Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.10.2012, Qupperneq 59

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.10.2012, Qupperneq 59
28.10. 2012 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 59 LÁRÉTT 1. Er Alda með rafmæli á hátíð? (11) 8. Máni ruglaður batt þrælinn. (8) 10. Svæði við stóra byggingu sem er aldrei alveg lárétt? (12) 11. Hrossataðshrúga tapar argasta skinni. (8) 12. Staður með suðurafríska mynt fyrir þann á þurru landi. (10) 13. Á úkraínskum skaga títt finnst það sem er með flekkjum í andliti. (7) 15. Þrefalt mar brotnar í lokin með þrefaldri stunu. (14) 18. Nálægt því að vera enn í uppnámi. (4) 20. Umgjörð í vinnunni sem takmarkar fólk þar. (11) 24. Fyrir laminn góinn að sögn fuglsins. (11) 27. Hefur mælitæki til að fastráða. (7) 29. Við smakkið kemur kippurinn. (10) 31. Rækta milt í bland við tónlistartæki. (9) 32. Ég skil alltaf, Eiki, það sem best væri. (9) 33. Fersk labbi til að finna fjölda nýgreindra tilvika. (7) 34. Er til stuð og landi eða er það hjálpandi? (12) LÓÐRÉTT 2. Þær eru ekki vitlausar sem tilheyra máltíð gerðri úr plöntuhnúð. (10) 3. Erfiðleikar reynast réttir og koma í ljós. (11) 4. Staðreynd klukkna í reikningi (7) 5. Klósett í Landsbankanum inniheldur kroppa. (7) 6. Dýrka kropp og iðni við högg þrátt fyrir fjölda andláta. (10) 7. Gosmöl er “it“ í blaði. (7) 9. Má rís vera við kar hjá erlendum. (8) 14. Sú fyrsta er innihaldslaus yfir eind. (4) 16. Vinna af trjádrumbum. (6) 17. Snarl getur breyst en samt verið eins. (5) 19. Bugt í átt til einhvers af löngun. (11) 21. Auða spilli með því sem ekkert er í. (9) 22. Göngugata sem liggur fyrir neðan er fyrir pöpul. (8) 23. Fljótlega ákvarðað af þeirri sem hefur mikinn orðaflaum. (8) 24. Margvíslegur fugl nær að búa til mörg eintök (8) 25. Lygi er eins í Mæri. (8) 26. Innflytjandinn sem nær aldrei að byrja? (7) 28. Gáfulegt dráp að sögn enskra á aumingja (7) 30. Flóttaviðbragð markast af hræðilegri konu. (5) Jón Viktor Gunnarsson vannöruggan sigur á Tölvuteks-mótinu, hinu hefðbundna haust- móti Taflfélags Reykjavíkur, sem lauk í síðustu viku. Hann hlaut 7 ½ vinning af níu mögulegum og var sigur hans aldrei í hættu. Jón Vikt- or hefur lítið teflt undanfarin ár en auki hann taflmennsku sína hlýtur hann fyrr eða síðar að banka á dyr hjá landsliðinu. Lenka Ptacnikova varð í 2. sæti með 6 ½ v. og Sævar Bjarnason varð í 3. sæti með 6 vinninga. Sævar hefur verið manna duglegastur við að taka þátt í op- inberum mótum hér á landi. Þar sem enginn efstu manna er félagi í TR hlýtur Daði Ómarsson nafnbótina Skákmeistari Taflfélags Reykjavíkur en hann varð í 5. sæti, hlaut 4 ½ vinning af níu mögu- legum. Í b-riðli sigruðu Dagur Ragn- arsson og Jón Trausti Harðarason með 6 ½ v. af átta mögulegum en félagi þeirra úr Rímaskóla, Oliver Jóhannesson, kom næstur með 6 v. Í c-riðli vann Dawid Kolka með 7 v. af 9 mögulegum en Hilmir Freyr Heimisson