Morgunblaðið - 06.06.2012, Page 11
List og hönnun Sveinbjörg Hallgrímsdóttir, myndlistarmaður og hönnuður, á vinnustofu sinni á Akureyri.
rósir, sem allar selja hönnunarlínu
mína. Þetta hefur markað leið
mína frá upphafi og gert drauma
morgundagsins að tækifærum
dagsins í dag.“
Sveinbjörg hefur ávallt unnað
náttúrunni, með öllum sínum fjöl-
breytileika. Fuglar hafa verið í
miklu uppáhaldi og eru hönnunar-
vörur hennar meðal annars unnar
upp úr seríu grafíkverka sem
nefnist Garðveisla. Þar getur að
líta samspil þrasta og reynitrjáa
og þá veislu sem í gang fer þegar
fuglarnir fara að njóta berjanna.
Hrafninn
Sveinbjörg segist líka hafa
einstakt dálæti á hrafninum sem
víða kemur fram í verkum hennar
í gegnum tíðina. Úr þeim verkum
urðu til hönnunarvörur eins og
filmur í glugga, birkibakkar og
thermo-bollar sem hafa notið mik-
illa vinsælda og er ljóst að Íslend-
ingurinn er afar hrifinn af hröfn-
um líkt og Sveinbjörg sjálf.
Sveinbjörg opnaði á dögunum
sýningu á hönnunarlínu sinni í
versluninni Hjá Ófeigi á Skóla-
vörðustíg 5 í Reykjavík. Sýningin
stendur til 20. júní og er opin á
sama tíma og verslunin
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 2012
Drengjakór Hafnarfjarðar heldur
sumarskemmtun á Rúbín í Öskjuhlíð
kl. 20 í kvöld. Kórinn hefur verið
starfandi frá árinu 2008 og lofar
söng og glensi fyrir gesti sumar-
skemmtunarinnar.
„Við flytjum lög í léttari kantinum,
erum svolítið í poppinu,“ segir
Jóhann Arnar Ragnarsson, einn af
meðlimum kórsins. „Þetta verða lög
með Egó, Billy Joel, Sálinni hans Jóns
míns, Eric Clapton og einhverjum í
þeim dúr,“ útskýrir Jóhannes og bæt-
ir við að Drengjakór Hafnarfjarðar
hafi mikla sérstöðu meðal annarra
karlakóra. „Við státum okkur af því
að vera eini karlakór landsins sem
hefur konu sem meðlim,“ útskýrir
hann en Margrét Ragnarsdóttir skip-
ar stöðu fyrsta tenórs hjá kórnum
sem inniheldur enga drengi þó nafnið
bendi til annars.
Sumarskemmtun Drengjakórs Hafnarfjarðar
Flytja lög í léttari kantinum
ið hér á landi. Búðin verður opnuð í
bakhúsi við Laugaveg 27 föstudaginn
8. júní svo nú er allt á fullu við að
setja búðina upp og gera allt tilbúið.
„Við erum enn að saga og bora en
þetta gengur vel og ég hugsa að við
náum að klára fyrir föstudaginn. Ég
vona það að minnsta kosti,“
segir Maarit hlæjandi. Hér til
hliðar má sjá brot af þeim
vörum sem verða til sölu hjá
þeim Maarit og Satu en eins og
sjá má ratar allt milli himins og jarð-
ar inn í búðina Suomi PRKL! Design.
Sveinbjörg er fædd og uppalin í
Reykjavík en á ættir sínar að rekja
til Eyrarbakka og Laxamýrar í Að-
aldal. Faðir hennar er Hallgrímur
Jónsson frá Laxamýri, fyrrverandi
lögreglumaður, og Þórunn Franz,
tónskáld.
Sveinbjörg hóf nám við Kenn-
aradeild Myndlista- og handíða-
skóla Íslands árið 1974 og lauk
myndmenntakennaraprófi þaðan
1978. Á árunum 1986 til 1990
stundaði hún nám við Myndlista-
skóla Reykjavíkur og því næst við
málaradeild Myndlista- og hand-
íðaskóla Íslands árin 1990 til 1992.
Sveinbjörg hefur haldið fjölda
einkasýninga og tekið þátt í sam-
sýningum á Íslandi sem og erlend-
is en verk hennar eru meðal ann-
ars í eigu forseta Finnlands og
konungshjónanna í Svíþjóð. Svein-
björg hefur fengið viðurkenningu
EUWIIN kvenna árið 2011 og hann-
aði jólafrímerki og Jólaprýði
Póstsins árið 2010.
Forseti Finnlands og konungs-
hjónin í Svíþjóð eiga verk
SVEINBJÖRG HALLGRÍMSDÓTTIR
Birkidiskur Sveinbjargar Eitt margra
verka hennar þar sem sjá má hrafninn.
Úrframleiðandinn JS Watch Co.
Reykjavik tengir úrin sín við viðburði
í sögu Íslands og hefur nú hannað
viðhafnarútgáfu af Frisland Goð
úrinu sem var kynnt í fyrra tengt eld-
gosinu í Eyjafjallajökli.
Um er að ræða sérhannað úr gert
úr hringlaga skífu með ösku úr eld-
gosinu í Eyjafjallajökli í stálkassa
sem er handgrafinn með mynstri í
forníslenskum stíl. Við hönnun úrsins
voru fornmunir eins og skartgripir,
vopn, drykkjarhorn, rúmgaflar, askar,
stólar og skápar á Þjóðminjasafni Ís-
lands skoðaðir vel til að fá innblástur.
Á hlið úrsins stendur orðið „Ísland“
með svokölluðu Höfðaletri sem er
séríslenskt skrautletur.
Letrið var aðallega notað fyrr á
öldum til að skreyta muni úr tré og
síðar málmi. Það var ekki öllum læsi-
legt og því oft notað til vörslu leynd-
armála. Hvert úr þarf að sérpanta og
mögulegt verður að fá grafinn per-
sónulegan texta í úrið með hinu forna
Höfðaletri, til dæmis nafn eigandans.
JS Watch Co. úrin eru íslensk
hönnun og eru sett saman á Íslandi
en gangverk þeirra er sérsmíðað í
Sviss en skífur, kassar og aðrir íhlutir
eru smíðaðir í Þýskalandi og Sviss.
Glerið er demantsslípaður safírkrist-
all með spegilvörn og ólarnar eru
handsaumaðar.
Íslensk úr í viðhafnarútgáfu
Skreytt með forníslensku letri
EIKJUVOGI 29, 104 RVK | Sími 694 7911 OPIÐ: mán. - fim. 12–18, fös. 12–16
Glæsilegur
og vandaður
sundfatnaður