Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.10.2012, Blaðsíða 39
28.10. 2012 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 39
H
in undurfagra Jennifer Lopez
mætti í rósableikum kjól á tísku-
sýningu Valentino á dögunum
sem haldin var á tískuvikunni í
París. Kjóllinn er þröngur að ofan, síðerma
og víkkar örlítið yfir magann sem gerir hann
klæðilegan og smart. Kjóllinn nær upp fyrir
hné, er með tveimur litlum slaufum við
mittislínuna. Þegar ég hnaut um myndina
af þessari þokkadís hugsaði ég með mér
hvers vegna ég ætti ekki svona kjól í fata-
skápnum mínum. Og hvers vegna verslanir
landsins væru ekki fullar af bleikum kjólum.
Æ, svo mundi ég eftir öllum íslensku kon-
unum sem vilja helst bara ganga í
svörtu því það er svo ógurlega
grennandi … eða var því ekki
einhvern tímann haldið fram?
Auðvitað eigum við að
klæðast kjólum í tíma og
ótíma og við eigum að klæða
okkur upp á. Það er ein-
hvern veginn svo miklu
skemmtilegra að vera til og
takast á við lífið þegar við
erum fínar. Allar lendum við
í öldugangi, mismiklum og
mistíðum, og þá er ágætt að
vera vel útbúin; í háum hæl-
um með vel snyrt andlit og
flaksandi hár. Svo er ágætt að
þjálfa upp ákveðið bros sem við
getum gripið til þegar að okkur
er vegið. Með brosinu getum við
látið líta út fyrir að við séum
óhaggandi (sem er mjög gott).
Mér verður svo oft hugsað
til J.R. Ewings, frænda
míns. Hann var alltaf í fín-
um fötum og með vel þjálf-
að bros sem virtist koma
honum áfram í viðskiptalíf-
inu í Texas, ef ekki bara í
alheiminum þegar best lét.
Hann sást aldrei stíga fæti
inn í líkamsræktarstöð en
drakk þess í stað óblandað
sterkt vín … með klaka. Og
var alltaf nokkuð spengileg-
ur.
Bleiki kjóllinn hennar Lopez er í hárréttum
litatóni og fer hennar húðlit vel. Litir geta
gert svo miklu meira fyrir okkur en okkur
grunar og við eigum að nota það trix betur.
Það minnir mig á að ég á
nokkra vel sniðna litríka
kjóla inni í skáp. Eina
vandamálið er að þeir
virðast eitthvað hafa
hlaupið í þvotti upp á síð-
kastið. Ætli ég neyðist
ekki til að fara að drekka
meira af sterku óblönduðu
víni. Ekki fitnaði frændi
minn af því.
martamaria@mbl.is
Zara
2990 kr.
Stígvél frá
Karen
Millen.
J.R. Ewing frændi minn fór aldrei í ræktina.
Klútur frá
Schumacher.
Hann fæst hjá
Sævari Karli.
Fín föt, vel snyrt
andlit & fullkomið hár
Kjóll frá
Schumac-
her. Hann
fæst hjá
Sævari
Karli og
kostar
103.000 kr.
Söngkonan Jennifer Lopez í
bleikum kjól á tískusýningu
Valentino á dögunum.
See by Chloé
fæst í Sævari
Karli. 59.900 kr.
TRAUS
T
OG GÓ
Ð
ÞJÓNU
STA
Í 16 ÁR
HAMRABORG 10, KÓPAVOGI – SÍMI: 554 3200 – OPIÐ: VIRKA DAGA: 9:30-18, LAUGARDAGA: 11-14
Verið velkomin
SJÓNMÆLINGAR
Á STAÐNUM
VORUM AÐ
TAKA UPP
FULLT AF
FLOTTUM
UMGJÖRÐUM
Ertu þreytt
á að vera
þreytt?
Nánar á heilsa.is
Fæst í apótekum og heilsuvöruverslunum.