Morgunblaðið - 14.11.2012, Side 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 2012
Við eigum 15 ára afmæli
Af því tilefni eru þessar vélar á sérstöku afmælistilboði
Borvél 14.4 volt
Gírar 2 36Nm,
með dioðuljósi,
2 rafhlöður, 30 mín
hleðslutæki.
Afmælistilboð
kr. 26.900.-
Borvél 12 Volta
Gírar 2, 30Nm,
2 rafhlöður,
30 mín hleðslutæki.
Afmælistilboð
kr.17.900.-
Síðumúla 11, 108 Reykjavík,
sími 568 6899, vfs@vfs.is
www.vfs.is
Hörður Ægisson
hordur@mbl.is
Greiðsluþroti gríska ríkisins var af-
stýrt í gær þegar stjórnvöldum tókst
að selja ríkisvíxla til skamms tíma
fyrir ríflega fjóra milljarða evra.
Kaupendur voru grískir bankar.
Fimm milljarðar evra í skammtíma-
lánum eru á gjalddaga næstkomandi
föstudag, en á næstu dögum munu
grískir ráðamenn ganga frá því að
tryggja sér það fjármagn sem þarf
til viðbótar til að greiða skuldina.
Á síðustu dögum hefur kastljós
evrópskra stefnusmiða og fjárfesta
enn á ný beinst að skuldastöðu
Grikklands. Fyrri efnahagsáætlanir
hafa ekki gengið eftir. Samdráttur í
hagkerfinu hefur reynst djúpstæð-
ari en vonir stóðu til og harkalegar
aðhaldsaðgerðir hafa að sama skapi
ekki skilað settu marki. Fjármála-
ráðherrar evruríkjanna samþykktu
því á fundi sínum í fyrradag að veita
grískum stjórnvöldum lengri frest –
til ársins 2016 í stað 2014 – til að ná
markmiðum sínum í ríkisfjármálum.
Að sögn greinenda munu skuldir
gríska ríkisins nema um 190% af
vergri landsframleiðslu árið 2014. Á
fundi fjármálaráðherranna var því
hins vegar frestað um eina viku að
taka ákvörðun um 31,3 milljarða
evra greiðslu til Grikklands af neyð-
arláni sem því var veitt fyrr á árinu.
Ágreiningur ríkir ennfremur á
milli Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og
forystumanna evrusvæðisins um
þær aðgerðir sem grípa þarf til í
tengslum við skuldavanda Grikk-
lands. Jean-Claude Juncker, sem er
í forsvari fyrir evruríkin, lét hafa
það eftir sér á fjölmiðlafundi að veita
ætti Grikklandi frest til ársins 2022
til að ná því markmiði að skuldir rík-
isins verði ekki umfram 120% af
vergri landsframleiðslu. Christine
Lagarde, framkvæmdastjóri AGS,
segir sjóðinn hins vegar ekki hafa
breytt afstöðu sinni um að því mark-
miði verði að ná árið 2020. Frá því er
greint í Financial Times að Juncker
hafi brugðist við ummælum Lagarde
með því að endurtaka fyrri afstöðu
sína og sagt að hann hafi ekki verið
að gera að gamni sínu. Lagarde var
ekki skemmt og hristi þá höfuðið og
ranghvolfdi augunum.
Samdráttur sjötta árið í röð
Greinendur benda á að áhersla
AGS á að ekki verði horfið frá fyrri
tímasetningu undirstriki þá skoðun
sjóðsins að nauðsynlegt sé að ráðast
í afskriftir á skuldum Grikklands.
Að öðrum kosti verði skuldastaða
ríkisins aldrei sjálfbær. Í þeim efn-
um er ekki síst horft til þeirra lána
sem evruríkin og Evrópski seðla-
bankinn hafa veitt Grikklandi. Ljóst
þykir þó að lítill áhugi sé af hálfu
þessara aðila á að tapa á lánveit-
ingum sínum.
Það er hins vegar hætt við því að
fáir aðrir valkostir séu í stöðunni.
Hagfræðingar telja að lenging lána
eða lægri vextir hrökkvi skammt til.
Á næsta ári er gert ráð fyrir því að
hagkerfið dragist saman sjötta árið í
röð. Að öðru óbreyttu er það mat
AGS að skuldir ríkisins verði um
160% af landsframleiðslu 2020.
Greiðsluþroti Grikk-
lands afstýrt enn á ný
Grískir bankar keyptu ríkisvíxla AGS og evruríkin deila
AFP
Blikur á lofti Skuldir gríska ríkisins verða 190% af landsframleiðslu 2014.
Langt í land
» Grískir bankar keyptu rík-
isvíxla í gær af gríska ríkinu
fyrir ríflega 4 milljarða evra.
Greiðsluþroti ríkisins afstýrt.
» Ágreiningur á milli AGS og
evruríkjanna um hvernig eigi
að taka á skuldavanda
Grikkja.
» Engar líkur taldar á því að
skuldir gríska ríkisins verði
undir 120% árið 2020.
Nýlegar hagspár
hafa ofmetið
vöxt einkaneyslu
hér á landi að því
er greining-
ardeild Íslands-
banka segir.
