SunnudagsMogginn - 09.09.2012, Page 25
9. september 2012 25
Íslands stendur fyrir reglulegu flugi til
Grænlands, einkum með ferðamenn,
og Norlandair sérhæfir sig í ferðum
með hópa til Grænlands og býður upp
á margvíslega þjónustu.
Þau störf sem flugmenn Mýflugs og
Isavia sinna felast í flugprófunum á
flugvöllum Grænlands og Íslands þar
sem allt varðandi aðflugshalla og
geisla brautarljósanna er reiknað út
svo aðflugsgeislinn sé hárnákvæmur.
Það þýðir að við venjulegir farþegar í
innanlands- og millilandaflugi getum
andað rólega fyrir lendingu. Þetta er
lykilatriði í flugöryggismálum en
fæstir vita af því.
Á milli þess sem flugmenn Mýflugs
eru í útleigu við mælingar á flug-
völlum sinna þeir sjúkraflugi um allt
land og fara einnig til annarra landa til
að sækja sjúklinga, þar á meðal Græn-
lands. Ófá mannslíf hafa bjargast
vegna ósérhlífni flugmanna Mýflugs í
öllum veðrum. Á neyðarstundu þegar
veðurhamurinn er sem mestur og
jafnvel kolniðamyrkur þurfa braut-
arljós og aðflugsgeislar að virka.
Það var misjafnt eftir stöðum á
Grænlandi hversu bratt aðflugið var.
Brautirnar eru flestar einum metra of
stuttar og einungis fáar tegundir flug-
véla geta lent þar. Að vera um borð
var á köflum eins og að vera í rússí-
bana, svo bratt var aðflugið á suma
staðina. Svo var það skárra á öðrum
völlum þar sem aðflugið var laust við
há fjöll sem eru helsti farartálminn.
Þorkell Ásgeir Jóhannsson flugstjóri og Friðrik Sigurmundsson flugmaður í háloftunum.