Helgafell - 01.05.1942, Blaðsíða 13

Helgafell - 01.05.1942, Blaðsíða 13
DAGUR NOREGS 101 Þá verða fjöll yðar brött þeim, sem Noregi brugðust. Þá bergmálar Ja, vi elsker um heiðar og firði. Og máske verður þá einhverjum ljósara en áður, að ættjörð er meira en þrjátíu peninga virði. Og aldrei hefur fallegra föðurland risið frjálsara og stærra við augum hraustari sona en þeirra, sem flýðu sitt land, og nú leita það uppi um langan veg í hillingum minninga og vona. IV Og vitið, Norðmenn, að það eru á þessum degi þúsundir íslenzkra hjartna, sem með yður kalla til himins á Drottins náð, að nálgist sá dagur, er Noregi auðnast að láta hlekkina falla. Og þó að milli ættjarða vorra um aldir úthaf gleymsku og þagnar á stundum flæddi, sá spölur gerðist skemmri, er skyldleikans kenndi, sem skar oss í hjartað þann dag, er Noregi blæddi. Og biðjum þann Guð, er fylgt hefur feðrum vorum um ferlega skóga, úthöf og jökulbreiður, að lönd vor gangi ávallt í arf til niðja, sem aldrei semja við neinn um trú sína og heiður. Og megi aftur elda af norrænum morgni og eflast vináttubönd með frændum og grönnum. Og þá skal sannast á þjóðum íslands og Noregs: Vér þurftum hvorugir stríð til að verða að mönnum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Helgafell

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.