Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.10.2012, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.10.2012, Blaðsíða 60
1928 þurfti Dean að gera þrennu til að slá metið. Everton mætti Arsenal á heimavelli og auðvitað skoraði hann þrisvar! Síðasta markið með fallegum skalla nokkrum mínútum fyrir leikslok. Það merkilega er að sumarið 1926 lenti Dean í mótorhjólaslysi, höf- uðkúpu- og kjálkabrotnaði og sumir gerðu ráð fyrir að knattspyrnuferlinum væri lokið. Læknar óttuðust meira að segja um líf hans í fyrstu. En 15 vikum eftir slysið klæddist Dean bláa búningnum á ný og nokkrum misserum síðar setti hann marka- metið ótrúlega sem enn stendur. Ekki er víst að heilsufræðingar samtímans hefðu hrifist af undirbúningi hans fyrir leiki, því hermt er að Dixie hafi gjarnan fengið sér eina sígarettu áður en hann hljóp inn á völlinn og máltíð hans fyrir leik samanstóð oft af einu sérríglasi og tveimur hráum eggjum! Segja má að Dixie Dean hafi kvatt á viðeigandi augnabliki; hann dó á Goodison Park á leik Everton og Liverpool, 1. mars 1980. Liverpool vann 2:1 og David Johnson gerði annað markið; fyrrverandi fram- herji Everton og aðeins annar tveggja sem skorað hafa fyrir bæði lið í borgarslagnum. Hinn er Peter Beardsley. „Besti miðherji sem nokkurn tíma mun koma fram,“ sagði Bill Shankly, maðurinn sem byggði upp Liverpool-stórveldið, um Dean. Varla er hægt að fá meira hrós en það. Rúmeninn Lucescu hefur komið víða við,bæði sem leikmaður og þjálfari. Hanner nú við stjórnvölinn hjá Shakthar frá Úkraínu sem vann Evrópumeistara Chelsea auðveldlega í Meistaradeildinni í vikunni. Lucescu var landsliðsþjálfari þjóðar sinnar um fimm ára skeið á níunda áratugnum en hefur síðan stjórnað liðum í heimalandinu, á Ítalíu – Pisa, Brescia, Reggiana og Inter- nazionale – og í Tyrklandi, áður en hann tók við Shakhtar árið 2004. Okkar maður er orð- inn 67 ára, fékk hjartaáfall árið 2009 og lenti í alvarlegu bílslysi fyrr á þessu ári, en er samt hvergi nærri hættur! Sigurganga Shakhtar hefur verið mikil síðan Rúmen- inn tók við og vorið 2009 var hann gerður að heiðursborg- ara Donetsk, strax eftir að fyrsti Evróputitillinn var í höfn; Shakhtar vann þá UEFA- keppnina. Lucescu stýrði Galatasaray til sigurs í tyrknesku deildinni vorið 2002 en var þrátt fyrir það látinn fara um sumarið. Hann var um- svifalaust ráðinn til erkifjendanna í Besiktas og félagið, sem fagnaði 100 ára afmæli árið eftir, varð þá tyrkneskur meistari með Lu- cescu við stjórnvölinn! Þegar tímabilið 2003- 2004 var hálfnað hafði Besiktas góða forystu á Galatasaray í deildinni en í leik í janúar gerð- ust undarlegir hlutir; dómarinn rak fimm leik- menn Lucescus út af í sama leiknum og þóttu rauðu spjöldin í meira lagi vafasöm. Leikurinn er talinn svartur blettur í knattspyrnusögu Tyrklands, þjálfarinn kenndi tyrkneska knatt- spyrnusambandinu um að lið hans missti af titlinum – því leikur þess hrundi eftir þenn- an skrautlega leik. Hann sagði upp um vorið, flutti úr landi og tók við Shakhtar. Rúmeninn hamrar jafnan á mikilvægi menntunar við leikmenn