og Bjarnsteinn Þórsson komu næstir með 6 ½ v. Jón Viktor hóf mótið af miklum krafti og lagði þar grunninn að sigri sínum. Hann mætti Daða Óm- arssyni í 2. umferð en Daði, sem er feikilega vel að sér í byrjunum, gáði ekki að sér á mikilvægu augnabliki og Jón Viktor náði að spila út óvæntum leik sem lagði stöðu Daða í rúst í einu vetfangi: Daði Ómarsson – Jón Viktor Gunnarsson Frönsk vörn 1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rc3 Rf6 4. e5 Rfd7 5. f4 c5 6. Rf3 Rc6 7. Be3 Be7 8. Dd2 O-O 9. dxc5 Þetta afbrigði sem kennt er við Wilhelm Steinitz nýtur mikilla vin- sælda um þessar mundir. 9. … Bxc5 10. O-O-O Da5 11. Bxc5 Rxc5 12. Kb1 Bd7 13. h4 Hfd8 14. Be2 Hac8 15. h5 Be8 16. h6? Daði vildi stytta sér leið að settu marki en leikurinn er afar óná- kvæmur. Hann varð að skorða d- peðið og leika 16. Rd4 eða 16. Rb5 strax. 16. … d4! 17. Rb5 17. … d3! Hvítur er bjargarlaus því 18. Dxa5 er einfaldlega svarað með 18. … Rxa5 og vinnur mann. 18. cxd3 Dxb5 19. D4 Da4 20. Hxg7 Re4 21. De1 Rb4 22. a3 Rc3+! Laglegur lokahnykkur, 23. bxc3 er svarað með 23. … Db3+ og mát í næsta leik. Friðrik tefldi á minning- armóti um Bent Larsen Friðrik Ólafsson varð í 6. – 17. sæti á minningarmótinu um Bent Larsen sem lauk í Álaborg í Dan- mörku um síðustu helgi. Nokkrir aðrir öflugir skákmenn af kynslóð Larsens tóku þátt auk Friðriks, t.d. Wolfgang Uhlmann. Friðrik varð í 6. – 17. sæti af 61 kepp- anda, hlaut 4 ½ vinning af sjö mögulegum, vann tvær skákir og gerði fimm jafntefli. Sigurvegari varð Jens Kristiansen. Tafl- mennska Friðriks í sigurskák- unum tveimur var þróttmikil en hann var fullmikill diplómat er hann mætti minni spámönnunu0m. Markmið hans var vitaskuld að heiðra minningu Larsens en þeir Friðrik háðu marga hildi á meira en 50 ára tímabili. Larsen steig sín fyrstu skref í skákinni í Álaborg og Danir minnast hans ávallt með mikilli virðingu og hlýju. Jóhanna efst á Íslandsmóti kvenna Eftir þrjár umferðir á Íslandsmóti kvenna hefur Jóhanna Björg Jó- hannsdóttir náð forystu með fullu húsi vinninga. Tinna Kristín Finn- bogadóttir kemur næst með 2 ½ vinning og í 3. – 5. sæti eru þær Lenka Ptacnikova, Elsa María Kristínardóttir og Nancy Davíðs- dóttir með 2 vinninga. Keppendur eru 12 og tefla sjö umferðir eftir svissneska kerfinu. Helgi Ólafsson helol@simnet.is SKÁK Vildi stytta sér leið Verðlaun eru veitt fyrir krossgátu vikunnar. Senda skal þátttökuseðilinn í um- slagi merktu: Krossgáta Morgunblaðsins, Hádeg- ismóum 2, 110 Reykjavík. Frestur til að skila úrlausn krossgátu 27. október rennur út á hádegi 2. nóv- ember. Nafn vinningshafa er birt í blaðinu 4. nóv- ember. Vinningshafi krossgátunnar 21. október er Halldór Ármannsson, Fellsmúla 10, 108 Reykjavík. Hann hlýtur í verðlaun bókina Illsku eftir Eirík Örn Norðdahl. Forlagið gefur bókina út. KROSSGÁTUVERÐLAUN Nafn Heimilisfang Póstfang
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.