Helgafell - 01.05.1942, Blaðsíða 56

Helgafell - 01.05.1942, Blaðsíða 56
142 helgafell vera nein aðalpersóna í þeirri íslandskvikmynd, sem hann hefur leikið í nú um rúmlega sextíu ára skeið, aðalpersóna, sem hlyti að finnast hún hafa skapað allverulegan hluta af veröldinni og virðast það svo bráðnauðsynlegt, að sýna okkur á henni sín sérstæðu fingraför. Theódór hefur verið og fundið sig vera einn meðal hinna skrúðlausu — áður vaðmáls- eða nankinsbúnu, en nú samfestingsklæddu þúsunda á sviðinu, og í rauninni hefur hann ekki liðið við þetta hlut- verk, heldur þrátt fyrir allt notið þess, notið þess, að finna blóðið streyma um æðarnar mis- jafnlega hratt eftir hreyfingum hans sjálfs eða utanaðkomandi áhrifum, notið harma og erfiðis, engu síður en skammvinnrar og fátæklegrar vel- gengni, notið að skynja iðandi líf atburðanna, breytileik umhverfisins og mismunandi svip- brigði, málhreim og tjáningu meðleikenda sinna — notið þess beinlínis að vera til á sviðinu í blíðu og stríðu, oftast í stríðu, séð frá almennu sjónarmiði. Sumir munu verða talsvert hissa á því, þegar þeir lesa þessa ævisögu, hve lítið verður vart við sársauka í sambandi við hina ömurlegu aðstöðu höfundarins til ritstarfa. En mér virðist liggja nærri að álykta í sögulok, að Theódór hafi notið í svo ríkulegum mæli hinna ýmsu fyrirbrigða og viðhorfa lífsins, að honum hafi í rauninni veitzt í þeirri nautn uppbót alls, sem hann hefur farið á mis. Og sannarlega læð- ist hún að manni, við lestur þessarar ævisögu, sú þráláta, en af mörgum illa séða hugsun, að tilgangs lífsins sé ærið oft leitað langt yfir skammt. Er ekki sjálf lífsfyllingin allveigamikill tilgangur? Menn deila um það og hafa deilt, hvað geti með réttu borið heitið bókmenntir. Og það er nógu gaman, að varpa þeirri spurningu til þeirra, sem á hinum bókmenntalega vettvangi veifa sem mælikvarða hári úr tagli Pegasusar eða einkenn- isræmum af stríðskápum pólitískra, lífsspekilegra eða trúarlegra hundraðshöfðingja, hvort þessi ævisaga Theódórs geti talizt til bókmennta. Ég fyrir mitt leyti svara þeirri spurningu hiklaust játandi. Með því einu, að blása anda sinnar djúpu og innilegu lífsnautnar í hversdagsleg at- vik, framsett í hversdagslegri röð, hefur Theódór að mínum dórrii tekizt að skapa bókmenntir. Honum hefur tekizt að láta alla þá lesendur sína, sem ekki eru úr einhverjum sérlega ,,skrítn- um steini“, skynja það sama og hann hefur skynjað og á sama hátt. Og er þetta ekki einmitt takmark allra rithöfunda, hverjar aðferðir og hvert form sem þeir velja sér — og hvernig sem þeim svo lánast að ná takmarkinu? — En eftir á að hyggja: Ég hef ekkert fundið að þessari ævisögu Theódórs. Nei, þarna er annað hvort af eða á. Sá, sem ekki nýtur þess lifandi forms eða formleysis, sem einkennir sög- una frá upphafi til enda, hann fær enga bót sinnar vöntunar, þó að hann lesi aðfinningar frá mér eða öðrum. Hinn, sem fær notið þessarar sögu, þrátt fyrir hversdagsleik, málalengingar og mjög svo takmarkaða notkun höfundar á öllu því, er talizt geti til listtækni, mun ekki finna hjá sér neina þörf fyrir greinargerð vankantanna, heldur miklu frekar spyrja sjálfan sig: Hver er í rauninni orsök þess, að mér finnst þessi bók skemmtileg og jafnvel merkileg? — Og það er sú spurning, sem ég hef leitazt við að svara. Guðmundur Gíslason Hagalín. Sjö töframenn — og einn til Halldór Kiljan Laxness: SJÖ TÖFRA- MENN. Þættir. Heimskringla h. f. — Reykjavík 1942. Verð skinnb. kr. 28.00. Um svipað leyti og Halldór Kiljan Laxness er að ná fertugsaldri, því aldurskeiði, sem flest- um höfundum reynist vænlegast til afkasta, sendir hann frá sér tuttugustu og fyrstu bók sína, og eru þá ekki talin með þau rit, sem hann hefur þýtt eða gefið út. Væri vissulega ástæða til þess, að tímarit, sem telur sig bók- menntalegs eðlis, freistaði að gera nokkra grein fyrir rithöfundarferli H. K. L, við svo merkileg tímamót, en þó þess sé ekki kostur að sinni, væri ef til vill ekki til of mikils mælzt við þá menn, sem telja sér sérstaklega skylt að vernda þjóð sína fyrir honum, að þeir, í fullri ein- lægni og svo lítið beri á, reyni að gera sér ljóst, hvernig umhorfs væri á sviði íslenzkrar skáld- sagnagerðar, ef afreka hans gætti þar hvergi. Þessa síðustu bók sína, Sjö töjramenn, kallar höfundurinn öðru nafni þætti, og má það raun- ar til sanns vegar færa, þó hver þeirra sé að vísu sérstæð heild. Eru sumir þessara þátta ýmist ævintýralegar dulsagnir austan úr löndum, mjög fjarrænar að málfari og blæ, (Fundin Indialönd, Tcmúdjín snýr heim), eða skemmtilegar frá- sagnir af óvenjulegum mönnum, sem höfundur- inn hefur haft kynni af, (Völuspá á hebresJ^u). Aðrir þættirnir eru að formi og gerð hreinrækt- aðar smásögur, (Napóleon Bonaparti, Fyrir- burður í djúpinu), og enn eru aðrir, sem ýmist liggja á takmörkum frásagnar og sögu, (Þórður gamli halti, Osigur ítalska lojtflotans x Reyhja-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Helgafell

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.