sína. Þegar hann var í Rúmeníu hvatti hann þá til að setjast á háskólabekk og eyða kvöldum frekar í lestur góðra bóka eða leik- húsferð en að hanga á veitingahúsum. Sjálfur talar hann sex tungumál auk móðurmálsins; ensku, portúgölsku, spænsku, ítölsku, frönsku og rússnesku. VÍÐFÖRULL OG VINSÆLL Bóklestur eða leikhúsferð fremur en út að borða Mircea Lucescu, þjálfari FC Shakhtar frá Donetsk í Úkraínu. MIRCEA LUCESCU, ÞJÁLFARI SHAKHTAR Í ÚKRAÍNU, HELDUR ÓTRAUÐUR ÁFRAM ÞRÁTT FYRIR AÐ NÁLGAST SJÖTUGT OG HAFA BÆÐI VEIKST ALVARLEGA OG SLASAST ILLA A rgentínska undrið og það portúgalska, Messi og Ronaldo, eru bestu leikmenn heims nú, að flestra mati, en spyrja má: eru þeir fram- herjar? Nei, í það minnsta ekki dæmigerðir miðherjar þótt mörkin hrannist upp. Kólumbíumaðurinn Falcao hjá Atletico Madrid er lík- lega sá „heitasti“ í Evrópu í dag, raðar inn mörkum og hóf tímabilið eftirminnilega með því að skora í fjórgang hjá einum af bestu markvörðum álfunnar, Petr Cech, þegar liðið vann Chelsea í viðureign Evrópumeistaranna og Evrópudeildarmeistaranna í Mónakó. Margir stórkostlegir framherjar hafa prýtt enska liðið Liverpool en sá undraverðasti sem starfað hefur innan borgarmarkanna er þó William „Dixie“ Dean, sem lék með Everton á fyrri hluta 20. aldar. Everton og Liverpool mætast um helgina. Viðureignir félaganna eru jafnan sögulegar, þeir rauðu hafa unnið oftar og Ian Rush, framherji Liverpool, skorað mest í borgarslagnum, 25 mörk í 36 leikjum, þar af 13 í deild- arleikjum. Dixie Dean hefur hins vegar skorað mest í rimmum liðanna í deildinni; hann gerði 18 deildarmörk fyrir Everton gegn Liverpool á þriðja og fjórða áratug síðustu aldar. Var markaskorari af Guðs náð; fyrsta vet- urinn sem aðalmiðherji Everton, 1925-1926, gerði hann 32 mörk í 38 leikjum, sem var aðeins sex mörkum frá fé- lagsmetinu. Tveimur árum síðar, veturinn 1927-1928, gerði hann hvorki fleiri né færri en 60 mörk í 39 deild- arleikjum! Þá 21 árs að aldri. Veturinn áður hafði George Camsell gert 59 mörk fyr- ir Middlesbrough í deildinni og í síðustu umferðinni vorið Kólumbíski framherjinn frábæri Radamel Falcao og Tékkinn Petr Cech, markvörður Chelsea, í viðureign liðanna í Móna- kó í haust. Falcao er líklega „heitasti“ framherji Evrópu í dag og Cech hefur verið frábær í haust. AFP Besti miðherjinn? MARGIR FRÁBÆRIR MARKASKORARAR ERU ÞEKKTIR Í FÓTBOLTASÖGUNNI. EN HVER ER SÁ BESTI? EKKI ER HÆGT AÐ NEFNA EITT NAFN Í ÞVÍ SAMBANDI, EN WILLIAM „DIXIE“ DEAN ER HUGSANLEGA SÉ BESTI SEM FRAM HEFUR KOMIÐ Á ENGLANDI Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Ungur stuðningsmaður Liver- pool virðir fyrir sér styttuna af Dixie Dean fyrir utan Goodis- on Park, heimavöll Everton. Þegar ég hef ekkert þarfara að gera renni ég augunum niður eftir töflunni til að athuga hvernig Everton hefur vegnað. Bill Shankly, þjálfarinn sem gerði Liverpool að stórveldi á sjöunda áratug síðustu aldar. Boltinn SKAPTI HALLGRÍMSSON skapti@mbl.is 60 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.10. 2012
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.