Helgafell - 01.04.1942, Page 37

Helgafell - 01.04.1942, Page 37
SUMARNOTKUN HITAVEITUNNAR 73 sakað sé, kvort ræktun í áburðarvökva eigi ekki erindi hingað. í landi eins og Kaliforníu t. d., þar sem sumarblíða er með afbrigðum, þykir mönnum margborga sig að nota þessa aðferð í samkeppni við venjuleg- ar ræktunaraðferðir. Gróðurhúsarækt- un hér á landi er skammt á veg komin, enda ungur atvinnuvegur. Þegar skipu- lagsnefnd samdi skýrslu sína, voru gróðurskálar hér á landi taldir um /2 hektari að flatarmáli. En um svipað leyti áttu Danir gróðurskála, sem voru um 225 ha. að flatarmáli. Veðurfar þar er allt annað en hér. Þar vaxa tómatar, epli, perur og plómur undir beru lofti. f Danmörku er enginn jarðhiti, og engin kol eru þar í jörðu, en samt eiga Dan- ir 450 sinnum stærri gróðurhús en við, og eru þó aðeins um 35 sinnum mann- fleiri. Þetta sýnir bezt, hve skammt við erum á veg komnir í þessu efni. Hitaveitan leggur stórkostlegt tækifæri upp í hendur okkar, þar sem búið er að beizla hitaorkuna og hægt er að veita henni beint í gróðurhúsin. Þótt hér hafi aðeins verið rætt um notkun heita vatnsins á sumrin til rækt- unar, er hægt að nota orku þess til margra annarra hluta, því að tæplega er gerandi ráð fyrir svo miklum fram- kvæmdum, sem hér hefur verið rætt um. Sumrin hér eru ærið óþurrkasöm, og heyfengur bænda hrekst oft svo, að næringargildi heysins er mjög rýrt. Hér í nágrenni Reykjavíkur er mikið af ræktuðum löndum, og nægir að nefna Korpúlfsstaði, Blikastaði og jarðirnar þar í grennd sem dæmi. Þegar hey eru mjög hrakin, er mikil þörf á fóður- bæti, ef gripir eiga að gera gagn. Það er sannað mál, að C-bætiefnismagn mjólkur fer mjög eftir fóðri kúnna. Fái þær grænfóður, er mjólkin miklu auð- ugri að C-bætiefni. Reykvíkingar fá mikið af mjólk úr nágrenni bæjarins, og þeim er áhugamál, að hún sé sem mest og bezt. Víða erlendis tíðkast sá siður að vél- þurrka hey. Hafa verið byggð þurrk- hús af ýmissi gerð bæði í Svíþjóð og Englandi í þessu skyni. Líklegt má telja, að reynsla sú, sem fengin er, einkum í Svíþjóð, geti orðið okkur til hins mesta gagns í baráttunni við ó- þurrkana. Þar sem jarðhiti er nægur í nánd við víðáttumikil, ræktuð landsvæði, virð- ist sjálfsagt, að byggð séu hús til að þurrka heyin. Nú vill svo vel til, að að- allögn hitaveitunnar liggur fram hjá hinum miklu ræktarlöndum jarða þeirra, er nefndar voru hér að fram- an, og færi vel á því, að hitaveitan léti í té hitaorku til að þurrka sem mest af heyjum þeirra bænda, sem hafa tök á að færa sér hana í nyt samkvæmt legu jarðanna. Þess sést oft getið, að bú- skapur í nágrenni Reykjavíkur beri sig illa, meðal annars vegna mikilla kaupa á fóðurbæti. Ef hægt væri að stuðla að því, að fóðurgildi heyjanna yrði meira með því að hraðþurrka grasið af lján- um, væri vel farið. Reykvíkingar fengju þá meiri og betri mjólk héðan úr nágrenninu, en bændur gætu efa- lítið sparað sér drjúgum fóðurbætis- kaup og fólkshald. í þessu sambandi er vert að drepa á hinar merku tilraunir hr. Ólafs Jóns- sonar, framkvæmdastjóra Ræktunar- félags Norðurlands, um ræktun belg- jurta. Hann hefur sýnt fram á, að auka má til muna heyfenginn með því að rækta saman belgjurtir og gras, eða belgjurtir og hafra. Með því að rækta saman hvítsmára og gras, varð upp- skeruaukinn 1600—2000 kg af heyi pr. hektara á ári eftir 4—5 ár, en auk þess

x

Helgafell

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.