SunnudagsMogginn - 09.09.2012, Page 40

SunnudagsMogginn - 09.09.2012, Page 40
40 9. september 2012 Lífsstíll Geymsluherbergið mitt hefursíðastliðnar vikur látið nokkuðá sjá. Líkt og lesendur munakannski var geymsluherberg- inu jú komið í lag. Síðastliðnar vikur hef ég hins vegar hrúgað þar inn ýmiskonar dóti og fatnaði úr skápum mínum og skúffum. Nú er nefnilega komið að því að gera alvöru hausthreinsun og halda á markað. Reyndar er ég þar kannski akk- úrat núna eða var í gær. Allt eftir því hve- nær þú lest blaðið. Ég held að ég sé svolítil sölukona í eðli mínu. Í það minnsta finn ég til tilhlökkunar yfir því að leggja bíln- um mínum við Valsheimilið í dag (laug- ardaginn 8. september) og opna skottið fullt af gersemum. Hitta alls konar fólk og spjalla, pranga og prútta, stilla upp vörum og gera allt fínt þannig að maður trekki nú sem flesta að. Í fyrravor stóð ég vakt í Kolaportinu einn laugardaginn og hafði gaman af. Að þessu sinni verður skemmtilegt að standa í (vonandi) haustblíðunni með skottið galopið og gala söluslagorð yfir bílastæðið. Kannski hef ég mig nú samt hæga til að byrja með. Vil ekki láta reka mig heim. Svo verð ég líklegast bara í lopapeysunni og auðvitað strigaskónum svo ég nái að standa svona hálfan daginn. Eins mun ég taka með mér gott te á brúsa og fullt box af nesti. Annars sé ég fyrir mér að það mætti tylla sér í skottið öðru hvoru. Jafnvel taka kríu á vöktum á móti systur minni sem slást mun í lið með mér. Skottmarkaður þessi er hluti af hverfahátíð Miðborgar og Hlíða og verður örugglega líf og fjör á svæðinu. Svo það er um að gera fyrir þá sem ætla að vera á ferðinni í dag (laugardag) að skottast á skottmarkað og sjá hvort þið finnið ekki einhverjar gersemar. Þær þurfa ekki endilega að vera úr mínu skotti enda verða þarna samankomnir fjölmarg- ir aðilar sem selja munu ólíka hluti. Allir ættu því að geta fundið eitthvað við sitt hæfi og kannski rekist þið á galandi sölu- konu þarna einhver staðar. Það getur verið ágætt að hafa varninginn í hjólbörum, fyrir þá sem langar að kaupa mikið er jafnvel hægt að fá hjólbörurnar með. Morgunblaðið/Kristinn’ Hitta alls konar fólk og spjalla, pranga og prútta, stilla upp vörum og gera allt fínt þannig að maður trekki nú sem flesta að. Gersemar í skotti Lífið og tilveran María Ólafsdóttir maria@mbl.is Sölukonan í mér vakn- ar til lífsins um helgina og mun bjóða gersemar úr skotti sínu. Prútt, prang, spjall og góður tesopi eru uppskrift að góðum degi. Ef þú ætlar að búa til alvöru bollaköku þá fylgir því að hún verður að vera fagurlega skreytt með kremi og jafnvel smá kökuskrauti svona til að setja punktinn yfir i-ið. Engifer má meðal annars nota til að búa til gott slíkt krem og hér kemur uppskrift að slíku feng- in úr the The Hummingbird Bakery, bollaköku- og múffuuppskriftabókinni. Engiferkrem 100 ml nýmjólk stór biti af engiferrót, afhýdd og skorin í 4 hluta 400 gr flórsykur 125 gr smjör við stofuhita börkur af ½ sítrónu Aðferð Setjið engiferbitana og mjólk í skál, setjið plast yfir skálina og geymið í ísskápnum í nokkra klukkutíma. Hrærið saman flórsykurinn, smjörið og sítrónubörk- inn með handþeytara á miðlungshraða þar til að blandan hefur blandast vel saman. Sigtið síðan mjólkina frá engiferinu og hrærið létt saman við í fyrstu en aukið síðan hraðann þar til blandan er orðin loftkennd og létt í sér. Létt og gott engiferkrem Undanfarnar vikur hefur verið skemmtilegt að fylgjast með þáttunum Kryddleiðinni, á Rík- issjónvarpinu. En þar leiðir Kate Humble áhorf- endur um króka og kima kryddheimsins. Í gegnum þættina hefur maður því lært ýmislegt nýtt um kryddin sem maður notar sum hver á hverjum degi. Eitt þeirra krydda sem Kate tekur fyrir í þáttum sínum er kanill og ferðast hún til kan- illandsins Sri Lanka til að kynna sér það mæta krydd. Samhangandi kan- il mætti jú t.d. nefna grjónagraut eða kanilsn- úða, hvort tveggja herra- mannsmatur. Í Portúgal er kanill notaður í sæta- brauð sem kallast „Pas- teis de nata“. Sætabrauð þetta er baka sem sáldr- að er kanil yfir og sykur og er vanalega borðuð með espressóbolla. Hljómar alls ekki illa enda gefur kanill gott bragð bæði í bakstur og matargerð. Kanil-sætt

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.