Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.10.2012, Síða 64

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.10.2012, Síða 64
SUNNUDAGUR 28. OKTÓBER 2012 Ástríðufullir, blíðir, mjúkir og krassandi kossar í Leigunni Þín ánægja er okkar markmið Fjöldi mynda með eftirminnilegustu kossum kvikmyndasögunnar. Skannaðu QR kóðann og dettu í sleik. Skannaðu kóðann, leggðu símann niður og auglýsingin lifnar við Hönnuðurinn Sruli Recht opnar um helgina dyrnar að nýrri verslun og sýningarrými að Bergstaðastræti 4, í viðbót við Vopnabúrið við Hólma- slóð. „Á nýja staðnum verður hægt að skoða fatnað úr bæði sumar- og vetrarlínum frá okkur, ásamt því að ýmsir sígildir hlutir úr smiðjunni verða til sýnis og ná þeir munir aftur til ársins 2008,“ segir Sruli, en hönnun hans hefur vakið athygli víða um heim. „Við verðum einnig með margvíslegt her- raskart úr svörtu silfri en það er eitt af ein- kennum okkar.“ Um helgina verður svokallað „soft-launch“ á versluninni og að 2 vikum liðnum verður neðri hæðin klár sem sýningarrými fyrir ýmsa muni en efri hæðin býður herrunum upp á margvíslega upplifun með fötum, fylgihlutum og fleiru. SRULI RECHT OPNAR Í BERGSTAÐASTRÆTI Nýja verslunin verður með herrafatnað og marg- víslega fylgihluti í bland. Ný verslun og sýningarrými Stíll Sruli Recht er um margt sérstæður enda eru bæði Karl Lagerfeld og Lenny Kravitz meðal þeirra sem keypt hafa föt eftir hann. Lenny Kravitz Aðalleikarinn í þáttunum um hinn dagfarsprúða en kolruglaða fjöldamorðingja Dexter Morgan hefur sagt frá því í viðtölum að hann hafi undirbúið sig fyrir hlutverkið með því að æfa sig í að elta fólk án þess að það tæki eftir. Þetta stundaði hann í neðanjarðarlestum, verslunum og víðar til að reyna að setja sig í spor morðingja sem fylgist með bráð sinni á laun. Þættirnir um Dexter hafa notið mikilla vinsælda en þeir byggjast á samnefndum bókum Jeffs Lindsays. Ný þáttaröð með Dexter er á dagskrá SkjásEins á sunnudag kl. 22. FÁMÁLL FJÖLDAMORÐINGI Michael C. Hall hefur hlotið mikið lof fyrir túlkun sína á Dexter. Dexter snýr aftur á skjáinn SJÖUNDA ÞÁTTARÖÐIN UM SIÐBLINDINGJANN DEXTER SEM STARFAR HJÁ RANNSÓKNARLÖGREGLUNNI Á MIAMI FER Í LOFTIÐ Á SUNNUDAG Á SKJÁEINUM Í þættinum „Þegar tíminn hverfur“ er rætt við Önnu Þor- valdsdóttur tón- skáld sem í nóv- ember veitir Tónskáldaverðlaunum Norður- landaráðs 2012 viðtöku en verð- launin hlýtur hún fyrir verkið Dreymi. Er rætt við Önnu m.a. um feril hennar, bakgrunn o.s.frv. á RÚV á sunnudaginn kl. 20.15. ÞEGAR TÍMINN HVERFUR Stöð 2 kl.22.05 á sunnudag Næstsíðasti þátturinn í þessari fimmtu þáttaröð af Mad Men. Don Draper og félagar fara mikinn í villtum heimi auglýsingabransa sjötta áratugarins á Madison Avenue í New York. ÓÐIR AUGLÝSINGAMENN Það verður án vafa hart barist á Stamford Bridge leikvanginum í dag þar sem stórliðin Chelsea og Man- chester United mætast í ensku úr- valsdeildinni. Stöð 2 Sport á sunnudaginn kl. 15:45. ENSKA ÚRVALSDEILDIN Jennifer Carpenter

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.