Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.10.2012, Qupperneq 44

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.10.2012, Qupperneq 44
44 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.10. 2012 Þ egar ferilskrá núverandi ríkisstjórnar er borin við þau fyrirheit sem hún gaf í upphafi er eins og illa kveðin öf- ugmælavísa birtist. Að því skal vikið síðar á þessum vettvangi. Fersk ríkisstjórn þykist fær í flestan sjó En hitt er vel þekkt að nýjar ríkisstjórnir vilja vel og hafa mikla trú á getu sinni til að láta gott af sér leiða. Þegar forystumönnum flokka, sem standa í stjórn- armyndun, verður ljóst að samkomulag er í burð- arliðnum takast þeir gjarnan á loft yfir eigin upphefð. Ekki síst ef þeir hafa lengi beðið sætis við ríkisstjórn- arborð. Uppnumið tal þeirra minnir þá stundum helst á það sem heyrist gjarnan í íþróttamönnum eftir sig- ursælan leik, t.d. í handbolta eða fótbolta. Sigurgleðin kallar fram hástemmt gleðiraus, sem er úr takt við tilefnið, sem var þrátt fyrir allt, aðeins sigur í bolta- leik. En þó þykir engum neitt að því. Þvert á móti. Gleðilætin eru hefðbundin og því bæði viðeigandi og skemmtileg. Spennan fyrir leik og sigurstundin að honum loknum réttlæta allt hið uppblásna tal. En það sem fer vel í kappleikjagleði passar ekki endilega þegar alvara lífsins á í hlut. Þá getur hrifningaralda augnabliksins skolað hreinum bábiljum inn í stjórn- arsáttmála, sem viðkomandi telja sig svo bundna af, að minnsta kosti fram að seinnihluta kjörtímabilsins, þegar gleðin hefur rjátlast af. Nýjar ríkisstjórnir eða þær sem eru í burðarlið telja í einlægni, jafnvel nokkru eftir kosningar, að þær muni geta tryggt betri tíð með blóm í haga í sinni sveit, í þessu tilviki á Íslandi. Flokkar í nýrri rík- isstjórn, báðir, allir eða einn þeirra, voru sem sagt farnir að trúa orðum sínum og yfirlýsingum í stjórn- arandstöðu. Þeir höfðu gleymt því í öllum darraðar- dansinum að það voru aðeins kjósendur sem áttu að trúa þessu og þó aðeins nægjanlega vel til að koma réttum krossi í kassann á kjördag. Núverandi rík- isstjórn var óvenjulega illa haldin af þessu. Þó var annar stjórnarflokkurinn nýkominn úr ríkisstjórn, og hafði verið þar, eins og formaður þingflokks hins stjórnarflokksins sagði seinast í fyrradag, í eins kon- ar umboði djöfulsins, eða hafði a.m.k. stefnt að því að koma öllum málum síns volaða lands í náðarfaðm hans. Þessum flokki, Samfylkingunni, tókst þó smám saman að sannfæra sjálfa sig og Ríkisútvarpið um að í raun hefði það verið Framsóknarflokkurinn sem sat í „hrunstjórninni“ ásamt Sjálfstæðisflokknum en ekki hún sjálf. „Búsáhaldabylting“ átti að réttlæta allar atlögur Flokkarnir tveir voru frá fyrsta degi ráðnir í að stimpla fyrirrennara sína í ríkisstjórn (Framsókn í hinu nýja hlutverki Samfylkingar úr hrunstjórn) sem úrhrök, illmenni og loks glæpamenn. Það skyldi hengja allar ráðstafanir um háls þeirra. Því óþægi- legri og óþarfari sem slíkar ráðstafanir yrðu því betra. Þess vegna samþykkti ríkisstjórnin og þing- meirihlutinn fyrsta Icesave samninginn upp á hund- ruð milljarða króna ólesinn! Þótt hann myndi nær því sliga þjóðina yrði skömminni af því komið fyrir á rétt- um stað. Sá klafinn yrði hengdur á „hrunflokkana“ sem yrðu með því útskúfaðir í áratugi. En slíkar að- farir skyldu ekki látnar duga. Það skyldi hrekja menn úr störfum, án þess að nokkur rannsókn hefði farið fram á störfum þeirra eða þeim gæfist færi á að skýra sinn málstað, sem í sumum tilvikum var raunar óþægilega sterkur þegar vel var að góð. Og það skyldi draga ráðherra Sjálfstæðisflokks fyrir Lands- dóm fyrir verk í „hrunstjórninni.“ Jafnvel hinn raun- verulegi samstarfsflokkur úr sömu stjórn ætlaði að standa að því. Jóhanna og Steingrímur stóðu jafn þétt í þessum ljóta leik og Danton og Robespierre stóðu að sínu, þótt Jóhanna hörfaði um hænufet í landsdómsmáli þegar Ingibjörg Sólrún tók loks fast á móti henni. Eftir það lét Jóhanna handlangara sína sjá um að knýja málið fram og komst ekki hjá því að sýna á spil- in sín þegar í ljós var komið að þingmeirihluti var nú fyrir því að endurskoða hina ódrengilegu ákvörðun. Reyna átti með samstilltu átaki að hengja forsvars- menn þessara flokka hátt í gálga og skyldi einskis svifist. Ömurleg framganga fjölmiðla Um skeið stóðu allir fjölmiðlar landsins með odd- vitum stjórnarflokkanna í þessu átaki. Ekki þarf að spyrja að 365, þá eins og nú í eigu Baugs heitins, með jafnöflugum og gagnrýnislausum stuðningi Sam- keppnisstofnunar og Landsbankans og var fyrir „hrun“. Framganga fréttastofu Ríkisútvarpsins var ótrúleg og gengur sífellt fram af fleira fólki. Og um tíma tók Morgunblaðið þátt í þessum dansi undir þá- verandi ritstjórn, sem menn vita hvert sökk síðar. Óhróðursblaðið, neðst á öllum skölum, skolpveita „frétta,“ var auðvitað, þá sem nú, samt við sig. Allir fjölmiðlar landsins dönsuðu með, svo ótrúlegt sem það er, og sumir gengu lengra en að dansa. Þeir tóku sér stöðu á sviðinu með hljómsveitinni. Sífellt fleiri sjá orðið í gegnum stórkostlega mis- notkun á þeim miðli sem landsmenn allir eru neyddir Það á að gefa Ríkisút- varpinu nýtt tækifæri *Sífellt fleiri sjá orðið í gegnumstórkostlega misnotkun á þeimmiðli sem landsmenn allir eru neyddir til að styðja. Reykjavíkurbréf 26.10.12
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.