Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.10.2012, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.10.2012, Blaðsíða 4
Þ að var hjartnæm stund þegar Steingrímur J. Sigfússon, þáverandi fjármálaráðherra, skrif- aði formlega undir samninga við kröfuhafa Lands- bankans um aðskilnað nýja og gamla bankans. Hann var sig- urreifur og lýsti því yfir að Lands- bankinn væri „kominn aftur í trausta eigu þjóðarinnar, að yf- irgnæfandi meirihluta. Það lá fyrir að útkoman yrði sú að ríkið ætti Landsbankann.“ En stundin var einungis hjart- næm fyrir suma, en öllu súrari fyr- ir aðra sem hryllti við þeirri skuldabyrði í erlendum gjaldeyri sem verið var að leggja á bankann með undirskriftinni, ekki síst þar sem bankinn var nú aftur á forræði þjóðarinnar. Unnið að útreikningum Í samningunum var fylgt ramma- samkomulagi frá því tveim mán- uðum áður, sem fól í sér að nýi Landsbankinn gæfi út skuldabréf á gamla bankann í erlendum gjald- miðlum, en fjárhæðin nam þá 260 milljörðum króna. Jafnframt að ein- ungis yrðu greiddir vextir fyrstu fimm árin, en að þeim tíma liðnum yrði byrjað að greiða af láninu og um leið hækkuðu vextirnir. Um þetta var ekki deilt í loka- áfanga viðræðnanna, heldur breyti- legt skuldabréf sem gert verður upp núna um áramótin. Niðurstaðan varð sú að hluthafar fengju 20% af heildarhlutafé Landsbankans, að nafnvirði 28 milljarða króna. En reyndist verðmæti yfirfærðra eigna úr gamla bankanum í þann nýja meira en áætlað var, þá gæfi bank- inn út viðbótarskuldabréf til þrota- búsins í erlendum gjaldmiðlum að fjárhæð allt að 92 milljarða króna og ríkið eignaðist í staðinn 20% hlutinn í bankanum. Þessa dagana eru endurskoðendur frá Deloitte í Bretlandi að reikna út hversu hátt skuldabréfið verður, en í sex mánaða uppgjöri bankans stóð það í 69 milljörðum. Háar fjárhæðir í húfi Sú spurning vaknar óhjákvæmilega þegar horft er á þessa samninga rík- isins fyrir hönd „þjóðarbankans“ hvernig bankanum var ætlað að standa undir þessum skuldbind- ingum í erlendum gjaldmiðlum, en ljóst er að gjaldeyristekjur bankans geta engan veginn staðið undir þeim. „Stóra skuldabréfið“ eins og það er kallað, stendur nú í 209 millj- örðum króna og samanlagt þarf Landsbankinn því að standa skil á um 280 milljörðum í erlendum gjaldmiðlum á árabilinu 2014 til 2018. Veltan á gjaldeyrismarkaði í fyrra var tæplega 90 milljarðar og Lands- bankinn hefur verið fyrirferðar- mikill á þeim markaði, enda þurft að standa skil á um 10 milljarða vaxtagreiðslum á ári. Margir velta fyrir sér hvernig fari þegar bankinn þurfi einnig að standa undir um 70 milljarða afborgunum á ári. „Það er ljóst að bankinn þarf að endur- fjármagna sig,“ segir einn heimild- armanna. „Vandamálið var fært inn í framtíðina.“ Starfsmenn Landsbankans eru eins og nærri má geta meðvitaðir um að það líður að skuldadögum. Það er ekkert launungarmál að það þarf að endursemja um skuldirnar, en bankinn gefur ekki upp hversu háar fjárhæðir er um að ræða. En það getur verið vísbending að í febrúar í fyrra ritaði Skilanefnd Landsbankans Bankasýslu ríkisins bréf, þar sem lýst var áhyggjum af því að Landsbankinn gæti lent í vandræðum með að greiða af er- lenda skuldabréfinu og taldi að í versta falli gæti vantað ríflega 50 milljarða króna í erlendum gjaldeyri til að geta staðið í skilum. „Við þurfum að endurfjármagna okkur í erlendri mynt eins og marg- sinnis hefur komið fram frá okkur,“ segir Kristján Kristjánsson, upplýs- ingafulltrúi bankans. „Endurfjármögnunarþörfin er fyrst og fremst eftir 2015, þannig að lausafjárstaða bankans í erlendri mynt hefur verið og er mjög góð.