Morgunblaðið - 02.11.2012, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2012
Neyðarkall björgunarsveitanna, sem
seldur verður í fjáröflunarskyni um
helgina, er leitar- og björgunarkafari.
Guðjón Sigurður Guðjónsson, leitar- og
björgunarkafari og slökkviliðsmaður, fór
af því tilefni í búninginn og setti á sig
grænar blöðkur – rétt eins og Neyð-
arkallinn.
„Ég hef verið kafari hjá björgunar-
sveitunum síðan 1988 og er yfirleiðbein-
andi í björgunarköfun hjá Björg-
unarskólanum,“ sagði Guðjón. Hann er
einnig kafari hjá Slökkviliði höfuðborg-
arsvæðisins auk þess að sinna slökkvi-
störfum. Guðjón er í björgunarsveitinni
Ársæli sem starfar á Seltjarnarnesi og í
Reykjavík. Hún sinnir leit og björgun
allt frá hafsbotni og upp á hæstu fjöll.
Guðjón sagði það vera mjög misjafnt á
milli ára hvað leitar- og björgunarkaf-
arar fengju mörg útköll. Oftast væri um
að ræða leit að týndu fólki. Það væri
einnig áramunur á því margir vildu læra
leitar- og björgunarköfun í Björg-
unarskólanum.
„Við kennum ekki köfun sem slíka
heldur kennum við nokkuð vönum köf-
urum að leita í vatni,“ sagði Guðjón. „Við
tökum kafarana í stíft námskeið í leitar-
aðferðum. Eftir það geta þeir unnið í
leitarhópi.“ Venjulega er miðað við að
um fimm manns séu í leitarhópi. Þeir
skiptast á um að kafa og eru með línu og
fjarskipti við þá sem eru ofansjávar. Ör-
yggiskafari er alltaf til taks. Yfirleitt eru
allir í hópnum vanir kafararar. En hvað
þarf maður til að verða leitar- og björg-
unarkafari?
Guðjón sagði að flestir gætu lært
sportköfun en það þyrfti meiri þekkingu
og grunnnám björgunarfólks til að sinna
leit og björgun í vatni.
„Maður má ekki fá innilokunarkennd.
Margir fyllast henni þegar þeir eru
komnir í búnaðinn og í vatn í lélegu
skyggni. Einnig þarf maður að geta jafn-
að þrýsting út í eyru,“ sagði Guðjón. Það
geta ekki allir gert í vatni. Margir flug-
farþegar kannast við helluna sem þeir fá
í lendingu eða flugtaki flugvélar. Það
sama gerist hjá köfurum. Sumir grípa
fyrir nasirnar og blása út í nefið. Öðrum
dugar að kyngja til að jafna þrýstinginn.
gudni@mbl.is
Neyðarkall
til fólksins
Sala á Neyðarkalli björgunarsveitanna hafin
Morgunblaðið/RAX
Ýtt úr vör Söfnunin hófst með því að Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og kona hans, Dorrit Moussaieff, keyptu tvo Neyðarkalla í Smáralind.
Ljósmynd/Kristján Maack
Neyðarkallinn er kafari Guðjón Sigurður Guðjónsson
kennir leitar- og björgunarköfun í Björgunarskólanum.
Hæstiréttur hef-
ur staðfest
tveggja ára
fangelsisdóm yf-
ir karlmanni á
þrítugsaldri.
Hann var
dæmdur í Hér-
aðsdómi Norð-
urlands eystra
fyrir að hafa nauðgað konu á
Akureyri í júní fyrra.
Jóhann Ingi Gunnarsson var
sakfelldur fyrir að hafa nauðgað
konunni eftir samkvæmi og not-
fært sér að hún gat ekki spornað
við verknaðinum sökum ölvunar
og svefndrunga.
Dómurinn gerði honum að
greiða konunni eina milljón
króna í miskabætur. Þá þarf Jó-
hann Ingi að greiða áfrýjunar-
kostnað málsins, alls tæpar 1,2
milljónir króna.
Staðfestir dóm
vegna nauðgunar
Hæstiréttur stað-
festi í gær dóm
yfir konu á þrí-
tugsaldri sem
dæmd var í
fimmtán mánaða
fangelsi í Hér-
aðsdómi Reykja-
víkur fyrir að
hafa flutt inn
kókaín frá Spáni.
