Helgafell - 01.05.1942, Síða 20
108
HELGAFELL
bands verkamanna, og Wickström, þótt
þeir Kefðu ekkert til saka unnið. Var
þetta óhæfuverk framið í þeim eina til-
gangi að ógna verkamönnum, svo að
þeir tækju upp vinnu sína aftur. Morð-
in vöktu feikna gremju, m. a. í Sví-
þjóð. Þar kom samúð með Noregi
mjög skýrt í ljós við þetta tækifæri.
Viggo Hansteen var gáfaður lögfræð-
ingur, hugsjónamaður, vinsæll og mik-
ils metinn. Hann var frændi hershöfð-
ingjans Wilhelms Hansteens og átti
ætt að telja til hins fræga stjörnufræð-
ings Christophers Hansteens.
Um sömu mundir var rektor háskól-
ans í Osló, dr. Seip, settur frá embætti
og skömmu síðar fluttur í fangabúðir.
Þar dvelja nú nokkrir aðrir prófessorar
auk hans. Meðferðin á Seip, er hann
var settur í myrkrastofu um mánaðar-
tíma, er eitt af þeim aíbrotum Þjóðverja
í Noregi, sem sætt hefur fordæmingu
meðal allra heiðvirðra manna.
Þann 1. febrúar 1942 gerðu Þjóð-
verjar þá breytingu á stjórn Noregs, að
QUISLING OG Quisling var skipaður
MERKI HANS forsætisráðherra. Fór
valdataka hans fram með hátíðlegri
athöfn í Akershusvirki. Auðvitað verð-
ur hann í öllum aðalatriðum að stjórna
landinu eftir óskum og fyrirskipunum
hinna þýzku yfirboðara sinna. En það
er samt að koma í Ijós í Noregi eins og
víðar, að innlendur harðstjóri er jafn-
vel enn grimmari í atferli sínu en er-
lendir valdránsmenn.
Að þýzkum sið hefur Quisling viljað
láta norsku þjóðina dýrka sig sem
,,leiðtoga“. Þær tilraunir hafa með
öllu mistekizt. A ýmsan hátt hefur
Quisling reynt að stæla þjóðhöfðingja,
m. a. hefur hann látið prenta frímerki
með mynd af sér. Til greiðslu á burð-
argjaldi gildir þetta frímerki 20 aura,
en kostar þó kaupandann 50 aura, og
er 30 aura álagningin ætluð til styrkt-
ar flokksstarfsemi quislinganna. Talan
30 virðist hafa einkennilegt aðdráttar-
afl á svikara, enda hefur frímerkið
hlotið nafnið Júdasarmerkið. Minnir
ÓGÆFUSAM- þessi nafngift á hina
ASTA SKÁLDIÐ beizku fyndni um
aldurhnigna stórskáldið Knut Ham-
sun, sem hefur valdið þjóð sinni þeirri
sorg að skipa sér í röð svikaranna:
Hann hefur ánafnað Þjéðverjum
,,Gróður jarðar“ og ,,Viktoríu“, en
Norðmönnum ,,Sult“.
Svo sem nærri má geta, lætur ekki
maður af Quislings tagi sér nægja, að
vera aðeins leiðtogi Noregs. Hann vill
drottna yfir öllum þeim löndum, sem
hann telur, að lotið hafi yfirráðum
norskra víkinga í fyrndinni, og er ís-
land meðal þeirra og allverulegur hluti
Bretlandseyja. Kemur þetta stefnu-
skráratriði Quislings undarlega fyrir
sjónir þegar þess er gætt, að hér á sá
hlut að máli, er gerzt hefur landráða-
maður og af fúsum vilja hlýðir boði og
banni erlendra yfirboðara, sem þjaka
norsku þjóðina. Það var von að sú
skoðun kæmi fram, að Quisling, flokk-
ur hans og stefnuskrá, væri rannsókn-
arefni, sem frekar ætti heima á sviði
læknisfræði en stjórnvísinda.
MENNINGAR- Quisling hefur nýlega
VÖRN KLERKA gert róttækar ráðstaf-
OG KENNARA anir til þess að ala
æsku Noregs upp í anda nazismans.
Öllum unglingum á aldrinum 10—18
ára er fyrirskipað að ganga í nazistisk
æskulýðsfélög og kennurum lögð sú
skylda á herðar að haga kennslu sinni
samkvæmt boði hinna nýju valdhafa.
Gegn þessu áformi leppstjórnar
Quislings hófu prestar Noregs og kenn-
arar kröftug mótmæli. Sambúðin milli
biskupa landsins og quislinganna var
áður orðin erfið, en er uppeldismálið