Morgunblaðið - 15.11.2012, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 15.11.2012, Qupperneq 19
FRÉTTIR 19Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2012 Skipulagsstofnun telur að kerfis- áætlun Landsnets, annars vegar fimm ára áætlun um raforkuþörf og hins vegar áætlun um þróun flutningskerfisins til ársins 2026, falli ekki undir lög um umhverfis- mat áætlana. Meginástæðan er sú að kerfisáætlunin er ekki samþykkt af stjórnvöldum. Landsnet hefur hug á því að leggja nýja flutningslínu frá Blönduvirkjun til Akureyrar. Það er umdeild framkvæmd. Skipulags- stofnun er með til athugunar frum- matsskýrslu fyrirtækisins vegna Blöndulínu 3. Í einni athugasemd við frum- matsskýrsluna var þess farið á leit við Skipulagsstofnun að kerfis- áætlun Landsnets yrði tekin til um- hverfismats. Kerfisáætlunin er unnin sam- kvæmt ákvæðum raforkulaga og reglugerð sem á þeim er byggð. Skipulagsstofnun vekur þó athygli á því að áætlunin er ekki undirbúin af stjórnvöldum og uppfylli þar af leiðandi ekki skilyrði laga um um- hverfismat áætlana. „Þrátt fyrir að í kerfisáætluninni sé fjallað um framkvæmdir sem falla undir viðauka laga um mat á umhverfisáhrifum þá getur áætl- unin aldrei falið í sér viðmið eða skilyrði sem hefur áhrif á ákvarð- anatöku svo sem um skipulag og framkvæmdir, þar sem áætlunin er ekki samþykkt af stjórnvöldum,“ segir meðal annars í úrskurði Skipulagsstofnunar. Kærufrestur til umhverfis- og auðlindaráðuneytisins er einn mán- uður frá birtingu tilkynningar um ákvörðun Skipulagsstofnunar. Morgunblaðið/Einar Falur Kerfisspá Landsnet gerir áætlanir um raforkuþörf og byggingu kerfisins. Kerfisáætlun ekki í umhverfismat ÖRUGGLEGA FYRIR ÞIG! Dynjandi hefur úrval af vönduðum kuldafatnaði fyrir alla, börn og fullorðna. Komdu og skoðaðu úrvalið. Dynjandi örugglega fyrir þig! GEFÐU ELSKU NNI ÞINNI HLÝJA GJÖF KULDAFATNA ÐUR FYRIR A LLA Skeifunni 3 - Sími: 588 5080 - dynjandi.is E N N E M M / S IA / N M 26 92 1 www.bygg.is LANGALÍNA 15-23 Byggingafélag Gylfa og Gunnars byggir á 28 ára reynslu á íslenskum byggingamarkaði. Sala er hafin á íbúðum í glæsilegu 3ja hæða fjölbýlishúsi við Löngulínu 15-23 í Sjálandi í Garðabæ. Íbúðirnar eru frá 67-157 fm. Íbúðirnar verða með vönduðum íslenskum innréttingum frá Brúnás og vönduðum AEG eldhústækjum. Íbúðirnar verða ýmist með góðum svölum eða stórri timburverönd. Stæði í bílageymslu fylgja flestum íbúðum. 150 m gönguleið í leikskóla og 350 m í grunnskóla Fjölskylduvænt hverfi í fallegu umhverfi R E Y N S L A • F A G M E N N S K A • M E T N A Ð U R NÝTT Sjálandi Garðabæ Sími: 520 9586 – Fax: 520 9599 Sími 562 4250 www.fjarfesting.is FJÁRFESTING FASTEIGNASALA EHF BORGARTÚNI 31

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.