Morgunblaðið - 06.06.2012, Page 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 2012
S HELGASON
steinsmíði síðan 1953
SKEMMUVEGI 48 ▪ 200 KÓPAVOGUR ▪ SÍMI: 557 6677 ▪ WWW.SHELGASON.IS
SAGAN SEGIR SITT
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Framhaldsskólar sem bjóða upp á
verknámsbrautir, s.s. í málm- og vél-
tæknigreinum og byggingargrein-
um, leita ýmissa leiða til að laða ungt
fólk í verknámið. Mikill skortur er á
fagmenntuðu fólki í málmiðnaði og
allt of fáir ljúka námi í þessum grein-
um að mati flestra, en þessa er líka
farið að gæta í byggingargreinum
eftir að samdráttarskeiðið hófst í
kjölfar bankahrunsins.
„Við finnum fyrir því í öllum skól-
um að það er dvínandi aðsókn í bygg-
ingargreinar,“ segir Ársæll Guð-
mundsson, skólameistari Iðnskólans
í Hafnarfirði, og tekur sem dæmi að
fækkað hafi nemendum sem stunda
nám í pípulögnum.
Iðnskólanum í Hafnarfirði hefur
þó tekist að fá rúmlega 100 nemend-
ur til að leggja stund á nám í málm-
iðngreinum.
Í vor hófst sérstakt samstarfs-
verkefni Iðnskólans í Hafnarfirði og
fyrirtækja, þ.á m. álversins í
Straumsvík, sem miðar að því að efla
áhuga á námi í málmiðnaði.
Alls níu smiðjur og iðnskólinn tóku
höndum saman og birtu auglýsingar
þar sem nemendum sem koma til
náms í málmiðngreinum er tryggð
sumarvinna næsta sumar í þessum
smiðjum. „Þarna erum við að stíga
þetta fyrsta skref sem byggist á
samstarfi atvinnulífs og skóla. Við
vonumst til að þetta verði líka að
veruleika í byggingargreinunum síð-
ar meir þannig að þeir sem koma t.d.
til náms í húsasmíði verði tryggð
sumarvinna í ákveðnum fyrirtækjum
og síðan tæki námssamningur
væntanlega við í framhaldinu,“ segir
Ársæll. Samstarfið hófst með aug-
lýsingum í vor og því er ekki enn
komið í ljós hver árangurinn verður.
Enginn tekið sveinspróf
í málmsuðu í tíu ár
Ástandið er mismunandi eftir
greinum. Eins og fram kom í
Morgunblaðinu í gær hafa verið fáir
nemendur í málmiðngreinum að vél-
virkjun þó undanskilinni, sem hefur
notið vinsælda. Þess finnst vart
dæmi á umliðnum áratug að nemandi
hafi tekið sveinspróf í málmsuðu.
Stjórnendur Iðnskólans í Hafnar-
firði hafa ákveðið að bregðast við
þessu til að laða nemendur að námi í
málmsuðu og lögðu í fyrradag inn
umsókn hjá mennta- og menningar-
málaráðuneytinu um að fá að þróa
sérstaka námsbraut í málmsuðu.
Að sögn Ársæls er hugmyndin sú
að endurhanna námsbrautina og
bjóða upp á styttri námsbraut fyrir
nemendur sem vilja læra málmsuðu
enda bendir hann á að veruleg eftir-
spurn er eftir starfskröftum þeirra í
málmsmiðjum.
Ársæll segir skólann reyna eftir
fremsta megni að halda úti verk-
námsáföngum þó fáir nemendur
skrái sig í þá. Mikilvægt sé einnig að
gæta þess að verkþekking deyi ekki
út. ,,Við höfum til dæmis í vetur verið
með einn nemanda í tréskipasmíði.
Kennarinn hans, sem er tréskipa-
smiður, er orðinn 83 ára en hann býr
yfir þessari þekkingu. Við megum
ekki týna þessum verkhefðum
niður.“
Sextán nemendur luku námi af
málm- og véltæknisviði Borgarholts-
skóla í vor. Boðið er upp á nám í
blikksmíði, rennismíði, stálsmíði og
vélvirkjun auk málmsuðubrautar.
Það gefur augaleið að of fáir nem-
endur ljúka námi í þessum iðngrein-
um að mati Aðalsteins Ómarssonar,
kennslustjóra málm- og véltækni-
greina við skólann.
Brýnt er að breyta
ímyndinni sem loðir
við margar málm-
tæknigreinar til að laða
að nemendur en at-
vinnumöguleikar eru
vissulega til staðar,
að sögn hans.
