útliti skilur hann sig ekki frá staðalmynd dæmigerðs rappara en sviðsframkoma, tækni og voldug ára skilur hann frá hjörð- inni. Jay-Z ólst upp í Marcy-hverfinu í Brooklyn, umhverfi eiturlyfja og til- heyrandi harðneskju. Faðir hans yfirgaf fjölskylduna þegar hann var tólf ára og rapparinn verðandi daðraði við vopnaburð og sölu eiturlyfja, fetaði sama stíg og margir kollega hans. „Ég fór í skóla, fékk góðar einkunnir, gat hagað mér vel þegar ég vildi/En ég hafði djöfla innra með mér sem opinberuðust þeg- ar mér var ógnað,“ segir Jay-Z í einu laga sinna. Rapparar hafa löngum þótt vera fjölskrúðugur hópur og margir þeirra lent upp á kant við lögin. Sjálfur segir Jay-Z að illa hafi gengið að koma sér á framfæri, valið hafi staðið á milli þess að hætta í bransanum eða stofna eigið útgáfufyrirtæki. 1996 stofnaði hann ásamt félögum sínum Rocafella Records og hefur ekki litið til baka síðan. Ásamt því að hafa selt yfir 50 milljónir platna hefur Jay-Z látið til sín taka á öðr- um sviðum tónlistar og meðal annars verið forstjóri Def-Jam-útgáfufyrirtæk- isins áður en hann stofnaði Roc Nation. Lætur sig samfélagsmál varða Hann hefur einnig látið til sín taka á viðskiptasviðinu, hann stendur að tísku- merkinu Rocawear auk þess að koma að kvikmyndagerð í gegnum Rocafella films. Vísnahöfundurinn er talinn vera sá rappari sem mestrar fjárhagslegrar velgengni hefur notið og er metinn á yfir 450 milljónir dollara. Þó að oft bylji hæst í tómri tunnu hefur Jay-Z lagt sitt af mörkum til sam- félagsmála og oft á tíðum ort um viðkvæm málefni líðandi stundar. Jay-Z Hann er síst ómerkilegri en hans betri helmingur. Samfélagsrýnirinn Jay-Z lætur til sín taka á ýmsum sviðum. Heimir Snær Guðmundsson heimirs@mbl.is Jay-Z og Beyoncé eru meðal áhrifa- mestu tónlistar- manna vestanhafs. ’ Barack Obama hefur sagt op- inberlega að honum líki hugsunar- háttur rapparans og hann hafi tækifæri til að hafa já- kvæð áhrif á viðhorf sam- borgara sinna. Mælskur með eindæmum Frægð og furður

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.