Morgunblaðið - 14.11.2012, Síða 44
Morgunblaðið/Ómar
Markaður Svölurnar taka á móti varningi til 16. nóvember fyrir Svölumarkaðinn á Reykjavík Natura á laugardag.
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
„Þessi litlu börn sem eru með sjald-
gæfa sjúkdóma eru mjög illa stödd.
Þau fá litla athygli og við viljum beina
henni að þeim. Sunna Valdís er ein af
þeim. Hún er eina barnið á landinu
með sjúkdóminn AHC, Alternating
Hemiplegia of Childhood, og ein af
800 staðfestum tilfellum í veröldinni.
Í ár vildum við styrkja hana og fjöl-
skyldu hennar,“ segir Gréta Önund-
ardóttir, ein af Svölunum.
Næstkomandi laugardag, 17. nóv-
ember frá klukkan 10-17 verður hald-
inn markaður í Reykjavík Natura
(gamla hótel Loftleiðir). Þar fæst allt
fyrir börnin, allt nýtt eða sem nýtt á
skikkanlegu verði.
Þess má geta að á markaðnum í
fyrra rann ágóðinn til Guðmundar
Felix sem missti báða handleggi.
Hann bíður eftir að komast í handa-
ágræðslu. „Við reyndum að koma
Guðmundi í aðgerð erlendis en hann
bíður enn og er víst númer tvö á bið-
lista,“ segir Gréta.
Svölurnar láta gott af sér leiða
Svölurnar voru stofnaðar árið 1974
og samanstanda af starfandi eða fyrr-
verandi flugfreyjum og flugþjónum.
Þær hafa veitt fleiri hundruð styrki
frá stofnun. Undanfarin ár hafa þær
styrkt þá sem ekki eru ríkisstyrktir,
eins og t.d. MS- og MND-félögin.
Þær styrkja ótal verkefni. Til að
mynda vinna þær einnig að söfnun
fyrir Móavað, fjölfötluð börn sem
eru að safna fyrir bíl. Þá eru þær
að aðstoða við kaup og þjálfun á
hundi sem fylgir þriggja ára
stúlku með sjúkdóminn Dravet.
„Eftir að hún eignaðist hann hefur
dregið mjög úr flogaköstunum.
Hundinum fylgir mikið öryggi en
hann lætur vita þegar hún fær
flog. Auðveldara verður fyrir
foreldrana að hvíla sig,“ segir
Gréta og bendir á að við hljótum
öll að geta tekið höndum saman
og létt líf þeirra sem kljást við erfiða
sjúkdóma.
Stærri og erfiðari köst
„Tvö síðastliðin skipti hefur Sunna
verið að fá stærri og öðruvísi köst en
hún er vön að fá. Við vitum ekki af
hverju það stafar. Hún lamast frá
mitti og upp úr og fær krampa í fæt-
ur,“ segir Ragnheiður Erla Hjalta-
dóttir, móðir Sunnu. „Þá er líkaminn
alveg gagnslaus. Þegar kastið gekk
yfir þá skiptumst við hjónin á að
ganga með hana um gólf, það tekur
ansi mikið á. Sunna þjáist mikið í
köstunum en er með fullri meðvitund
meðan á þeim stendur. Lyfin sem
hún er með núna eru ekki að virka
sem skyldi. Eftir köstin er hún ringl-
uð og fúnkerar ekki vel á eftir, síðast
tók það hana fjóra daga að jafna sig.
En hún er rosalega ákveðinn ein-
staklingur og heldur ótrauð áfram,“
segir Ragnheiður Erla.
Svölurnar styrkja Sunnu Valdísi
Svölumarkaður-
inn laugardaginn
17. nóvember
MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 319. DAGUR ÁRSINS 2012
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 4190 I-PAD ÁSKRIFT 4190
1. „Heimilistrygging er tilgangslaus“
2. Hvattar til að vera samvinnuþýðar
3. Stúlkunum „leikið fram til fórnar“
4. 16 ára stúlka átti fíkniefnin
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Fimm valinkunnir rithöfundar sem
eru að gefa út nýjar skáldsögur lesa
úr verkum sínum í Bókasafni Mos-
fellsbæjar í kvöld klukkan 20. Á eftir
stýrir bókmenntafræðingurinn og
ráðherrann Katrín Jakobsdóttir um-
ræðum um verkin, eins og hún hefur
gert þar síðustu ár. Höfundarnir eru
Auður Ava Ólafsdóttir, Einar Kárason,
Kristín Steinsdóttir, Pétur Gunnars-
son og Þórarinn Eldjárn.
