Morgunblaðið - 02.11.2012, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 02.11.2012, Blaðsíða 23
FRÉTTIR 23Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2012 Nú geta allir fengið iPad-áskrift Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/ „Þetta mál er í nákvæmlega sama farvegi og öll önnur mál og það er ekki á nokkurn einasta hátt verið að stinga því undir stól,“ segir Bryndís Kristjáns- dóttir, skattrannsóknarstjóri ríkisins, um kæru á hendur DV vegna ógreiddra vörsluskatta, sem greint var frá í september. Eins og fram hefur komið í Morgunblaðinu var kæran send sérstökum saksóknara 30. sept- ember sem leið. Hann áfram- sendi hana til embættis skatt- rannsóknarstjóra. Ítrekunarbréf vegna kærunnar var síðan sent embættinu fyrir helgi. Málið skoðað Bryndís staðfestir að embætti skattrannsóknarstjóra sé með umrædda kæru Skafta Harðar- sonar fyrir hönd Samtaka skatt- greiðenda á sínu borði en áréttar að embættið staðfesti al- mennt ekki hvort einstök mál séu þar til rannsóknar eða ekki. „Það er búið að skoða þetta mál og það er í alger- lega eðlilegum farvegi,“ segir hún. Bryndís leggur áherslu á að Skafti Harðarson sé ekki aðili málsins og því muni hann ekki heyra af því frá embættinu. Í frétt um málið í gær kom fram að skattrannsóknarstjóri hefði ekki svarað skilaboðum vegna þess en það er ekki rétt. Hins vegar náði símtalið ekki til blaðamanns og er beðist velvirð- ingar á því. Engum málum stungið undir stól  Mál DV í eðlilegum farvegi Bryndís Kristjánsdóttir Það sem af er árinu 2012 hafa tæp- lega 10 einstaklingar greinst með kíghósta á Íslandi en ekkert tilfelli greindist árið 2011. Flestir ein- staklinganna eru börn yngri en 5 mánaða og því ekki fullbólusett og nokkur þeirra þurftu á innlögn á sjúkrahús að halda. Sóttvarnalæknir vill minna á að kíghósti er fyrst og fremst alvar- legur sjúkdómur hjá börnum á fyrstu mánuðum ævinnar en getur valdið langvarandi hósta hjá eldri einstaklingum, að því er segir á vef Landlæknis. Bólusetning gegn kíg- hósta er frábrugðin öllum öðrum bólusetningum á þann veg að verndin endist einungis í um 10 ár og bólusetningin útrýmir ekki bakt- eríunni úr samfélaginu. Kíghósti greinist meðal ungra barna Gylfaflöt 16-18 •112 Reykjavik • Sími 553 5200 • solo.is Íslensk hönnun og framleiðsla Bessi Hönnuður: Erla Sólveig Óskarsdóttir Hægt að velja um lit og áferð að eigin vali Verð frá kr. 52.600 E-60 Klassísk hönnun frá 1960 Hægt að velja um lit og áferð að eigin vali Verð frá kr. 24.300 Skata Hönnuður: Halldór Hjálmarsson Fæst í beyki, eik og tekk Verð frá kr. 26.500 Sindrastóll Hönnuður: Ásgeir Einarsson Fáanlegur í ýmsum litum Verð stóll kr. 162.000 skemill kr. 48.000 Betri heilsa borgar sig! Faxafeni 14 · Sími 560 1010 · heilsuborg.is Hefst 6. nóvember• Þri og fim kl. 11:00-12:00• 4 vikur• Verð kr. 12.900• MÁ BJÓÐA ÞÉR UPP Í DANS? Nýtt og spennandi námskeið í Heilsuborg fyrir 60 ára og eldri Ef þú ert hress 60 ára eða eldri og finnst gaman að hreyfa þig í takt við tónlist komdu þá og prófaðu ZUMBA Gold

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.