Morgunblaðið - 01.09.2012, Side 28
SVIÐSLJÓS
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Mitt Romney, forsetaefni repúblik-
ana í Bandaríkjunum, sýndi á sér
nýjar hliðar í ræðu sinni á flokks-
þinginu í fyrrinótt og leitaðist við að
sýna hvaða mann hann hefur að
geyma eftir að hafa verið gagnrýnd-
ur fyrir að vera stífur, vandræða-
legur í framgöngu og úr tengslum
við almenning.
Þegar Bandaríkjamenn velja á
milli frambjóðenda stóru flokkanna
í forsetakosningum skiptir oft miklu
máli hvorn þeirra þeir telja við-
kunnanlegri, einkum þegar barátt-
an er mjög tvísýn eins og í kosning-
unum árið 2000 þegar George W.
Bush bar sigurorð af Al Gore.
Mörgum kjósendum þótti Bush
miklu viðkunnanlegri en Gore og
síðustu kannanir fyrir flokksþingið
bentu til þess að Romney ætti við
svipaðan ímyndarvanda að etja og
Gore. Í könnun Washington Post
sögðust 40% hafa jákvæð viðhorf til
Romneys og 51% neikvæð. Ekkert
forsetaefni repúblikana hefur komið
svo illa út í slíkum vinsældamæl-
ingum í aðdraganda flokksþings frá
árinu 1984.
Mun fleiri, eða 50%, höfðu jákvæð
viðhorf til Baracks Obama forseta
og 47% neikvæð.
„Þið þurfið að vita meira um
mig,“ viðurkenndi Romney og talaði
m.a. um „skilyrðislausa ást“ fjöl-
skyldu sinnar og 64 ára ástríkt
hjónaband móður sinnar og föður,
fyrrverandi ríkisstjóra Michigan. „Á
hverjum degi gaf pabbi mömmu rós
sem hann lagði á borðið við rúmið
hennar. Þannig komst hún að því
hvað gerðist daginn sem hann dó.
Hún fór að leita að honum vegna
þess að þennan morgun var engin
rós.“
Þetta er einnig fyrsta ræða Rom-
neys í kosningabaráttunni þar sem
hann talar um mormónatrú sína.
Vilja bjarga hjónabandinu
Stjórnmálaskýrendur í Banda-
ríkjunum telja að eitt af meginverk-
efnum Romneys fyrir kosningarnar
verði að vinna á sitt band óflokks-
bundna kjósendur sem hafa orðið
fyrir vonbrigðum með Obama en
eru tregir til að snúa baki við hon-
um einfaldlega vegna þess að þeim
er enn vel við hann.
Mark McKinnon, sem var póli-
tískur ráðgjafi Bush, líkir sambandi
Obama og kjósenda við „slæmt
hjónaband“. „Það verður erfitt að
rjúfa tilfinningatengslin sem margir
kjósendur hafa við Obama, jafnvel
þótt þeir hafi orðið fyrir vonbrigð-
um. Þetta kann að vera slæmt
hjónaband, en þeir vilja samt bjarga
því,“ hefur The New York Times
eftir McKinnon.
Blaðið segir að ráðgjafar Rom-
neys viðurkenni að vandasamt verði
að sannfæra kjósendurna um að
Obama verðskuldi ekki annað tæki-
færi. Gangi repúblikanar of hart
fram í gagnrýni sinni á Obama eigi
þeir á hættu að kjósendur fari í
varnarstöðu, ekki aðeins til að verja
forsetann heldur einnig val sitt fyrir
fjórum árum.
Charles Franklin, prófessor í
stjórnmálafræði við Wisconsin-há-
skóla, er efins um að Romney hafi
tekist að fá marga kjósendur á sitt
band. „Það er til mikils mælst að
ætlast til þess að frambjóðandi geti
breytt ímynd sinni algerlega á einu
flokksþingi, einkum eftir langa bar-
áttu í forkosningum fyrir flokks-
þingið og einnig í forkosningunum
fyrir fjórum árum, eins og í tilviki
Romneys,“ hefur fréttaveitan AFP
eftir Franklin.
AFP
Fjölskyldumaðurinn Mitt Romney með eiginkonu sinni og fjölskyldu þeirra eftir ræðu hans á flokksþinginu.
Romney opnar sig
Vill fá vonsvikna kjósendur til að segja skilið við Obama
Eins og slæmt hjónaband en vilja kjósendurnir bjarga því?
Boðar milljónir starfa
» Romney hét því að fjölga
störfum um tólf milljónir, gera
Bandaríkin sjálfum sér nóg í
orkuframleiðslu á átta árum og
undirrita nýja viðskiptasamn-
inga við önnur lönd.