Kortaveltutölur
benda til þess að
vöxtur einka-
neyslu á seinni
helmingi ársins
verði mun hæg-
ari en á fyrri helming ársins og að
vöxtur einkaneyslu gæti verið of-
metinn í nýlegum hagspám. Í ný-
birtum tölum Seðlabankans kemur
fram að kortavelta einstaklinga
innanlands í október óx um 1,4% að
raungildi frá sama mánuði fyrra
árs, en kortavelta á þennan mæli-
kvarða gefur góða vísbendingu um
þróun einkaneyslu.
Þetta er minni vöxtur en verið
hefur undanfarið, en það sem af er
þessu ári hefur vöxturinn á þennan
mælikvarða verið að meðaltali 2,4%
í mánuði hverjum borið saman við
sama mánuð fyrra árs. Greiningar-
deildin segir að fyrstu 10 mánuði
ársins hafi kortavelta einstaklinga
innanlands aukist um 2,1% að raun-
gildi frá sama tímabili í fyrra og því
ljóst að með sama áframhaldi verði
vöxturinn á þessu ári heldur minni
en á síðasta ári þegar kortavelta á
þennan mælikvarða jókst um 4,6%.
Greiningardeildin segir að korta-
velta á síðari helmingi ársins sé að-
eins um 0,7% og að þetta bendi til
þess að vöxtur einkaneyslu verði
mun hægari á seinni helmingi árs-
ins en þeim fyrri og gætu nýlegar
hagspár verið að ofmeta vöxt
einkaneyslu á þessu ári haldi þessi
þróun áfram.
Hafa of-
metið
vöxtinn
Einkaneysla að
dragast saman
Kort Minni velta
– minni einka-
neysla.
Rickard Gustafson, forstjóri SAS-
flugfélagsins, er nú staddur í Kaup-
mannahöfn þar sem hann hyggst
ræða við starfsfólk fyrirtækisins um
fyrirhugaðar sparnaðaraðgerðir sem
opinberaðar voru í gær. Danskir flug-
liðar fyrirtækisins eru ævareiðir
vegna framgangs stjórnar SAS.
Félag flugliða hjá SAS, sem heitir
SAS Cabin Crew, segir að stjórn fyr-
irtækisins hafi höfðað beint til félags-
ins í gegnum fjölmiðla, en láðst að
hafa nokkur samskipti við stéttar-
félag flugfreyja og -þjóna, Cabin Att-
endants Union, CAU, eins og reglur
segi til um.
„Við hjá CAU gerum okkur fulla
grein fyrir sérstöðu þessa ástands.
En það gefur fólki ekki leyfi til að
brjóta þær reglur sem eru í gildi um
samskipti starfsfólks og vinnuveit-
anda,“ segir í yfirlýsingu frá CAU
sem birt er á danska fréttavefnum
Epn.dk. Vegna þessa hefur stór hluti
danskra flugliða SAS ekki í hyggju
að mæta á þá fundi sem boðaðir hafa
verið á vegum fyrirtækisins í vikunni.
Um 1.400 danskir flugliðar starfa
hjá SAS. Ljóst er að uppsagnir
þeirra 800 starfsmanna sem starfa í
höfuðstöðvum fyrirtækisins munu
fyrst og fremst bitna á Dönum, en
400 þessara uppsagna verða í Dan-
mörku.
Danskir starfs-
menn SAS reiðir
Ætla að hunsa boðaða fundi
AFP
Reiðir Danskir flugliðar hjá SAS eru stjórn félagsins ævareiðir.
● Skráð atvinnu-
leysi í október síð-
astliðnum var
5,2%, en að með-
altali voru 8.187 án
atvinnu í október
og fjölgaði um 305
frá september.
Þetta kemur
fram á vef Vinnu-
málastofnunar.
Meðalatvinnuleysi
tímabilið janúar til október á þessu ári
var 5,8%, en 7,5% á sama tímabili
2011. Körlum á atvinnuleysisskrá fjölg-
aði um 199 og konum um 106. Atvinnu-
lausum fjölgaði um 106 á höfuðborg-
arsvæðinu en um 199 á landsbyggðinni.
Atvinnuleysið var 5,8% á höfuðborg-
arsvæðinu og fór úr 5,6% í september.
Atvinnuleysi nú 5,2%
Atvinnuleysi 5,2%
eru án vinnu.
● Útboð á ríkisvíxlum fór fram hjá
Lánamálum ríkisins í gær.
Alls bárust 13 gild tilboð í flokkinn
RIKV 13 0215 að fjárhæð 7.850 m.kr. að
nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir
7.350 m.kr. að nafnverði á verðinu
99,214 (flatir vextir 3,10%).
Alls bárust 11 gild tilboð í flokkinn
RIKV 13 0515 að fjárhæð 2.100 m.kr. að
nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir
1.500 m.kr. að nafnverði á verðinu
98,368 (flatir vextir 3,30%).
Ríkisvíxlar fyrir 8,8 ma
Stuttar fréttir…
!"# $% " &'( )* '$*
+,-./+
,01.-2
+,-.3
,+./++
,,.4,1
+/.0+
+45.22
+.2,,,
+/2.5
+24.1+
+,/.,,
,05.42
+,/.0-
,+./35
,,.4/
+/.022
+42.01
+.2,2/
+/3.0/
+24.-3
,,3.,/43
+,/.54
,05.-2
+,/.12
,,.04/
,,.152
+/.+,,
+42.1,
+.24+2
+/3.2-
+21.44
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á