Morgunblaðið - 14.11.2012, Side 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 2012
Egill Ólafsson
egol@mbl.is
Dómari í máli íslensku stúlknanna,
sem handteknar voru í Tékklandi í
síðustu viku með kókaín falið í
ferðatöskum, tjáði þeim að ef þær
væru samvinnuþýðar væri hægt að
ljúka málinu og kveða upp dóm
innan þriggja mánaða. Stúlkurnar
sögðu fyrir dómnum að þær vissu
ekkert um fíkniefnin sem fundust í
töskum þeirra.
Stúlkurnar eru 18 ára gamlar.
Þær voru að koma frá Brasilíu með
millilendingu í München í Þýska-
landi. Tollverðir í München urðu
varir við fíkniefnin, en ákváðu að
leyfa þeim að fljúga áfram til
Tékklands þar sem þær voru hand-
teknar. Enginn annar hefur verið
handtekinn í tengslum við rann-
sókn málsins. Í Tékklandi beið
þeirra leigubíll. Bílstjóri hans sagði
að hann hefði verið beðinn um að
aka þeim frá flugvellinum á járn-
brautarstöðina. Ekkert bendir til
þess að hann tengist málinu.
Enn óvissa um magnið
Ekkert er því vitað um þá sem
taldir eru hafa skipulagt fíkniefna-
smyglið, en útilokað er talið að
stúlkurnar hafi einar staðið að
smyglinu.
Ekki er búið að leggja fram upp-
lýsingar um hversu mikið af fíkni-
efnum var í töskunum en í fyrstu
frétt tékkneskra fjölmiðla um mál-
ið sagði að fundist hefðu tæplega
átta kíló af kókaíni í töskunum.
Ekki er víst að magnið sé svo mik-
ið. Einnig á eftir að ljúka rannsókn
á styrk efnanna.
Stúlkurnar voru handteknar á
miðvikudag og voru í yfirheyrslum
fram á fimmtudagsmorgun. Þær
komu síðan fyrir dómara á föstu-
dag þar sem þær voru úrskurðaðar
í sjö mánaða gæsluvarðhald. Ekki
er óalgengt í Tékklandi að menn
sem grunaðir eru um alvarleg brot
séu dæmdir í svo langt gæslu-
varðhald.
Dómari sagði við stúlkurnar á
föstudaginn að ef þær væru sam-
vinnuþýðar væri hægt að ljúka
rannsókn málsins og kveða upp
dóm innan þriggja mánaða. Þær
gáfu ekkert til kynna á föstudaginn
að þær væru tilbúnar til að aðstoða
við rannsókn málsins. Þær sögðust
ekkert vita um fíkniefnin sem
fundust í töskunum og gáfu því
engar upplýsingar um hver hefði
komið þeim þar fyrir eða hvað þær
ætluðu að gera við efnin.
Stúlkurnar eru hvor í sínu
fangelsinu og munu að öllu
óbreyttu verða þar næstu sjö mán-
uðina eða þar til dómur fellur. Þær
hafa ekki fengið að tala við for-
eldra sína og raunar hefur enginn
Íslendingur talað við þær síðan
þær voru handteknar nema ræðis-
maður Íslands í Prag. Reiknað er
með að þær verði yfirheyrðar að
nýju í þessari viku og þá reynir á
hvort þær muni á einhvern hátt að-
stoða lögreglu við rannsókn máls-
ins.
Búið að skipa lögmenn
Búið er að skipa stúlkunum lög-
menn og túlkur aðstoðar þær. Þær
geta átt von á að fá þunga dóma.
Verjendur þeirra vonast eftir að
ungur aldur þeirra hafi áhrif á
refsinguna, en eins geta þær átt
von á vægari dóm ef þær aðstoða
við rannsókn málsins. Frekar
sjaldgæft er hins vegar að burð-
ardýr segi til þeirra sem skipu-
leggja fíkniefnasmygl.
Hafa farið í meðferð
Ekkert liggur fyrir um hvort
stúlkurnar muni taka út refsingu á
Íslandi, en það kemur ekki til álita
fyrr en rannsókn lögreglu er lokið
og búið er að dæma í málinu.
Feður stúlknanna sögðu í Kast-
ljósi Ríkisútvarpsins í fyrrakvöld
að báðar stúlkurnar hefðu byrjað
ungar í vímuefnaneyslu og af-
brotum. Þær hafa báðar farið í
meðferðir vegna neyslu sinnar en
ekki náð tökum á vandanum.
Sögðust ekkert vita um efnin
Dómari í máli íslensku stúlknanna í Tékklandi hvatti þær til þess að vera
samvinnuþýðar Engir aðrir höfðu í gær verið handteknir í tengslum við málið
Ljósmynd/celnisprava.cz
Flugvöllurinn í Prag Kókaínið var falið innan undir klæðningu í töskunum.
Í tilefni af alþjóðlega sykursýkis-
varnadeginum, miðvikudaginn 14.
nóvember, stendur Lions á Íslandi
fyrir ókeypis blóðsykursmælingum í
dag og næstu daga. Alþjóðahreyfing
Lions stendur fyrir þessum degi,
þar sem tilgangurinn er að fræða al-
menning um sjúkdóminn og finna þá
sem ganga með dulda sykursýki.
Áunnin sykursýki er í mikilli sókn
á Vesturlöndum um þessar mundir.
Aukin þyngd manna og auknar kyrr-
setur bjóða heim þessum vágesti.
Talið er að hundruð manna á Íslandi
gangi með sykursýki án þess að vita
það. Í dag verða mælingar í Reykja-
vík í Lyfju Lágmúla og Apótek-
aranum í Mjódd frá kl. 14-17. Í
Grindavík verða mælingar á föstu-
daginn kl. 13-16 og í öllum heilsu-
gæslustöðvum á Suðurlandi fara
mælingar fram mánudaginn 26. nóv-
ember nk.
Á öðrum stöðum, s.s. á Suður-
nesjum, Hornafirði, Vestmanna-
eyjum og á Austfjörðum, verða mæl-
ingar í boði og verða nánari tilhögun
og tímasetningar tilkynntar sér-
staklega á hverjum stað.
Morgunblaðið/G.Rúnar
Sykursýki Blóðsykursmæling er
einföld og fljótleg aðgerð.
Blóðsykur
mældur í
boði Lions