Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.10.2012, Side 14

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.10.2012, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.10. 2012 Þ rjátíu ár eru síðan fyrsta bók Iðunnar Steins- dóttur, Knáir krakkar, kom út. Í tilefni rithöf- undarafmælisins hefur bókin verið endurútgefin og fengið nýjan titil, Varið ykkur á Valahelli. Iðunn hefur á rithöfundarferli sínum skrifað á fjórða tug skáldverka, að- allega fyrir börn, og sent frá sér á þriðja tug kennslubóka, en hún starfaði um tíma sem kennari. Hvernig varð þessi fyrsta bók þín til? „Ég var kennari í Mývatnssveit og í bekknum var níu ára gamall strák- ur. Hann var klár og fínn strákur, aðalkarlinn í bekknum og óskaplega góður í fótbolta og stærðfræði en las upp á innan við 2. Hann hefur verið lesblindur en það var ekki farið að greina slíkt þá. Enginn vissi af hverju drengurinn gat ekki lært að lesa. Þegar börnin máttu lesa í frjálsum tíma kom hann til mín og spurði: „Hvað finnst þér að ég eigi að lesa?“ Ég gat ekki bent honum á neitt annað en Græna hattinn og Bláu könnuna, gamlar smábarna- bækur. Mér fannst þetta ákaflega leitt og hugsaði með mér: Af hverju geta rithöfundar ekki skrifað bækur fyrir svona krakka? Upp úr því ákvað ég að skrifa spennandi bók í ekta Enid Blyton-stíl, á auðlesnu máli. Þannig urðu Knáir krakkar til. Það má segja að þessi níu ára gamli drengur hafi ýtt mér út í barnabókaskrif. Ég er ekki viss um að ég hefði farið að skrifa annars. Ég var mikill kennari í mér. Mér fannst svo gaman að kenna.“ Einhvern veginn finnst mér líklegt að þú hafir ekki verið strangur kennari. „Ég held ekki að ég hafi verið óskaplega strangur kennari. Mín skoðun er sú að það skili engu að skammast og rífast í krökkum, það gerir manni bara erfiðara fyrir. Það skilar hins vegar miklu að hrósa börnum fyrir það sem þau gera vel.“ Þú hefur nær eingöngu skrifað fyrir börn. Af hverju er það? „Ég var kennari og þekkti heim barnanna og hef gaman af börnum. Á þessum tíma datt mér ekki í hug að skrifa fyrir fullorðna og skrift- irnar hafa þróast þannig að ég held mig að mestu við börnin. Líklega er ég bara svona mikill krakki í mér.“ Frá dægurlagatextum til sálma Voru bækur og bókafólk í kringum þig í uppvextinum? „Já, ég ólst upp við bókalestur. Við systkinin vorum fimm og tíðir gestir á bókasafninu. Mamma gaf mér oft upp nöfn á bókum sem henni fannst að ég ætti að lesa og það voru ekki endilega barnabækur. Ég man til dæmis að hún mælti með Kapítólu og Brasilíuförunum. Mamma var mikil bókamanneskja. Stundum fór hún með bók inn á baðherbergi, læsti að sér og var þar í hálftíma til að fá frið til að lesa. Ég er svo glöð yfir að hún skyldi hafa fengið þessar góðu stundir og dáist að þessari hugkvæmni hennar. Á veturna las pabbi stundum kvöld- sögu, þá var einn kafli í einu lesinn upp fyrir fjölskylduna. Við systkinin höfum öll verið í bókastússi. Kristín er rithöfundur, Heimir gaf út ljóðabók, Ingólfur gaf út ljóðabók og æskuminningar sem bera undirtitilinn Uppvaxtarsaga blómabarns og Stefán hefur samið ljóð og þýtt bækur, til dæmis Karla- fræðarann og Gilgameskviðu.“ Það vita kannski ekki allir að þú hefur samið fjölda dægurlagatexta, eins og til dæmis Ég fer í fríið, Átján rauðar rósir og Bíddu pabbi. Af hverju fórstu að semja texta við dægurlög? „Þegar ég var um þrítugt, hús- móðir á Húsavík, var ég beðin um að þýða tvo texta úr sænsku fyrir Tónakvartettinn sem var þarna á staðnum. Ég gerði það og textarnir rötuðu á plötu sem Svavar Gests gaf út. Hann var ánægður með textana og bað mig að semja fleiri. Ég var heimavinnandi húsmóðir með þrjú ung börn og fékk borgað fyrir að semja þessa texta sem mér fannst alveg frábært. Ég fór í fyrstu utan- landsferðina fyrir ágóðann. Svo hafði ég gaman af þessari textasmíði. Ætli ég hafi ekki samið hátt í hundrað lagatexta á ferlinum, bæði fyrir dæg- urlög og kóra. Nú er ég hins vegar komin yfir í að semja sálma. Svona breytast nú hlutirnir.“ Yrkirðu ljóð? „Ég á ekki nóg af ljóðum í ljóða- bók. Ljóðin mín, eins og sjálfsagt hjá mörgum, verða til þegar mér líður illa, þannig að þau eru nokkuð þung- lyndisleg.“ Dauði og tómleiki Maður þinn var Björn Friðfinnsson ráðuneytisstjóri. Þú misstir hann eft- ir 50 ára hjónaband. Þið hafið verið kornung þegar þið kynntust. „Við byrjuðum að vera saman 18 ára gömul og vorum alla tíð miklir félagar. Hjónaband okkar gekk af- skaplega vel. Við vorum bæði mjög sjálfstæð og virtum hvort annað. Virðing er skilyrði þess að hjóna- band sé gott. Björn fékk krabbamein og veik- indin tóku mikið á. Í september í fyrra fór hann í aðgerð sem átti að bæta margt en hann náði sér aldrei eftir hana. Í maí fékk ég að vita að baráttan væri vonlaus. Á þessum tíma lifði ég og hrærðist í ákveðnum heimi þar sem allt snerist um Björn og veikindi hans. Eftir dauða hans hefur gengið hægt og rólega að ná aftur sambandi við umhverfi og dag- legt líf. Ég fór nýlega í frí til útlanda og það gerði mér gott. En eftir svona missi er svo mikill tómleiki að það tekur tíma að jafna sig.“ Trúir þú á líf eftir dauðann? „Björn trúði ekki á líf eftir dauð- ann en það hef ég hins vegar alltaf gert. Ég ætla að halda mig við það og trúa því að við eigum eftir að hittast aftur.“ Höfðu veikindi hans og dauði áhrif á skriftir þínar? „Já, ég hef lítið sem ekkert skrif- að fyrir utan það að vinna í barna- bókinni sem nú er endurútgefin. Fyrir tíu árum gerði ég framhald af þeirri bók og gaf systur minni út- prentið. Hún fann það hjá sér í bíl- skúrnum í fyrra og lét mig hafa það. Ég vona að þessi framhaldssaga komi á næsta ári.“ Ævisaga langafa Hvað einkennir góða barnabók? „Góð barnabók er bók sem for- eldrar geta lesið og haft gaman af eins og börnin. Hún á að vera vel skrifuð og það þarf að vera eitthvað í henni sem grípur lesandann, hvort sem það er spenna eða eitthvað ann- að.“ Þú hefur skrifað mikið en lestu mikið? „Ég les töluvert. Ég hef alltaf haft gaman af góðum spennubókum en *Það má segja að þessi níu ára gamlidrengur hafi ýtt mér út í barna-bókaskrif. Ég er ekki viss um að ég hefði farið að skrifa annars. Svipmynd

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.