Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.10.2012, Blaðsíða 19
Tannbursti er ómissandi á ferðalögum. Eftir bið-
raðir og óreglulega blundi sem gjarnan fylgja
flugferðum er gott að geta frískað sig upp og
burstað tennurnar. Gott að eiga box fyrir burst-
ann, helst nógu stórt til að pínulítil tann-
kremstúpa rúmist þar líka.
28.10. 2012 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19
AFP
Þrátt fyrir vandlegar merk-
ingar á hverjum einasta flug-
velli um allt sem við megum
ekki taka með í handfarangri
þegar við förum í flug
þá virðast hversdags-
legir hlutir eins og
naglaklippur oft
læðast ofan í snyrti-
buddur. En þær er
ekki heimilt að hafa
í handtöskunni í
flugi. Ekki heldur
naglaþjalir úr
málmi. En það
ætti ekki að koma
að sök því nóg
framboð er af alls
kyns naglaþjölum og púðum
sem eru úr mjúkum efnum.
Skæri, hnífa og önnur odd-
hvöss verkfæri úr málmi
skiljum við að sjálfsögðu
eftir heima. Það er
fúlt að tapa góð-
um vasahníf af
því maður
gleymdi að taka
hann úr handfar-
angri og færa í
ferðatöskuna.
Nálar og títu-
prjónar eru ekki æski-
legur hluti handfarangurs í
flugi þannig að útsaumur er
út úr myndinni sem dægra-
stytting í vélinni.
Hins vegar, fyrir þá
eða þær sem vilja
drepa tímann með
því að taka í prjóna, er gott
að vita að prjónadótið er
vel hægt að hafa meðferðis
ef aðeins er passað upp á að
taka eingöngu með plastpr-
jóna, en alls ekki prjóna úr
málmi.
Ekki taka
með...
Það er ástæða fyrir því að eyrnatappar
eru seldir á hverjum einasta flugvelli. Þeir
eru einfaldlega staðalútbúnaður í hverja
handtösku. Hvort sem maður vill ná al-
mennilegum svefni í vélinni eða
bara losna við malið í
næsta manni þá eru
eyrnatappar snilld. Svo
taka þeir ekkert pláss
hvort sem er.
TAPPAR Í EYRUN
Vegna loftþrýstingsbreytinga vill húðin þorna þegar
við fljúgum. Margir kannast við þurrk í andliti og á
höndum á löngum ferðalögum. Rakakrem fyrir húð
og hendur (allt í litlum túpum að sjálfsögðu) og góður
varasalvi eru því algjörar nauðsynjar í handfarangri,
sérstaklega á löngum flugferðum.
RAKI FYRIR HÚÐINA
Þótt ekki sé ætlunin að hlaupa um flug-
vélina eða taka hnébeygjur á flugvell-
inum er engu að síður full ástæða til að
klæðast þægilegum skóm á ferðalög-
um. Íþróttaskór eru tilvaldir fyrir flug-
ferðir, ekki verra ef þeir eru úr gljúpu
efni sem loftar um. Það er líka hollara
fyrir fæturna.
ÞÆGILEGIR SKÓR
Matur á flugvöllum og í flugvélum
kostar sitt. Þess vegna getur borg-
að sig að pakka góðu nesti, enda
aldrei að vita hvenær verða tafir.
Smurðar flatkökur eru tilvaldar
sem nesti, þær taka lítið pláss í
töskunni og eru mettandi. Ekki má
þó gleyma að drykkjarföng er
betra að kaupa á staðnum því það
er óheimilt að hafa vökva í
stærri en 100 milli-
lítra umbúðum
með í handfarangur.
FLATKÖKUR ERU FÍNT
FLUGVALLANESTI
TANNBURSTINN ÓMISSANDI
Hvort sem beðið er
á flugvöllum eða set-
ið í flugvél er hægt
að hafa ofan af fyrir
sér með því að leggja
kapal eða spila við
ferðafélagana. Í heimi
snjallsíma, tölvuleikja og
óþrjótandi framboðs af af-
þreyingu getur verið slak-
andi að notast við einfaldan
hlut eins og gömlu góðu spilin
til að stytta sér stundir.
GAMLI GÓÐI
SPILASTOKKURINN
Því hefur
verið haldið
fram að gott
sé að taka hjarta-
magnyl fyrir flug til að minnka hættu á
blóðtappa. Fátt kemur þó í staðinn
fyrir hreyfingu. Gott er að rétta
reglulega úr handleggjum og fót-
leggjum og hreyfa liðamót. Það
kemur hreyfingu á blóðið og okkur
líður betur.
HREYFUM OKKUR Á FLUGI
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
F
E
R
61
68
4
10
/1
2
ferð.is
sími 570 4455
fljúgðu fyrir minna
Sjá nánar á Ferð.is
Kanarí
Innifalið: Flug fram og til baka og flugvallarskattar.
Verð: 59.900 kr.
Flugsæti
29. okt. – 30. nóv.
Kanarí
Á mann m.v. 2 fullorðna í herbergi. Innifalið: Flug, skattar og gisting.
Verð: 149.900 kr.
Óvissuferð
29. okt. – 30. nóv.
32 nætur!
Í Óvissuferð færðu að vita á hvaða hóteli er gist stuttu fyrir brottför.