Morgunblaðið - 15.11.2012, Page 44
44 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2012
Hljómsveitin Valdimar, meðsöngvarann og básúnu-leikarann Valdimar Guð-mundsson í fararbroddi,
hefur endurtekið leikinn, sent frá sér
aðra stórgóða hljómplötu, Um stund.
Með þeirri fyrstu, Undralandi,
stimplaði hljómsveitin sig inn í ís-
lenskan poppheim með glæsibrag og
var margan smell-
inn að finna á
þeirri skífu. Á nýju
skífunni er meiri
tregi á ferð í text-
um en á fyrstu
plötunni, þung-
skýjað en sólargeislarnir ná þó að
stinga sér í gegnum grámann. Vonin
er alltaf til staðar. Hljómheimurinn
er orðinn stærri hjá hljómsveitinni,
raftónlist orðin meira áberandi sem
og hljóðgervlar og þéttur slagverks-
leikur setur sinn brag á plötuna. Það
er mikið lagt í útsetningar og frágang
laga, platan er fágaðri í alla staði en
sú fyrsta enda mun hljómsveitin hafa
tekið sér góðan tíma í að fínpússa
hana. Lagið „Sýn“ er gott dæmi um
hinn stækkandi hljóðheim. Í því fer
hljómsveitin á mikið og marglaga
flug og gítarleikurinn sem ómar und-
ir viðlaginu minnir á U2 þegar hún
var upp á sitt besta. Hljóðfæraleikur
Valdimars-manna er hnökralaus líkt
og söngur Valdimars. Segja má að á
plötunni skiptist á skin og skúrir,
bæði hvað texta varðar og lagasmíð-
ar. Lögin byrja mörg hver á rólegu
nótunum og fara svo stigvaxandi upp
í kraftmikið popprokk. Mörg glæsi-
leg lög er að finna á Um stund og má
af þeim nefna fyrrnefnt lag, „Sýn“,
„Beðið eftir skömminni“, titillagið
„Um stund“ og „Leitina“. Platan hef-
ur að geyma tólf lög, grípur við fyrstu
hlustun og fer vaxandi eftir því sem
oftar er á hana hlýtt. Þá er umslagið
fallega hannað og í takt við innihald-
ið.
Skin og skúrir Valdimars
Valdimar - Um stund bbbbn
Breiðskífa hljómsveitarinnar Valdimar.
Hljómsveitina skipa Valdimar Guð-
mundsson, Ásgeir Aðalsteinsson, Guð-
laugur Guðmundsson, Þorvaldur Hall-
dórsson, Kristinn Evertsson og Högni
Þorsteinsson. Hljómsveitin gefur út.
HELGI SNÆR
SIGURÐSSON
TÓNLIST
Í sókn Það er mikið lagt í aðra breiðskífu hljómsveitarinnar Valdimar, Um
stund. Allt smellur saman og platan vex við hverja hlustun.
Ljósmynd/Guðmundur Vigfússon
Hugmyndin sem unnið erút frá í nýjustu teikni-mynd Disney-stórveld-isins, Wreck-It Ralph, er
stórskemmtileg. Persónur eru sótt-
ar í tölvuleiki, gamla sem nýja, og
þeim gefið sjálfstætt líf. Myndin
höfðar því bæði til foreldra sem ólust
upp við gamla tölvuleiki á borð við
Donkey Kong og barna sem vanist
hafa öllu þróaðri og flóknari leikjum
nútímans.
Aðalpersóna myndarinnar, Ralph,
er vondi kallinn í gömlum spila-
kassaleik, Fix-it Felix, og hefur það
hlutverk að rústa fjölbýlishúsi sem
hetjan Felix „fixari“ lagfærir jafn-
harðan. Ralph leiðist þetta hlutskipti
sitt og þráir að vera hetja eins og
Felix. Hann yfirgefur leikinn og
heldur inn í annan nýmóðins og stór-
hættulegan skotleik þar sem granda
þarf skaðræðispöddum. Þar leiðir
föngulegt herkvendi sveit þung-
vopnaðra manna. Ralph stelur sér
hetjuorðu í leiknum og er skotið fyr-
ir slysni út úr honum í flóttahylki.
