Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.10.2012, Blaðsíða 6
HEIMURINN
JAPAN
TÓKÝÓ Japanska strandgæsl-
an bjargaði allri áhöfn alelda
kínversks flutningaskips. 64
menn voru í áhöfninni. Grunnt
hefur verið á því góða milli
Japans og Kína út af deilu vegna
eyja í Suður-Kínahafi.
BENÍN
COTONOU Ólga ríkir
í Benín eftir að þrír voru
handteknir og gefið að
sök að hafa reynt að eitra
fyrir forseta landsins,
Thomas BoniYayi, lækni hans, frænku
og fyrrverandi ráðherra.
ÞÝSKALAND
BERLÍN Angela Merkel, kanslari
Þýskalands, vígði á miðvikudag
minnisvarða um hálfa milljón
sígauna, sem nasistar tóku af lífi.
Hún sagði að enn kvæði rammt
að mismunun í garð minnihluta-
hópsins.
BRETLAND
LONDON Hneykslið út af
misnotkun breska sjónvarps-
mannsins Jimmy Savile virðist
umfangsmeira en talið var.
BBC á í vök að verjast fyrir
að hafa haldið hlífiskildi yfir honum og
nú á að kanna ákvörðun yfirvalda um að
sækja hann ekki til saka 2009.
Suðurkóreski skemmtikraft-urinn Psy hefur lagt heiminnað fótum sér með laginu
Gangnam Style og tilheyrandi
knapadansi, sem ugglaust á eftir að
setja svip á hestamót framtíð-
arinnar. Lagið hefur í fimm vikur
hefur verið í öðru sæti bandaríska
Billboard-listans og náði fyrsta sæti
á breska vinsældalistanum. Haft er
í flimtingum að flytjandi hafi velt
Ban Ki Moon, framkvæmdastjóra
Sameinuðu þjóðanna, úr sessi sem
frægasta Suður-Kóreumanni heims.
Ban getur huggað sig við að eftir að
hann tók sporið með Psy er hann
þó líklega þekktari en nokkru sinni
fyrr.
Hinn pattaralegi Psy heitir fullu
nafni Park Sae-Sang og er 34 ára
gamall. Hann er því ekki hin dæmi-
gerða unglingastjarna, sem nóg
mun vera af í Suður-Kóreu og er
iðulega talað um K-popp í því sam-
bandi. Tilþrifalitlum suðurkóreskum
stráka- og stúlknahljómsveitum hef-
ur oftlega verið teflt fram til að slá
í gegn í Bandaríkjunum, en þær
hafa ekki haft erindi sem erfiði.
Gangnam Style heitir sjötta
hljómplata Psys. Titillag plötunnar
hefur farið sem logi um akur frá því
að það var sett inn á tónlistarvefinn
YouTube í júlí auk þess sem eft-
irhermur af ýmsum toga hafa kom-
ið fram, allt frá kínverska andófs-
og listamanninum Ai Weiei til leift-
urlýðs á almannafæri, fanga á Fil-
ippseyjum, gesta í brúðkaups-
veislum og fólks á dansstöðum um
allan heim.
Athyglin, sem fylgt hefur þessari
velgengni, varð til þess að söngv-
arinn fékk samning hjá umboðs-
skrifstofu unglingastjörnunnar Just-
ins Biebers. Þess utan fékk hann
tækifæri til að troða upp á verð-
launahátíð tónlistarsjónvarpsstöðv-
arinnar MTV og kenna bandarísku
poppstjörnunni Britney Spears reið-
dansinn góða í sjónvarpsþætti gam-
anleikarans Ellen DeGeneres.
Grín á kostnað auð-
manna í Gangnam
Vinsældir lagsins hafa komið á
óvart heima fyrir, en um leið
fyllt Suður-Kóreumenn stolti.
Þar í landi reyna poppfræðingar
að átta sig á hvaða galdur hafi
orðið til þess að lagið sló í gegn.
Gangnam nefnist helsta auð-
manna- og verslunarhverfi
Seúl þar sem ekki verður
þverfótað fyrir tískubúðum,
fínum börum, dýrum veit-
ingastöðum, frægu fólki og
uppáklæddu.
