Helgafell - 01.04.1942, Síða 48

Helgafell - 01.04.1942, Síða 48
84 HELGAFELL Sanda-Gerði vera! Hún fer ekki að leggjast afvelta og láta svo dúndra sér ofan í gröfina, þó að hún fái sting und- ir herðarblað.... En mikill bölvaður afglapi get ég annars verið ! Gerður hló. Það sá enginn annað en að henni líkaði vel. Og Helgi bætti við: — Ojæja, ég hélt það svona hálf- gert, að þú mundir ekki kæra þig um það, að ég hætti við hrossareksturinn og léti vinnumennina á Núpi pranga þeim út, hrossunum. Það hefur ekki gott af slíku, Núpsbúið, og komdu nú inn í herbergið okkar, Gerður mín. En Gerður lét ekki að stjórn. Hún hló og brá á gaman. — O, það er nú hægt að þreyja Þorrann og Góuna. Ætli þú viljir ekki láta pússa okkur bráðum saman! Og það var enginn vegur : í herberg- ið fór hún ekki með honum. Helgi kom aftur eftir nokkra daga — og enn og í fjórða sinn, en allt kom fyrir ekki. Gerður talaði við hann, og var létt í máli og gamansöm, en henni varð ekki þokað. Hún hélt svo áfram þeirri venju frá um vorið að vera mest inni og leggja stund á handavinnu, enda var það auðvitað ærið margt, sem hún þurfti að sauma í búið, — og ekki brá hún sér í karlmannsbuxur eða á hestbak og hafði ekki gert frá því hún stóð upp úr legunni. Á miðjum slætti kom Helgi enn á ný. Þá sagði hann: — Við giftum okkur fyrir leitir. — Það má vel vera, sagði Gerður. Svo reið þá Helgi af stað að bjóða í veizluna. Það átti ekki að verða nein ómynd á henni. Hann bauð öllum helztu bændum í tveimur sýslum, höfðingjunum af Bakkanum og all- mörgum fyrirmönnum úr Reykjavík — og svo auðvitað öllu nánasta skyld- fólki þeirra hjónaefnanna, meðal ann- ars foreldrum mínum og okkur syst- kinunum, því að móðir mín og Þórður á Núpi voru systrabörn. Sandahjónin og Gerður létu það eftir, að veizlan yrði haldin á Núpi, því að þar voru húsakynnin stærri en á Söndum, og svo var ekki búið að hirða í stærstu hlöðuna á Núpi, og hún var tjölduð innan og sett í hana fjalagólf. Þar átti að stíga dansinn, og var ráðinn harmonikuleikari frá Reykjavík. Brúðkaupsdagurinn rann upp. Það var indælt veður, skýjað loft, en þurrt og hlýtt og stillilogn. Þau Sandahjónin fóru snemma morguns niður að Núpi, því að þau þurftu að hjálpa Þórði og konu hans með sitthvað viðvíkjandi undirbúningi veizlunnar og móttöku gesta. En Gerður kvaðst ekki koma fyrr en seinna. Eins og þú sjálfsagt veizt, er Núpur kirkjustaður, svo að ekki þurfti nú að ríða til kirkjunnar. Boðsfólkið dreif að úr öllum áttum, strax upp úr hádegi, og undireins hófst gleðskapur, því að ekki var skortur á ölföngum, sterkum og veikum, beizkum og sætum. Ég strákurinn, hafði gaman af að ganga fram og aftur og hlusta á mál manna, því að margt bar á góma, og ég var í engum vafa um það, að þetta yrði sá merkilegasti dagur, sem ég hefði lifað. Helgi sat í stofu með heldri gestum.

x

Helgafell

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.