Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.10.2012, Blaðsíða 36
JAMES BOND ER BÚINN AÐ VERA HELSTA
KARLMENNSKUTÁKN MARGRA KYNSLÓÐA OG
ÞAÐ ER EKKI AÐ FARA AÐ BREYTAST.
Börkur Gunnarsson borkur@mbl.is
H
vað væri James Bond án tækja og tóla?
Bara eins og hver annar aulauppi með
dry Martini. Dótið í kringum hann er
það sem gerir hann að karlmanni. Því
alvöru karlmennska kemur ekki með nátt-
úrulegum hætti, heldur aðeins með framleng-
ingum og hjálpartækjum. Bond snýr á gang-
virki heimsins. Í höndum hans breytast
kúlupennar í sprengjur, sportbílar í skriðdreka
með eldflaugum og sprengikúlum og saklausir
kúluhattar í hið hættulegasta drápstól. Í tilefni
af frumsýningu nýjustu James Bond-bíómynd-
arinnar núna um helgina gerði síðan gadget-
stylist.com lista yfir uppáhalds dótið hans
Bonds.
Sumt af dótinu hans Bonds úr gömlu mynd-
unum er eiginlega hallærislega fyndið. En það
missir ekki sjarmann við það. Bond í nýju mynd-
unum er svo kúl að það er ekki hægt að hlæja að
neinum tækjunum hans. Aðeins hægt að kikna í
hnjáliðunum yfir töffaraskapnum í honum.
Krókódílakafbáturinn (Octopussy, 1983)
Eitt af óvæntum farartækjum Bonds var krókódíllinn
í kvikmyndinni Octopussy. Þessi krókódílakafbát-
ur rétt rúmaði líkama hans. Í þessu farartæki
smygl- aði hann sér til Aðeins-fyrir-
kvenfólk eyjunnar. En bæði
þetta farartæki sem og
eyjan eru ólíkleg til að
sjást aftur í Bond-
mynd enda þykir
þetta ekki lengur kúl.
Sony-Ericsson K800/K790
(Casino Royale, 2006)
Í Casiono Royale, einni af fyrstu nýju
Bond-myndunum, treystir 007 á
gemsa sem er fær um að senda upp-
lýsingar um hvað er í blóðinu hans
til höfuðstöðvanna til efnagreiningar.
Sony-Ericsson K800/K790 var að
sjálfsögðu settur á markað fyrir al-
menning en án þessa eiginleika.
Fjarstýrði bíllinn (Tomorrow Never Dies, 1997).
Draumur sérhvers krakka er að eiga ekki aðeins
fjarstýrðan leikfangabíl heldur einnig fjarstýrðan al-
vörubíl. BMW 750iL hans var brynvarinn og svo vel
vopnum búinn að það jafnaðist á við skriðdreka.
Fyrsti snjallsíminn (Tomorrow
Never Dies, 1997).
Meira en tíu árum áður en
Apple setti iPhone á markað var
Bond kominn með snjallsíma í
hendurnar. Síminn gat skannað
fingraför, gat verið notaður til
að fjarstýra bílnum hans eða að
opna ókunna lása auk ýmissa
eiginleika snjallsíma.
Kúluhatturinn (Goldfin-
ger, 1964)
Ekki beint dótið hans
Bonds, þar sem kúluhatt-
urinn var vopn andstæðings
hans, Oddjob, í myndinni
Goldfinger. Þessi lífvörður
Gullfingursins notaði kúlu-
hatt sem hann kastaði eins
og frisbí diski og úr hliðum
hattsins komu þá hárbeittir
hnífar. Ekki háþróaðasta
vopn Bond-myndanna en
svo sannarlega minnisstætt.
Rolex úrið (Live and Let Die,
1973) Bond hefur oft notað úr
sem hafa undarlega eiginleika. Ro-
lex úrið hans hafði svo mögnuð
seguláhrif að það gat
breytt stefnu byssu-
kúlna og auðveldlega
dregið að sér málm-
hluti eins og teskeið
af næstu borðum.
Kúlupennasprengjan
(Goldeneye, 1995).
Hver hefur ekki haldið á saklausum
Parker-penna og skrifað ljúf ástarbréf.
Parker-penni Bond er annars konar. Í
Bond-bíómyndinni Goldeneye gefur Q
honum silfurpenna sem er einnig
sprengja sem er kveikt á með því að
smella þrisvar þegar verið er að opna
pennann og svo líða fjórar sekúndur
þangað til hann springur.
Lotus Esprit (The Spy Who Loved Me, 1977)
Lotus Esprit er flott bílategund en Lotusinn hans Bonds var
eitthvað enn meira en það. Þetta var uppáhaldsbíllinn hans
Bonds og þessi útgáfa á bílnum var einnig kafbátur útbúinn
eldflaugum fyrir kafbátahernað. Þetta jók mjög sölu á Lotus
Esprit í heiminum.
Bond, James Bond,
sagði hetjan ógleym-
anlega jafnan þegar
hann kynnti sig.
Dótið hans
Bonds
Dauðataskan (From
Russia with Love, 1963)
Eitt af fyrstu skrefunum í
dótafetismanum voru tek-
in í þessari bíómynd Sean
Connery. Taskan sem leit
út fyrir að vera eins og
hver önnur taska ensks
herramanns reyndist vera
heilt vopnabúr hríðskota-
riffla og sprengja.
36 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.10. 2012
Græjur og tækni