Morgunblaðið/Jakob Fannar
Bókmenntafræðing-
urinn og höfundarnir
Logi Bergmann Eiðsson, frétta-
maðurinn settlegi í snyrtilegu jakka-
fötunum, hefur sent frá sér Handbók
hrekkjalómsins. Þar eru sagðar
skemmtilegar sögur af hrekkjum,
m.a. af því er hann og Svanhildur
Hólm Valsdóttir „spegluðu“ íbúð
vinahjónanna Illuga Gunnarssonar og
Brynhildar Einarsdóttur og færðu til
alla innanstokksmuni sem ekki voru
naglfastir. Brynhildur hélt fyrst að
brotist hefði verið inn
og hringdi í bróður
sinn: „Það er búið að
breyta öllu hjá okk-
ur!“ „Nú,“ svaraði
bróðir hennar.
„Braust Vala
Matt inn hjá
þér?“
Innlit/útlit
Svala Björgvins-
dóttir og félagar
hennar í Steed
Lord eru búsett í
Los Angeles og
hafa ekki leikið
hér á landi í þrjú
ár. Nú eru þau
hins vegar vænt-
anleg og halda tónleika á Gamla
Gauknum 1. desember næstkomandi.
Steed Lord á Klak-
anum eftir langt hlé
Á fimmtudag Suðvestan- og vestanátt, 10-18 m/s. Rigning og síð-
ar él en þurrt að mestu N- og A-til og léttir til þar síðdegis. Hiti 2 til
7 stig en kólnar síðdegis.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Vaxandi suðvestanátt, fyrst SV-til og fer að
rigna síðdegis en áfram þurrt að mestu um landið austanvert. Hiti
yfirleitt 0 til 6 stig.
VEÐUR
„Maður vonast alltaf til þess að
fá að spila og það verður bara
að koma í ljós. Ég verð alla vega
klár ef kallið kemur. Svo mikið
er víst,“ segir Rúnar Már Sig-
urjónsson, knattspyrnumaður
úr Val, sem gæti spilað sinn
fyrsta A-landsleik í kvöld þegar
Ísland mætir Andorra.
Rúnar segir góðar
líkur á að hann sé
á leið í atvinnu-
mennsku áður en
langt um líður. »2
Vonast til
þess að fá að spila
Er ekki í handbolta til
að vera varamaður
Handboltamaðurinn Bjarki Már Elís-
son, einn af lykilmönnum í liði Ís-
landsmeistara HK, þarf að gangast
undir aðgerð en komið hafa í ljós
sprungur í báðum ristum leikmanns-
ins. Bjarki verður frá æfingum og
keppni í rúma tvo mánuði en hann
leikur sinn síðasta leik í bili fyrir
Kópavogsliðið á laugardaginn. »1
Bjarki Már þarf að gang-
ast undir aðgerð
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
„Köstin sem hún fær hafa mikil áhrif á þroskann. Hún hafði lært að segja
pabbi en eftir eitt kastið gat hún ekki sagt það í ár á eftir, en það gekk til
baka,“ segir Ragnheiður móðir Sunnu.
Fjórtán mánaða gömul greindist Sunna með sjaldgæfan tauga-
sjúkdóm, Alternating Hemiplegia of Childhood. Sunna er sú
eina sem hefur greinst á Íslandi með þennan
taugasjúkdóm. AHC einkennist af köstum
sem skilja eftir sig tímabundna lömun á
annarri eða báðum hliðum líkamans.
Sunna er ekki farin að tala ennþá en er
dugleg að nota Tákn með tali. Hún fer í
Klettaskóla þrjá tíma á dag. Stóri bróðir
Sunnu, Viktor Snær, styður dyggilega
við bakið á systur sinni og hjóp
Reykjavíkurmaraþon í sumar til
styrktar Sunnu.
Hætti að geta sagt pabbi
AFLEIÐINGAR AHC, ALTERNATING HEMIPLEGIA OF CHILDHOOD
Björgvin Páll Gústavsson fer frá
Magdeburg eftir þetta tímabil og vill
komast að hjá liði þar sem hann fær
að spila meira. „Það hentar mér ekki
að vera varamarkvörður. Ég vil vera
númer eitt og bera þar af leiðandi
meiri ábyrgð. Ég er í handbolta til að
spila,“ segir Björgvin Páll. »4