Morgunblaðið - 06.06.2012, Síða 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 2012
STANGVEIÐI
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Ég er búinn að veiða þá nokkra um
ævina en þetta er alltaf eins,
adrenalínkikkið,“ segir Bjarni Júl-
íusson, formaður Stangaveiðifélags
Reykjavíkur, gleiðbrosandi og horfir
á hendur sínar sem skjálfa eftir
átökin og spennuna. Hann lítur síð-
an upp og ávarpar hóp áhorfenda
sem hafa safnast saman á bakk-
anum, fjölmiðlamenn og félaga í
stjórninni: „Þessi var falleg, vel
haldin; hefur verið svona tíu
pundari.“
Ég spyr hvort hann haldi sig við
spána um fjölda laxa í opnuninni.
„Já, það er óbreytt spá. 27 laxar.
Þessi byrjun veit á gott. Það er mik-
ið af fiski hérna, hann liggur alveg á
brotinu, heldur lengra útí – og Árni
tekur annan þar á eftir.“
Þar gefur formaðurinn boltann á
varaformanninn, handboltakempuna
fyrrverandi Árna Friðleifsson.
Inneign fyrir bjartsýni
Eins og undanfarin ár var á annan
tug gesta mættur að fylgjast með
stjórnarmönnum í SVFR og mökum
þeirra hefja veiðar í Norðurá í gær-
morgun. Sá viðburður markar upp-
haf laxveiðitímabilsins en veiði hefst
um leið á neðsta svæði Blöndu og í
Straumunum. Bjarni hafði spáð
bestu veiði í upphafshollinu á þessari
öld, 27 löxum, og það var inneign
fyrir bjartsýni eftir að helstu veiði-
staðir höfðu verið skyggndir daginn
áður; sjá mátti laxa á flestum. „Við
höfum ekki séð jafn mikið af laxi fyr-
ir opnun síðan 1999,“ sagði formað-
urinn.
Fékk góða dýfu á leiðinni
Eftir að Bjarni hefur landað
fyrsta laxinum dreyfast stjórnar-
menn á önnur svæði árinnar. Við
sjáum að handan ár setur Bernharð
Petersen í lax við Eyrina en sá lekur
af eins og sá sem Bjarni hafði sett
fyrst í, klukkan sjö mínútur yfir sjö.
Sá sem hann landaði tók þremur
mínútum síðar og var þungur á;
steypti sér fram af Brotinu og þurfti
Bjarni að elta hann niður ána, datt í
ána á leiðinni og landaði honum eftir
hlaup í Almenningi. „Hann tók
þannig roku út að ég réð ekkert við
hann. Hann lét mig hlaupa,“ segir
Bjarni og brosir breitt. Ég fékk
helv... góða dýfu á leiðinni. Þetta var
rosalega gaman.“
Við sitjum á bakkanum og fylgj-
umst með Árna veiða. Skyndilega
sprettur Bjarni upp og hrópar„ Já-
jájá!“ Lax er á hjá Árna og tíu mín-
útum síðar hjálpast félagarnir að við
að landa annarri vænni hrygnu. Og
stjórnarmenn voru ekki hættir; áður
en vaktinni lauk voru ellefu laxar
komnir á land og fjórar vaktir eftir
til að láta spá formannsins rætast.
„Þessi byrjun veit á gott“
Ellefu laxar veiddust á fyrstu vakt sumarsins í Norðurá „Það er mikið af fiski hérna,“ segir
Bjarni Júlíusson sem veiddi fyrsta laxinn Fyrsta vaktin á neðsta svæðinu í Blöndu gaf sex laxa
Morgunblaðið/Einar Falur
Togast á Formaður Stangaveiðifélags Reykjavíkur, Bjarni Júlíusson, um það bil að landa fyrsta laxi sumarsins í
Norðurá og bíður Árni Friðleifsson varaformaður átekta. Var þetta um tíu punda hrygna sem var sleppt aftur.
Ljósmynd/Höskuldur Erlingsson
Silfurbjört Hermann Svendsen með fyrsta laxinn úr Blöndu í ár, sautján
pund og 93 cm. Laxinn fékk hann í Damminum á neðsta svæði árinnar.
„Það komu laxar upp úr Damm-
inum báðum megin, pattara-
legir tveggja ára fiskar, og svo
komu líka upp laxar á Breiðunni,
báðum megin,“ segir Höskuldur
Erlingsson, lögreglumaður og
leiðsögumaður við Blöndu, en
hann fylgdist með veiðimönnum
byrja að kasta fyrir laxinn þar í
gærmorgun. Komu sex laxar
upp á morgunvaktinni, tíu til
sautján punda, en auk þess
nokkrir hoplaxar sem ekki telj-
ast með. Dagana fyrir opnun
hafði Höskuldur séð laxa í Hol-
unni og Damminum, þannig að
vitað var að þeir væru mættir,
þegar veiðimenn sem ekki hafa
áður veitt í opnun árinnar byrj-
uðu í gær.
„Þetta er mjög fín byrjun. Það
var kalt í veðri þegar veiðin
hófst, ekki nema tvær þrjár
gráður, en sólin yljaði og vatns-
staðan er nokkuð góð, vatnið er
í minna lagi, en þá gerist það
hinsvegar að laxinn leggst
nokkuð oft nokkuð djúpt í
Damminum,“ segir Höskuldur.
Hann bætir síðan við að laxar
hafi komið nokkrum sinnum í
flugur veiðimanna þar en ekki
tekið fyrr en „garðflugunni“ var
rennt að þeim – ánamaðkinum.
Laxarnir á Breiðunni tóku
hinsvegar flugur, enda hefur
hún verið gerð að hreinu flugu-
veiðisvæði. „Mér finnst Breiðan
í Blöndu líka vera einhver falleg-
asti fluguveiðistaður landsins,
þar er gaman að þenja tvíhend-
una og þegar laxinn gengur af
krafti getur verið ótrúlega mikið
líf þar og laxar stökkva út um
allt,“ segir hann.
„Pattaralegir
tveggja ára“
LAXINN MÆTTUR Í BLÖNDU
Lögreglan á
höfuðborgar-
svæðinu fann
fíkniefni við
húsleit á
tveimur stöð-
um í Reykja-
vík fyrir
helgina.
Karl á þrí-
tugsaldri var
handtekinn í
íbúð fjölbýlis-
húss í Breið-
holti en grun-
ur lék á að
kannabisefni
væru seld þaðan. Mikla kannabis-
lykt lagði frá íbúðinni en innandyra
fundust um 170 grömm af marijú-
ana í söluumbúðum.
Lögreglan lagði sömuleiðis hald
á tæplega 50 grömm af marijúana í
söluumbúðum í kjallaraíbúð í
Vesturbænum. E-töflur fundust
einnig á staðnum en gestkomandi
maður í íbúðinni var handtekinn í
þágu rannsóknarinnar. Húsráðand-
inn var hins vegar fjarstaddur en
hann var kallaður á vettvang og
yfirheyrður.
Lögreglu höfðu borist tilkynn-
ingar um tíðar mannaferðir í íbúð-
ina á öllum tímum sólarhrings og
þegar hún mætti á vettvang lagði
mikinn kannabisþef frá íbúðinni.
Morgunblaðið/Júlíus
Fíkniefni fundust
við húsleit í tveimur
íbúðum í borginni