Helgafell - 01.04.1942, Page 31
HEINRICH LERSCH:
BRÆÐUR
í grennd við gryfju vora
i gaddavírnum hékk
eitt lík, er sviða af sólu
og svala af döggum fékk.
Ég horfði á líkið löngum,
unz laust í huga minn
þeim gruni, er óx og efldist:
Þetta er hann hróðir þinn!
Og svo með sömu vissu
ég sá hann langa hrið,
já, heyrði hans róm og hlátra
frá hamingjunnar tið.
Og grát hans gegnum svefninn
ég greindi marga nótt:
Æ, gazt f)ú, bróðir góður,
þá gleymt mér svona fljótt?
— Unz út i eldhríð kúlna
ég einn að kveldi rann,
°g greip hann, bar hann, gróf hann,
— mér gjórókunnan mann!
En gleggri en glapsýnt augað
var grunur hjarta mins:
Hver sá, er fallinn sérðu,
ber svip hans bróður þins.
M. Á. íslenzkaði.
irnir 155. Hér munu kvennastaÖirnir vera 19,4%, en annars staðar á landinu
8,2%. Eitt út af fyrir sig gefur þetta ljósa bendingu um tengsl saurbýla, skáld-
menntar og uppruna hinna staerri kvennastaða.
1 saurbýlahreppum áttu heimkynni þessi hirðskáld: Hofgarða-Refur í
Staðarsveit og líklegast einnig fóstri hans, Gissur gullbrárskáld, Kormákur
)g Bersi Skáld-Torfuson í Torfustaðahreppi, Hallfreður vandræðaskáld í
Ásshreppi. Þorvaldur Hjaltason í Hólahreppi, Kolgrímur litli og Sneglu-
Halli í Holtshreppi, Þorleifur Rauðfeldarson, Bölverkur og Þjóðólfur Arn-
órssynir í Svarfaðardalshreppi, Eilífur Guðrúnarson í Saurbæjarhreppi, Skafti
Þóroddsson og Steinn sonur hans í Olfushreppi. Auk þessara 14 hirðskálda
áttu ætt að telja til saurbýlahreppa: Einar skálaglam, Stúfur blindi, Steinn
Herdísarson, Kálfur Mánason og Þórarinn Skeggjason. Ekki er kunnugt um
heimkynni þeirra sjálfra. En þegar miðað er við búsetu nánasta forföður
hvers þeirra, teljast Einar, Steinn og Stúfur til Helgafellssveitar. Kálfur til
Vindhælishrepps og Þórarinn til Villingaholtshrepps. Þannig koma 19 hirð-
skáld á saurbýlahreppana. Ef hliðsjón er höfð af hreppafjölda landsins, hefði
aðeins mátt búast við fimm hirðskáldum af 33 í saurbýlahreppum. Má nú
glöggt greina, í hvers konar umhverfi hin fornnorræna skáldmenning hefur
þróazt. Með jrjósemisdýrkendum, sem kyengúði hylltu, er hún til Islands
\omin.
Barði Gúðmundsson.