Helgafell - 01.04.1942, Síða 28

Helgafell - 01.04.1942, Síða 28
66 HELGAFELL mundur áttu báðir ætt að rekja til Svíaríkis, höfuðlands Freysdýrkunarinnar. Nú má það ljóst verða, hvers vegna arfsagnaval og önnur menningarminni í Vatnsdal og Eyjafjarðarsveit eru frábærlega áþekk. Skal nefna hér nokkur dæmi: Ingimundur dvelur fyrsta vetur sinn á Norðurlandi í Víðidal. ,,En er voraði og nokkuð leysti snjó úr hlíðum, þá mælti Ingimundur: Forvitni er mér á að vita, ef nokkrir menn gengi á hátt fjall og sæi ef nokkuð væri snjóminna að sjá í aðra staði“. Þeir gerðu svo og sáu ,,fjöll snjólaus í land- suður“ og sögðu Ingimundi: — ,,en hér er sem hin sama hríð sé ávallt er vér erum, og kunnum vér það að sjá, að þar eru landskostir miklu betri“. Ingimundur svarar: ,,Þá er hóf að og væntum enn, að nokkuð grænt mun fyrir liggja. Svo mun hlut til draga“. Snemma um vorið fluttist Ingimundur úr Víðidal til Vatnsdals. Helgi hinn magri og fylgdarlið hans bjó fyrsta veturinn á utanverðri Árskógsströnd. ,,Þeir fengu vetur mikinn svo að við sjálft var, að kvikfé þeirra mundi deyja, það er þeir höfðu. En um vorið gekk Helgi upp á Sólar- fjall og sá, að svartara var inn að sjá miklu til fjarðarins. Bar hann það á skip allt er hann átti“ og hélt þangað. 1 búfærslu Helga að Kristnesi varð kona hans, „Þórunn hyrna, léttari í Þórunnarey í Eyjafjarðarkvíslum, og var þá fædd Þorbjörg hólmasól“. Þannig fór einnig Vigdísi, konu Ingimundar. Þegar þau hjónin og lið þeirra ,,komu að Vatnsdalsá, þá mælti Vigdís: Hér mun ég eiga dvöl nokkra, því að ég kenni mér sóttar. Ingimundur svarar: Verði það að góðu. Þá fæddi Vigdís meybarn. Hún var Þórdís kölluð. Ingi- mundur mælti: Hér skal Þórdísarholt heita. Síðan sótti liðið upp í dalinn og sá þar góða landskosti að grösum og skógum. Var fagurt um að litast. Lyfti þá mjög brúnum manna". Meybarnsfæðingin við Vatnsdalsá hafði gefið fögur fyrirheit, sem rættust fyrr en varði. Það var í Víðidal, að mönnum Ingimundar virtist ,,sem hin sama hríð sé ávallt". Á Árskógsströnd lá kvikfé Helga við felli sökum hörku útmán- aðanna. Á þessum stöðum reisa landnemarnir, Helgi og Ingimundur, byggð í fyrstu. Þeim fór eins og Gnúpa-Bárði, bróður Ásbjarnar, ættföður Freys- gyðlinganna. Hann leitaði ekki skjóls fyrir hinni norðlenzku hafátt síðvetr- arins, fyrr en hann hafði búið um hríð að Lundarbrekku. ,,Þá markaði hann, að betri voru landviðri en hafviðri, og hann ætlaði betri landskosti fyrir sunnan heiðar". Fluttist hann síðan til Fljótshverfis. Veðurfræðiathugun þessi sýnir, að ættir Bárðar, Helga og Ingimundar hafa lengi dvalið í landi, þar sem hafáttin færði mönnum þíðviðri og mildar regnskúrir, er eyddu vetrarríkinu og ruddu vorgróðrinum braut. Goð frjóseminnar réðu fyrir skini sólar, regni og vindum. Dýrkendur þeirra velja sér hérlendis í fyrstu búsetu fyrir opnu hafi. Á Norðurlandi verður þeim hált á því búsetuvali. Þar færði hafáttin þeim ekki blíðviðri og snemmæran vorgróður, heldur kulda og kröm. Endurminn- ing hinna sáru vonbrigða frjósemisdýrkendanna, sem hugðu sig heillum

x

Helgafell

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.