SunnudagsMogginn - 09.09.2012, Qupperneq 18
Halla segist alltaf hafa átt
von á einhverri umræðu en ekki
gert sér grein fyrir hversu mikil
hún yrði, bara með því einu að
sækja rétt sinn. „Hafi ég lært
eitthvað á þessu ferli þá er það
sú staðreynd að enn er þrítugan
hamarinn að klífa fyrir fólk sem
brotið er á sbr. konur, og eins
karla sem vilja sækja rétt sinn.
Halla Bergþóra býr ásamt fjöl-skyldu sinni í Seljahverfinu íReykjavík en er annars aðnorðan, frá Laxamýri í Suð-
ur-Þingeyjarsýslu, rétt utan við Húsa-
vík. Maður hennar, Kjartan Jónsson, er
einnig frá Húsavík og tengsl fjölskyld-
unnar norður því mikil.
Frá árinu 2009 hefur Halla gegnt
stöðu setts sýslumanns á Akranesi, á
meðan Ólafur Þór Hauksson, sem skip-
aður er sýslumaður á staðnum, sinnir
stöðu sérstaks saksóknara.
„Ég er búin að vera mjög ánægð á
Akranesi, það vantar ekki. Það er ofsa-
lega gott að vinna þar og framúrskarandi
starfsfólk, hvort heldur sem er á lög-
reglustöðinni eða sýslumannsskrifstof-
unni. Mannauðurinn er auðvitað það
sem skiptir öllu máli í allri starfsemi,
hvort sem um ræðir opinbert fyrirtæki
eða einkafyrirtæki,“ segir hún.
Stefnt að sýslumannsstarfinu
Áður en Halla tókst á hendur stöðu
sýslumanns á Akranesi starfaði hún í
dóms- og kirkjumálaráðuneytinu þar
sem hún starfaði m.a. á einkamálaskrif-
stofu ráðuneytisins og dóms- og lög-
gæsluskrifstofu þess. Kom hún þar að
ýmsum málum, m.a. sifjamálum, um-
sjón með fangelsismálum og starfs-
mannamálum undirstofnana ráðuneyt-
isins.
Áhuginn á starfi sýslumanns hafði
lengi blundað í henni en áður en í ráðu-
neytið kom hafði hún aflað sér tölu-
verðrar reynslu af starfsemi slíkra emb-
ætta og gat vel hugsað sér það sem
framtíðarstarfsvettvang.
„Á meðan á námsárum mínum stóð
vann ég m.a. í lögreglunni á Húsavík
þrjú sumur auk þess sem ég vann tvö
sumur á sýslumannsskrifstofunni þar.
Ég starfaði síðan sem löglærður fulltrúi
og staðgengill sýslumanns á Húsavík um
tveggja ára skeið og man að ég hugsaði
með mér að ég gæti nú vel hugsað mér
að starfa þarna sem sýslumaður einn
daginn,“ segir Halla.
Velti hún að eigin sögn fyrir sér í kjöl-
farið hvernig hægt væri að vinna að því
að gera þetta mögulegt. „Ég hugsaði
með mér að gott gæti verið að öðlast
reynslu í ráðuneytinu, sem maður byggi
að síðar. Í ráðuneytinu er yfirstjórn svo
margra málaflokka, stjórnsýsla og stöð-
ugt verið að úrskurða og leggja línurnar
um hvernig hlutirnir eigi að vera – allt
reynsla sem hefur verið mikils metin
þegar fólk sækir um sýslumanns- og
dómaraembætti.
Áður en í ráðuneytið kom starfaði hún
m.a. hjá Sýslumanninum í Reykjavík
auk þess sem hún náði sér í meistara-
gráðu í Evrópurétti við Háskólann í
Stokkhólmi. Litaði áhuginn á lögreglu-
málunum þar áherslur hennar í náminu
en lokaritgerð hennar fjallaði um nýja
tilskipun EB um peningaþvætti.
Afleysing á Akranesi
Eftir heimkomuna frá Svíþjóð starfaði
Halla um tíma á lögmannsstofu hjá Guð-
jóni Ármanni Jónssyni þar sem við tóku
hefðbundin lögmannsstörf. Árið 2002 lá
leið hennar síðan yfir í dóms- og kirkju-
málaráðuneytið þar sem hún starfaði í
kjölfarið eins og áður sagði, allt uns hún
var beðin um að taka að sér stöðu sýslu-
manns á Akranesi þegar ljóst var að
Ólafur Þór hyrfi til annarra starfa tíma-
bundið. Halla segist hafa verið ánægð
með að vera boðin staðan, enda alltaf
verið áhugasöm um að gerast sýslumað-
ur og það þrátt fyrir að hafa verið mjög
ánægð í starfi í ráðuneytinu. Ákvað hún
því að slá til.
Upphaflega var Halla sett í embættið
án auglýsingar en að rúmum tveimur
árum liðnum var ákveðið að auglýsa það
og gafst henni kostur á að sækja um eins
og öðrum, sem hún og gerði. Varð úr að
henni var boðin staðan en að þessu sinni
var henni gert að segja starfi sínu í ráðu-
neytinu lausu, sem hún hafði verið í
leyfi frá. „Ég var ekki alls kostar sátt við
það en í minni tíð í ráðuneytinu hafði
fólk ekki þurft að gefa stöður sínar laus-
ar þótt það væri sett í önnur embætti
tímabundið. Í raun og veru felur setning
engin réttindi í sér á borð við uppsagn-
arfrest og annað sem maður nýtur í
fastri stöðu enda er um eins konar af-
leysingu að ræða á meðan skipaði að-
ilinn sinnir öðru. Ég velti því vandlega
fyrir mér hvort ég væri tilbúin að gefa
frá mér öryggið. Úr varð að ég ákvað að
halda áfram á Akranesi, enda hafði ég
verið ánægð þar og leit svo á að það
myndi styrkja mig frekar ef til kæmi að
sækja um skipun í embætti.“ Nær setn-
ing Höllu á Akranesi til 1. janúar 2013.
Sótt um embættið á Húsavík
Skömmu síðar var staða sýslumanns á
Húsavík auglýst til umsóknar. Ákvað
Halla að sækja um, bæði þar sem um var
að ræða skipun í stöðu og þar með meira
starfsöryggi, auk þess sem heimahag-
arnir heilluðu þau hjónin. „Ekki það að
það ætti að hafa áhrif á hæfnismatið – en
það skipti að sjálfsögðu máli fyrir áhuga
minn á að fara þangað,“ segir hún.
Hamarinn enn hár
Nýfallinn úrskurður kærunefndar jafnréttismála, um að innanríkisráð-
herra hafi ekki farið að jafnréttislögum þegar karl var skipaður í embætti
sýslumanns á Húsavík, hefur vakið mikla athygli og umtal. Einkum og
ekki síst í ljósi þess að auk þess sem embættið hlaut, stóð valið um mjög
hæfa konu, Höllu Bergþóru Björnsdóttur, sem þótti raunar standa hinum
umsækjandanum framar í fjórum og jafnhæf í þremur af þeim átta þáttum
sem ráðuneytið virðist hafa byggt mat sitt á.
Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir
gunnhildur@mbl.is
18 9. september 2012