Förin endar í sykursætum heimi
kappakstursleiksins Sugar Rush þar
sem Ralph situr fastur af ýmsum
ástæðum. Þegar Felix og félagar í
spilakassaleiknum komast að því að
Ralph er týndur verður uppi fótur
og fit, leikurinn óvirkur og hætta á
að kassinn verði tekinn úr sambandi
og leikurinn og allir sem honum til-
heyra tortímist. Felix hefur leit að
Ralph og verður ástfanginn af her-
kvendinu fyrrnefnda.
Allt útlit myndarinnar er eins og
best verður á kosið og skemmtilega
leikið með andstæður hins gamla og
nýja, hægfara heim gamalla tölvu-
leikja og háþróaðan heim hinna
nýju. „Hvílík upplausn,“ stynur Fel-
ix þegar hann sér herkvendið föngu-
lega. Það vantar ekki ærslin og
hamaganginn í myndina en fyndnari
mætti hún vera. Sagan er ósköp
þunn og teygð á langinn, í 101 mín-
útu. En þetta er fínasta afþreying
fyrir fjölskylduna og tveir fimm ára
guttar sem fylgdu gagnrýnanda
sögðu myndina „geggjaða“.
Tvennir tölvuleikjatímar
Sambíóin og Laugarásbíó
Wreck-It Ralph bbbmn
Leikstjóri: Rich Moore. Bandaríkin,
2012. 101 mín.
HELGI SNÆR
SIGURÐSSON
KVIKMYNDIR
Skemmdarvargur Ralph dreymir
um að verða hetja eins og Felix.
J. A. Ó. - MBL
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%GLERAUGU SELD SÉR 5%
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
STÓRBROTIN KVIKMYNDAVEISLA!
NÁNAR Á MIÐI.IS
CLOUD ATLAS KL. 8 16
PITCH PERFECT KL. 8 12
SKYFALL KL. 5.20 - 10.10 12
HOTEL TRANSYLVANIA KL. 6 7
CLOUD ATLAS KL. 4.30 - 8 16
PITCH PERFECT KL. 5.30 - 8 - 11 12
HOTEL TRANSYLVANIA ÍSL. TEXTI KL. 3.40 - 5.50 7
SKYFALL KL. 5 - 8 - 11 12
SKYFALL LÚXUS KL. 5 - 8 - 11 12
TEDDI LANDKÖNNUÐUR KL. 3.30 L
DJÚPIÐ KL. 11 L
T.V. - KVIKMYNDIR.IS
-ROGER EBERT
CLOUD ATLAS KL. 5.30 - 9 16
SKYFALL KL. 9 - 10.10 12
TAKEN 2 KL. 10.30 16
LOVE IS ALL YOU NEED KL. 8 L
DJÚPIÐ KL. 6 - 8 10
THE DEEP ENSKUR TEXTI KL. 5.50 10 SKYFALL Sýndkl.7-9-10(Power)
WRECK-IT RALPH 3D Sýndkl.6
PITCH PERFECT Sýndkl.8-10:15
TEDDI 2D Sýndkl.6
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
FYRSTA SINN Á ÍSLANDI! SÝNINGAR Í 4K - KL: 7 OG 10
POWE
RSÝN
ING
KL. 10
Í 4K
VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG
-bara lúxus sími 553 2075Miðasala og nánari upplýsingar
www.laugarasbio.is
12
12
L
L
,,Sú besta í allri seríunni”
T.V - Kvikmyndir.is
,,Fyrsta flokks 007”
J.A.Ó - MBL
,,Þrælspennandi og skemmtileg
frá upphafi til enda”
H.V.A - FBL
Þ.Þ - FBL
SKIPAGÖTU 7 - 600 AKUREYRI
SÍMI: 462 4646
LAUGAVEGI 24 - 101 REYKJAVÍK
SÍMI: 552 0800
Söluumboð fyrir Ray-Ban á Íslandi í 30 ár