Morgunblaðið - 06.06.2012, Qupperneq 39
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 2012
Beethoven-hringurinn svo-nefndi í umsjá finnskastjórnandans HannusLintus (44) hófst sl. des-
ember með nr. 1-3 og 4-5. Þriðji
hlutinn rann upp á föstudag með
nr. 6 og 7, og lýkur honum með nr.
8 og 9 á tvíteknum tónleikum
fimmtu- og föstudag.
Með því að ódauðlegar hljóm-
kviður Beethovens hafa, óhætt að
segja, sett tóngreininni viðmiðunar-
grundvöll alla 19. öld (sumir segja
jafnvel fram á okkar tíma) er að
mörgu leyti verjandi að fremja slíka
heildarúttekt á einum starfsvetri. Í
það minnsta á 3-4 árum, líkt og
kann raunar að hafa verið gert að
nánar ókönnuðu. Fyrir nú utan hið
rekstrarlega gagn, þar eð enginn
annar sinfóníuhöfundur fyrr né síð-
ar laðar fleiri hlustendur að hljóm-
leikahúsum. Að því ógleymdu að
varla hefur nokkurt annað tónskáld
jafnsnemma auðsýnt jafnfjölbreytta
efnismeðferð, þar sem nánast hver
einasta sinfónía, a.m.k. frá og með
Eroicu, er samin út frá sérstakri
nálgun eða „konsepti“.
Pastoral- eða Sveitasinfónían
(1808) í F er oft flokkuð sem „pró-
grammtónlist“ – jafnvel þótt
Beethoven hafi sjálfur undirstrikað
að hún byggðist frekar á tilfinn-
ingum fyrir guðsgrænni náttúru en
eiginlegri forskrift. Árni Heimir
Ingólfsson nefndi í tónleikaskrá
nokkur lítt þekkt en forvitnileg
dæmi um slíkar tónsmíðar frá dög-
um Haydns og Beethovens, en þó
ekki eldri fiðlukonserta Vivaldis er
beinlínis eru samdir við efnislýsandi
sonnettur, líklegast eftir rauða
klerkinn sjálfan. Heimasíða SÍ
minntist á notkun hæga þáttarins í
nýlegri kvikmynd, The King’s
Speech, og fer skv. því að slá í Fan-
tasia-teiknimynd Disneys frá 1940
er nýtti enn fleira úr verkinu sem
bakgrunn við forngríska sveitasælu
goða og hálfgoða.
Það fyrsta sem sló mann við með-
ferð Lintus var hið létta og loft-
kennda yfirbragð, einkum miðað við
þunghentari stjórnendur aftan úr
æskuárum eins og Beecham og
Klemperer. Var ekki laust við að
blessuð upprunastefnan, með smá-
endurómi af Sturm und Drang,
hefði haft einhver áhrif, en sízt til
hins verra. Í samræmi við það var
strengjasveitin nokkru fáliðaðri en
venjulega og svo sem ekki í fyrsta
skipti. Eini gallinn á því var jafn-
vægistengdur, enda eru nútímatré-
blásarar mun sterkari en áður var.
Fyrir vikið vildi fíngerðasta
strengjavíraverkið stundum kafna,
því þó að salurinn skili ofurveikum
leik afburðavel, þá gildir það ekki í
slíkri samkeppni. Það sem þó
heyrðist úr strengjum var í þokka-
bót oft fullóskýrt og ósamtaka, og
átti það líka við síður viðkvæma
Sinfóníu nr. 7. Annars var margt
dáfallega leikið í Sexunni; alveg sér-
staklega undrablíð andrá í lok
fínalsins.
Sjöan (1813) – „upphafning dans-
ins“ eins og Wagner kallaði (hann
ku hafa stigið hana í Feneyjum við
undirleik Liszts!) – skaraði fram úr
í flutningi. Burtséð frá ískrandi
fölskum lokahljómi luðra í I. náði
sveitin almennt betur saman og
snerpan var hvassari. Samt gafst
líka ráðrúm til saumnálahljóðs upp-
hafs á fúgatóinu í II., er hlaut að
vera dulúðugasta útgáfa þess arna í
manna minnum. Og veitti svosem
ekki af fyrir hjakkkenndar orku-
hleðslurnar í vorblótsdansi loka-
þáttar þar sem Beethoven hnyklar
vöðvana fast að mörkum hins bæri-
lega. Að öllu samanlögðu voru þetta
hinir ánægjulegustu tónleikar, er
sýndu stundum nýjar hliðar á göml-
um stríðsfákum.
Sinfóníutónleikarbbbmn
Beethoven: Sinfónía nr. 6 og 7. Sinfón-
íuhljómsveit Íslands, stjórnandi Hannu
Lintu. Eldborg í Hörpu, föstudaginn 1.
júní kl. 19:30.
RÍKARÐUR Ö.
PÁLSSON
TÓNLIST
Morgunblaðið/Ómar
Léttleiki „Það fyrsta sem sló mann við meðferð Lintus var hið létta og loft-
kennda yfirbragð,“ segir í dómi um tónleika Sinfóníuhljómsveitarinnar.