» Romney lofaði að bæta hag
bandarískra smáfyrirtækja til
að auka hagvöxt með því að
lækka skatta. „Ólíkt Obama
forseta ætla ég ekki að hækka
skatta á millistéttina.“
28 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 2012
ÞRÍR FRAKKAR Baldursgötu 14, Reykjavík - Sími: 552 3939
Opið virka daga 11:30 - 14:30 og 18:00 - 22:00
Opið um helgar frá 18:00 - 23:00
frakkar@islandia.is - www.3frakkar.com
Í gamla bænum - rétt við hjarta miðborgarinnar
ÞRÍR FRAKKAR
Café & Restaurant
Ferskur léttsteiktur bláugga-
túnfiskur m/soya-smjörsósu
og wasabi-kartöflumús
Leikarinn Clint Eastwood vakti
mikla athygli á flokksþinginu með
tólf mínútna ræðu sem mörgum
þótti furðuleg, sumum fáránleg.
Leikarinn talaði við auðan stól og
þóttist vera að ræða við Barack
Obama forseta.
Mikil umræða hófst strax á sam-
skiptavefjum á netinu um þennan
óvænta einleik Eastwoods sem er
orðinn 82 ára gamall. Margir repú-
blikanar hrifust af honum en demó-
kratar sögðu að leikarinn hefði aug-
ljóslega „tapað glórunni“.
Eintal leikarans við forsetann var
stundum sundurlaust og sumum
þótti Eastwood vera of klúr.
„Hvað viltu að ég segi, Romney?
Ég get ekki sagt honum að gera það.
Hann getur ekki gert það við sjálfan
sig. Þú ert algerlega brjálaður!“
sagði Eastwood.
Framlag leikarans mæltist vel
fyrir meðal þúsunda repúblikana
sem sóttu flokksþingið. „Það gengur
ekki að dæma goðsagnapersónu eins
og Eastwood með því að skoða hann
með venjulegum pólitískum linsum,“
sagði talsmaður Romneys. „Spuni
hans var hvíld frá öllum pólitísku
ræðunum og hann hreif fólkið í saln-
um.“
Eastwood kvaðst hafa hrifist af
loforðum Obama um að færa Banda-
ríkjunum „von og breytingu“ en orð-
ið fyrir vonbrigðum með vanefndir
hans. „Þegar menn standa sig ekki í
vinnunni þarf maður að láta þá
fara,“ sagði Eastwood og strauk vísi-
fingri um hálsinn.
Talaði við auðan stól
AFP
Í ræðupúltinu Ímyndað samtal
Clints Eastwood við Obama forseta.
Ræða Pauls Ryans, varaforsetaefnis
repúblikana, á flokksþinginu í
Tampa í Flórída þótti kröftug og
mæltist vel fyrir meðal repúblikana.
Bandarískir fjölmiðlar hafa hins
vegar gagnrýnt hann fyrir að fara
ekki rétt með staðreyndir.
Ryan gagnrýndi Barack Obama
forseta fyrir að skerða fjárframlög
ríkisins til Medicare, sjúkratrygg-
inga fyrir 65 ára og eldri, um 716
milljarða dollara. Vefsetrið fact-
check.org, sem sannreynir fullyrð-
ingar stjórnmálamanna, segir hins
vegar að Obama hafi ekki skert
framlögin til Medicare, heldur dreg-
ið úr vexti framlaga til trygging-
anna. Factcheck.org er á vegum
rannsóknastofnunarinnar The Ann-
enberg Public Policy Center við
Pennsilvaníu-háskóla í Bandaríkj-
unum.
Ryan er formaður fjárlaganefndar
fulltrúadeildar Bandaríkjaþings og í
ræðunni lét hann hjá líða að minnast
á að hann hafði sjálfur lagt til nánast
sömu takmarkanir á vöxt framlaga
til Medicare og Obama.
Varaforsetaefnið gagnrýndi einn-
ig forsetann fyrir að samþykkja ekki
fjárlagatillögur sem Ryan hafði
sjálfur tekið þátt í að fella, að sögn
The New York Times.
Þá hefur Ryan verið sakaður um
að hafa reynt að kenna stjórn
Obama um það að GM ákvað að loka
bílaverksmiðju í heimabæ Ryans,
Janesville í Wisconsin. Tilkynnt var
um lokunina áður en Obama var
kjörinn forseti, það er þegar George
W. Bush gegndi embættinu.
Ryan er 42 ár og var fyrst kjörinn
í fulltrúadeildina árið 1998. Hann
hefur notið mikilla vinsælda meðal
íhaldsmanna í flokki repúblikana og
lagt áherslu á aðhald í ríkis-
fjármálum og aðgerðir til að minnka
fjárlagahallann.
Paul Ryan sakaður
um staðreyndavillur
AFP
Varaforsetaefni Paul Ryan með
konu sinni á flokksþinginu.