Reynt að laða fólk í verknámið
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Eftirspurn Í dag starfa á fimmta þúsund manns í málmiðnaði en þörf er á miklu fleiri fagmenntuðu fólki, ekki síst í álverum.
Dvínandi aðsókn í byggingargreinar Iðnskólinn í Hafnarfirði sækir um leyfi til að þróa námsbraut í
málmsuðu Reynt að efla áhuga á málmiðnaði með samstarfi við fyrirtæki sem lofa sumarstörfum
Svanhildur Björk Gísladóttir út-
skrifaðist sem rennismiður frá
Borgarholtsskóla í vor.
Hún segist ekkert hafa þekkt til
rennismíði þegar hún byrjaði í
skólanum. ,,Ég ætlaði fyrst í bíla-
málun. Fór svo að vinna við hana
og fannst hún ekki nógu spennandi
en prófaði áfanga í rennismíðinni í
grunndeildinni og fannst það rosa-
lega skemmtilegt nám,“ segir hún í
samtali við Morgunblaðið.
Svanhildur flutti ræðu útskrift-
arnema á útskriftarhátíð Borgar-
holtsskóla á dögunum og sagði
verknámið ekki síður mikilvægt en
bóknámið, því hvorugt geti án hins
verið.
„Fólk er oft að metast um hvort
sé mikilvægara að hafa bóklega
menntun eða verkmenntun og hef
ég oftar en ekki heyrt annars vegar
þá skoðun að bóknámsnemendur
séu að læra að verða ekki neitt en
verknámsnemendur séu að læra að
verða eitthvað og svo hins vegar
að bóknám sé miklu merkilegra en
verknám. En staðreyndin er sú að
ef við hefðum ekki hvort tveggja
væri ekkert hægt að gera,“
sagði hún.
Svanhildur minnti á að
þegar bóklærði arkítektinn
er búinn að hanna flott hús
kemst hann ekkert lengra
nema hafa verkmenntaða smiðinn
til að byggja húsið.
„Ekki væri heldur verra fyrir
arkítektinn að hafa einhverja verk-
lega þekkingu til að vita hvort hug-
myndir hans eru framkvæman-
legar eða ekki og almennt er fólk
miklu meira sjálfbjarga ef það hef-
ur einhverja verkþekkingu. Þess
vegna ætla ég að taka þetta skref-
inu lengra og verða á endanum
bæði verkmenntuð og bók-
menntuð, en í framtíðinni stefni ég
á að klára tæknifræði eða verk-
fræði í háskólanum,“ sagði Svan-
hildur í ræðunni.
Á meðfylgjandi mynd má sjá
taflmenn sem voru lokaverkefni
Svanhildar og Sigurðar Brynjars-
sonar í rennismíðinni.
ÚTSKRIFAÐIST SEM RENNISMIÐUR FRÁ BORGARHOLTSSKÓLA
„ Rosalega skemmtilegt nám“
Fjöldi nemenda í grunn-
námi í málm- og rafsuðu
1997 20
1998 16
1999 12
2000 4
2001 12
2002 11
2003 16
2004 14
2005 2
2006 2
2007 0
2008 0
2009 0
2010 0
2011 0
Heimild: Hagstofa Íslands
Fjöldi nemenda í
grunnnámi í bygginga-
og mannvirkjagreinum
1997 132
1998 151
1999 155
2000 199
2001 206
2002 213
2003 302
2004 284
2005 287
2006 353
2007 354
2008 282
2009 233
2010 172
2011 111
Heimild: Hagstofa Íslands
Ferðafélag Árnesinga verður með
ferð í fuglafriðlandið í Flóa í sam-
vinnu við Fuglavernd miðvikudag-
inn 6. júní kl. 20:00.
Jóhann Óli Hilmarsson fugla-
fræðingur mun leiðbeina þátttak-
endum um friðlandið. Safnast verð-
ur saman í bíla við Samkaup á
Selfossi klukkan 20:00 stundvís-
lega. Þátttakendur eru minntir á að
taka sjónaukann með.
Skoðunarferð um
fuglafriðland í Flóa
Grasagarður Reykjavíkur ræktar
fjölmargar plöntur sem eiga upp-
runa sinn á skógarsvæðum tempr-
aða beltisins nyrðra. Á fimmtudag
kl. 20 verður skógarbotninn skoð-
aður með Jóhönnu Þormar garð-
yrkjufræðingi og Hirti Þorbjörns-
syni forstöðumanni garðsins.
Gangan hefst við aðalinngang-
inn. Þátttaka ókeypis og allir eru
velkomnir.
Skoðunarferð um
Grasagarðinn