Hún var sakfelld fyrir að hafa
lagt á ráðin um að flytja inn samtals
rúm 464 grömm af kókaíni í ágóða-
skyni.
Konan, sem fædd er árið 1989,
neitaði allri sök í málinu en héraðs-
dómur taldi framburð hennar afar
ótrúverðugan. Refsing hennar var
því staðfest af Hæstarétti en gæslu-
varðhald sem hún sætti dregst frá
þeim tíma sem hún þarf að afplána.
Flutti inn kókaín frá
Spáni í ágóðaskyni
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Heimilið nefnist nýtt búsetuform
sem ætlað er einstaklingum og sam-
búðaraðilum sem þurfa umfangs-
mikla heimaþjónustu. Heimilið verð-
ur í einkarekstri og er því ætlað að
þjónusta ólíka aldurshópa sem þurfa
á aðstoð að halda.
Félagið sem sér um reksturinn
heitir Sinnum ehf. Framkvæmda-
stjóri þess er Ásta Þórarinsdóttir.
Fyrirtækið er fimm ára og hefur til
þessa að mestu leyti sinnt heima-
þjónustu en býður nú í fyrsta skipti
upp á sérstök herbergi og stúd-
íóíbúðir þar sem þjónusta er veitt all-
an sólarhringinn. ,,Við höfum fundið
aukna eftirspurn á þessu ári. Við
finnum það að margir þurfa um-
fangsmikla heimaþjónustu, t.d. áður
en þú ferð á hjúkrunarheimili. Þetta
er nokkurs konar millistig. Þetta
getur t.a.m. gagnast eldri hjónum
sem eru á misjöfnum stað í lífinu og
þurfa mismikla umönnun. Hinn hóp-
urinn er ungt fólk sem þarf ein-
hverra hluta vegna að fá þjónustu
heim til sín og vill prófa að búa
sjálft,“ segir Ásta.
Hún þekkir ekki til þess að boðið
sé upp sambærilega þjónustu fyrir
ólíka aldurshópa á Íslandi. „Eitt af
því sem fólk hefur talað um að sig
vanti er félagsskapur. Við erum með
mikið af sameiginlegu rými þar sem
fólk getur talað saman. Svo erum við
líka með um 25 fermetra herbergi og
ef fólk vill dvelja þar án þess að hafa
samskipti við aðra þá er það hægt
líka,“ segir Ásta.
Starfsemin verður í Holtsbúð 87
sem er í eigu Páfagarðs í Róm. Í hús-
inu bjuggu áður nunnur en Garða-
bær leigði um hríð húsnæðið undir
starfsemi elliheimilis. Engin starf-
semi hefur verið í húsinu síðasta árið.
Grunnverð fyrir búsetu með þjón-
ustu á Heimilinu er 320 þúsund krón-
ur á mánuði. Innifalin er meðal ann-
ars persónuleg aðstoð tvisvar á dag
og umönnun allan sólarhringinn.
Hægt er að kaupa meiri aðstoð og fer
verðið þá eftir „umfangi og eðli að-
stoðarinnar,“ segir í fréttatilkynn-
ingu.
Nýtt búsetuform fyrir hjálparþurfi
Heimilið býður ólíkum aldurshópum upp á umönnun Grunnverð 320 þúsund krónur
Morgunblaðið/Golli
Heimilið Ásta Þórarinsdóttir kynnir starfsemi Heimilisins sem brátt tekur til starfa. Heim-
ilinu er ætlað að sinna öllum þeim sem þurfa sérstaka umönnun óháð aldri þeirra.
Morgunblaðið/Golli
Í eigu Páfagarðs Heimilið er í húsi sem er í eigu Páfa-
garðs. Þar bjuggu áður kaþólskar nunnur.
Hæstiréttur hefur staðfest sex mán-
aða dóm yfir manni sem réðst tví-
vegis á þáverandi eiginkonu sína og
barnsmóður. Maðurinn var ákærð-
ur fyrir að hafa í september 2010
ráðist á konuna á heimili þeirra, rif-
ið í hár hennar svo hún féll í gólfið
og sparkað einu sinni hægra megin
í brjóstkassa hennar. Nokkrum
dögum síðar réðst hann aftur á
konuna, sló hana, hótaði að drepa
hana og ógnað henni með hnífi.
Fékk sex mánaða dóm
fyrir líkamsárás