Psy gerir grín að lífsstíl fólksins í
þessu hverfi í myndbandinu með
laginu þar sem hann sést fara um á
hraðbátum, í jógatímum og á
skemmtistöðum fína fólksins á með-
an hann dansar hinn undarlega
dans sinn umkringdur íðilfögrum
fyrirsætum. Bilið milli ríkra og fá-
tækra fer vaxandi í Suður-Kóreu og
er ástandið svo alvarlegt að það er
orðið að kosningamáli í yfirstand-
andi kosningabaráttu um forseta-
embættið. Það er kannski þess
vegna, sem lagið höfðar til hlust-
enda í Suður-Kóreu.
Andstæða K-poppsins
Simon Stawski, sem stofnaði Eat
Your Kimchi, bloggsíðu helgaða K-
poppi og kóreskri menningu, segir í
viðtali við fréttastofuna AFP að Psy
sé andstæða hins sykursæta K-
popps og hinna stæltu, kyngerðu,
tískumeðvituðu ungstirna. Skop og
þá sérstaklega háðsádeila sé fátíð í
hefðbundnu suðurkóresku poppi.
„Fyrst og fremst tekur Psy sig
ekki alvarlega og notar háð og
húmor fyrir sjálfum sér sem ekki
finnst í K-poppi,“ segir hann og
bætir við að það hafi gert honum
kleift að rjúfa tungumálamúr ensk-
unnar og ná til fólks um allan
heim.
Heima fyrir hefur Psy einnig
náð sér í nýja aðdáendur. Tónlist-
arferill hans nær yfir 11 ár. Hann
hefur alltaf átt sér dygga aðdá-
endur, sem hafa sýnt honum
tryggð sama hvað á hefur dunið.
Hann komst í kast við lögin fyrir
að reykja marijúana og þurfti
tvisvar að gegna herþjónustu því
að í ljós kom að í fyrra skiptið
hafði hann haldið áfram í skemmti-
bransanum í stað þess að gera hlé.
Psy fagnar heimsfrægðinni, en
er um leið gáttaður. „Mér finnst
þetta súrrealískt,“ sagði hann við
fréttastofuna Yonhap. „Ég átti
aldrei von á að þessi dagur myndi
rísa í lífi mínu sem söngvari.“
„Mér finnst
þetta súr-
realískt“
530 MILLJÓNIR MANNA HAFA HORFT Á SLAGARANN
GANGNAM STYLE Á VEFNUM YOUTUBE OG FLYTJAND-
INN, SUÐURKÓRESKI POPPARINN PSY, ER ORÐINN ÞEKKT-
UR UM ALLAN HEIM, EKKI SÍST FYRIR KNAPASPORIÐ, SEM
RYÐUR SÉR TIL RÚMS Á DANSGÓLFUM UM VÍÐA VERÖLD.
Suðurkóreski söngvarinn Psy á sviði umkringdur dansmeyjum. Lag Psys, Gangnam Style, hefur slegið í gegn, ekki
síst vegna hins sérkennilega knapaspors, sem dansað er af miklum móð um gervalla heimsbyggðina.
AFP
*Oppan gang-namseutayil.Viðlagið í laginu Gangnam Style eftir suðurkór-
eska rapparann Psy, öðru nafni Park Jae-Sang.
Alþjóðamál
KARL BLÖNDAL
kbl@mbl.is
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.10. 2012
Ban Ki-moon, fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu
þjóðanna, lét eftir sér að taka
sporið með Psy þegar þeir
hittust nýverið. Hann kveðst
nokkrum sinnum hafa séð
myndbandið með lagi landa
síns og kveðst stoltur af
honum og framlagi hans
til „aukins skilnings“
þjóða heims.
Lagið hefur þó ekki
slegið í gegn í Japan og
vekur það tor-
tryggni í Suður-
Kóreu. Ekki bætti
úr skák er japanskir
bloggarar gáfu í
skyn að í S-Kóreu
hefðu menn keppst
um að smella á lagið á
YouTube til að það
virtist vinsælla en í raun.
HVAÐ MEÐ JAPAN?
Popparinn
Psy