“ Lárentsínus Kristjánsson, formaður skilanefndar Landsbankans, Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra og Ásmundur Stefánsson, bankastjóri Landsbankans, þegar ritað var formlega undir samninga vegna uppgjörs milli gamla og nýja Landsbankans. Þetta var 16. desember og jólin á næsta leyti. Morgunblaðið/Golli Vandanum velt inn í framtíðina LANDSBANKINN ÞARF AÐ ENDURSEMJA UM SKULDABRÉF Í ERLENDUM GJALDMIÐLUM. UM 280 MILLJARÐAR UNDIR. SKULDIRNAR GETA VALDIÐ VERULEGUM ÞRÝSTINGI Á GENGI KRÓNUNNAR OG GJALDEYRISFORÐA SEÐLABANKANS. Það lá vel á Steingrími J. Sigfússyni og föruneyti hans kvöldið 15. desem- ber þegar undirritaðir voru samn- ingar við kröfuhafa Landsbankans um uppgjör milli gamla og nýja bank- ans. Fjármálaeftirlitið hafði gefið frest til miðnættis til að ljúka samn- ingunum og stillti þannig ríkinu upp við vegg. Engu að síður fagnaði Steingrímur samningunum og lét þau orð falla að Landsbankinn væri aftur kominn í hendur þjóðarinnar. Það sýnir kannski hversu atburðarásin var hröð að skálað var í volgum bjór í tilefni dagsins. Þorsteinn Þorsteinsson, stjórnar- formaður Bankasýslu ríkisins, hafði farið fyrir samninganefnd ríkisins í viðræðum við skilanefndir föllnu bankanna og var mikið í samráði við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn í því ferli, en haft er á orði við blaðamann að á fundum hafi hann einkum verið í símasambandi við Steingrím um kaupaukakerfið sem kröfuhafar vildu að komið yrði á laggirnar fyrir starfs- menn bankans. Starfsmenn bankans munu eignast allt að 2% í bankanum þegar loka- uppgjör fer fram um áramótin á breytilega skuldabréfinu sem þrotabúið eignast gagnvart bank- anum, en það stóð í 69 milljörðum um mitt ár. Heimildarmenn blaðsins gagnrýna harðlega að hvatarnir í því kerfi tengist og þjóni beint hagsmunum kröfuhafa þrotabúsins og felist í því að hámarka virði skuldabréfsins sem Landsbank- inn þurfi að greiða til kröfuhafanna. Fjárhæðin veltur á því hvernig til- teknum lánasöfnum reiðir af. Og það voru kröfuhafarnir sem réðu för. „Þeir voru raunar með miklu meiri kröfur í þeim efnum sem við féllumst ekki á,“ sagði Steingrímur í vor. „Að endingu náðist saman á þessum nótum, að allir starfsmenn bankans gætu feng- ið vissa hlutdeild í því þegar til upp- gjörsins kemur milli nýja og gamla bankans.“ Ásmundur Stefánsson, Haukur Halldórsson, stjórnarformaður, Steingrímur J. Sig- fússon og Lárentsínus Kristjánsson ganga frá samningum að kvöldi 15. desember. Deilt um kaupaukakerfið Í riti Seðlabankans um fjár- málastöðugleika er kveðið óvenju sterkt að orði, en þar segir að árlegar afborganir af erlendum lánum aukist veru- lega á árinu 2015: „Í þessu sambandi munar mest um afborganir nýja Landsbankans til þess gamla sem verða um 72 ma.kr. að meðaltali á ári á þessu tímabili eða 4% af landsframleiðslu. Ef ekki kemur annaðhvort til endursamninga um þessar skuldir eða að viðkomandi aðilar öðlast aðgang að er- lendum lánamörkuðum til að endurfjármagna þær gæti þrýstingur á gengi krónunnar og gjaldeyrisforða Seðlabank- ans orðið verulegur, sem myndi gera losun fjármagns- hafta erfiðari en ella. Því er mjög mikilvægt að endur- samið verði um skuld nýja Landsbankans við þann gamla.“ ÞARF AÐ ENDURSEMJA * „Nú er Landsbankinn kominn aftur í trausta eigu þjóð-arinnar, að yfirgnæfandi meirihluta.“ Steingrímur J. SigfússonÞjóðmálPÉTUR BLÖNDAL pebl@mbl.is 4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.10. 2012
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.