Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.10.2012, Blaðsíða 38
Áttu einhverja uppáhaldsflík? Uppáhaldsflíkin mín þessa dagana er úlpan mín. Hún faðmar
mig hlýlega nú þegar kuldinn eykst nánast með hverjum deginum.
Af hverju er mest í fataskápnum? Kósí heimabuxum og ullarsokkum.
Hver er uppáhaldsfylgihluturinn þinn? Hálsmenið mitt frá Hringa sem ég fékk frá manninum
mínum þegar ég var ólétt að syni okkar. Táknrænt og fallegt.
Áttu þér uppáhaldshönnuð? Nei, ég á engan sérstakan uppáhaldshönnuð, en ég er mjög hrif-
in af fallegu, litríku og umfram allt þægilegu barnafötunum sem Helga Ólafsdóttir í Ígló hann-
ar.
Hvar kaupirðu helst föt? Ætli flest fötin mín núna séu ekki frá H&M og Zöru. Ég var miklu
duglegri að kaupa mér föt fyrir nokkrum árum en núna finnst mér eiginlega langskemmtileg-
ast að kaupa barnaföt.
Hver er flottasta búð sem þú hefur komið í? Á Akureyri er ég hrifnust af nýju Geysis-
búðinni sem var opnuð hér í sumar. Fötin og aðrar vörur sem eru seldar þar eru allar mjög
vandaðar og langflestar í takt við minn smekk. Svo er þetta virkilega flott konsept, hönnun
búðarinnar færir mann t.d. aftur til fortíðar. Af erlendum verslunum kemur Urban Outfitters
fyrst upp í hugann.
Hvað hefurðu helst í huga þegar þú velur föt? Notagildið er óneitanlega þáttur sem ég hef í
huga en svo skiptir auðvitað mestu máli að sniðið á flíkinni henti mér. Ég reyni svo frekar að
huga að gæðum fremur en magni þegar kemur að fatakaupum.
Hvaða flík eða fylgihlut dreymir þig um að eignast fyrir veturinn?
Haust- og vetrartískan höfðar alltaf mjög vel til mín. Mig langar
mest í flotta og góða peysu fyrir veturinn.
Ef þú fengir aðgang að tímavél sem gæti flutt þig aftur
til árs að eigin vali og þú fengir dag til að versla, hvaða
ár myndirðu velja og hvert færirðu? Ég myndi örugglega
fara aftur til stríðsáranna og finna mér einhvern fallegan
sparikjól í fínni dömubúð.
Hvaða flík eða fylgihlut keyptirðu þér síðast?
Síðasta flík sem ég keypti mér var brúðarkjóllinn minn. Ég
var að verða ansi stressuð þar sem leitin gekk frekar
brösuglega en datt svo í lukkupottinn í einni kaupstað-
arferðinni til Reykjavíkur. Anderson og Lauth á
Laugaveginum voru mínir bjargvættir þar sem ég
fann algjöran draumakjól, rómantískan með fallegum
smáatriðum.
Ef þú þyrftir aldrei að kíkja á
verðmiðann, hvaða flík eða
fylgihlut myndirðu kaupa? Ég
myndi kaupa mér einhverja
flotta og vandaða tösku.
HEIÐRÚN GRÉTARSDÓTTIR, VERKEFNASTJÓRI RÁÐSTEFNU-
OG FUNDAHALDS Í HOFI Á AKUREYRI, HELDUR UPP Á HÁLS-
MEN FRÁ HRINGA EN VILDI GJARNAN KOMAST AFTUR TIL
STRÍÐSÁRANNA OG KAUPA SÉR FALLEGAN KJÓL
Eyrún Magnúsdóttir eyrun@mbl.is
Skemmtilegast að
kaupa barnaföt
NÝJA GEYSISBÚÐIN Á AKUREYRI ER Í UPPÁHALDI
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Úlpa úr Geysi
Akureyri
Mulberry
taska gæti
verið óska-
taskan. Geysir
Akureyri
Marlene Dietrich
hefur eflaust átt
nóg af sparikjólum.
Hálsmen frá
Hringa.
Ígló
barna-
föt.
Ljósmynd/Aldís Pálsdóttir
Heiðrún
Grétarsdóttir
Brúðarkjóllinn frá
Andersen & Lauth er
í miklu uppáhaldi.
*Föt og fylgihlutir Skyrta er ekki sama og skyrta. Aðsniðnar herraskyrtur eru vinsælar um þessar mundir »40