Nýjar hliðar á
gömlum stríðsfákum
Verkið Frosting, lifandi innsetning
þar sem danslist, tónlist og mynd-
list tvinnast saman, eftir dans-
listakonuna Ragnheiði Bjarnason,
var frumsýnt í Tókýó 2. júní sl. í
galleríinu xyz collection. Til stend-
ur að sýna verkið í ágúst hér á
landi. Verkið samdi Ragnheiður
en um tónlist og hljóðmynd sá
Benjamin Dousselaere og Ásgerð-
ur Gunnarsdóttir er dramatúrg.
Um verkið segir Ragnheiður að
tilgangur þess sé að skapa heim
sem taki á efniviðnum glassúr,
„hvernig við notum glassúr til að
húða beiskari hluti og gera þá
sæta og fallega“, eins og hún
orðar það. Í því kanni hún hvað
liggi undir glassúrnum og leiði
það fram í dagsljósið. Svara sé
leitað við ýmsum spurningum,
m.a. hver sé glassúr nútímans,
hvers vegna fólk sækist eftir því
að fegra raunveruleikann og hvar
hin óraunverulega fegurð og hið
óraunverulega líf liggi. „Hver er
þá raunveruleikinn á bak við feg-
urðina? Er hann ljótur? Því að
hlaða sykri á allt sem kemur fyrir
í okkar lífi? Erum við ekki nógu
sæt?“ spyr Ragnheiður og leitast
við að svara þeim spurningum.
Markmiðið sé að kanna hvort ein-
staklingurinn hafi stjórn á því
sjálfur hvort hann noti glassúr í
daglegu lífi eða hvort hann stjórn-
ist af samfélagslegum öldum og
bylgjum.
Ragnheiður Bjarnason útskrif-
aðist frá dansbraut Listaháskóla
Íslands árið 2009 og er ein stofn-
enda listhópsins Samsteypunnar
sem sett hefur upp ný dansverk
árlega, allt frá árinu 2006. Hún
hefur unnið sjálfstætt frá útskrift
og eru verk hennar þverfagleg, í
þeim blandast saman dans, hreyf-
ingar, innsetningar og sjónlist.
Ragnheiður kom m.a. að verkinu
Hvað býr í Pípuhattinum, lifandi
innsetningu sem ætluð er börnum
og var tilnefnd til Grímuverðlauna
sem barnaverk ársins í fyrra.
helgisnaer@mbl.is
Glassúr Dansarinn og danshöfund-
urinn Ragnheiður Bjarnason.
Hvað er undir
glassúrnum?
Verkið Frosting frumsýnt í Tókýó
Morgunblaðið/Golli
Les Misérables - Vesalingarnir (Stóra sviðið)
Fös 8/6 kl. 19:30 Fös 15/6 kl. 19:30 Fös 22/6 kl. 19:30
Lau 9/6 kl. 19:30 Lau 16/6 kl. 19:30
Sun 10/6 kl. 19:30 Fim 21/6 kl. 19:30
Níu Grímutilnefningar! Allra síðasta sýning 22. júní.
Dagleiðin langa (Kassinn)
Lau 16/6 kl. 19:30 Allra
síð.sýn.
Eitt magnaðasta fjölskyldudrama 20. aldarinnar. Allra síðasta sýning 16. júní.
Afmælisveislan (Kassinn)
Lau 1/9 kl. 19:30 Sun 2/9 kl. 19:30
Eitt vinsælasta verk Pinters. Sýningar í september komnar í sölu.
Kristján Eldjárn - minningartónleikar (Stóra sviðið)
Fim 7/6 kl. 20:00
Allur ágóði rennur í minningarsjóð Kristjáns Eldjárn
Gamli maðurinn og hafið (Kúlan)
Fös 8/6 kl. 19:30 Sun 10/6 kl. 19:30 Fös 15/6 kl. 19:30
Lau 9/6 kl. 19:30 Fim 14/6 kl. 19:30
Brúðusýning fyrir fullorðna eftir Bernd Ogrodnik. Listahátíð 2012
Hringurinn - athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins
(Kassinn)
Fös 22/6 kl. 19:30
Aeðins þessi eina sýning!
568 8000 | borgarleikhus.is
Rómeó og Júlía – síðustu sýningar
Svar við bréfi Helgu (Nýja sviðið)
Mið 6/6 kl. 20:00 19.k Lau 9/6 kl. 20:00 20.k
Fös 8/6 kl. 20:00 aukas Sun 10/6 kl. 20:00 lokas
Byggt á metsölubók Bergsveins Birgissonar. Hrífandi saga um þrá og eftirsjá
Rómeó og Júlía (Stóra svið )
Fös 8/6 kl. 20:00 Sun 10/6 kl. 20:00 aukas
Ógleymanleg uppfærsla Vesturports. Síðustu sýningar!
Tengdó (Litla sviðið)
Fös 8/6 kl. 20:00 lokas
Sönn saga. Í samstarfi við CommonNonsense. Síðustu sýningar!
Beðið eftir Godot (Litla sviðið)
Lau 9/6 kl. 20:00 lokas
Tímamótaverk í flutningi pörupilta