Morgunblaðið - 15.11.2012, Qupperneq 48
FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 320. DAGUR ÁRSINS 2012
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 4190 I-PAD ÁSKRIFT 4190
1. Gamla heimili Steinunnar Ólínu
2. Braust Vala Matt inn hjá þér?
3. Sykursýki leggur fólk að velli
4.Nýliðinn innsiglaði sigur
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Sigur Rós heldur í tónleikaferð um
Norður-Ameríku í mars á næsta ári
og verður ferðin sú umfangsmesta
sem hljómsveitin hefur farið í um það
svæði. Umgjörð tónleikanna verður
ný og auk þess mun sveitin flytja
glæný lög. Fyrstu tónleikarnir verða
haldnir 24. mars. Þá hefur verið til-
kynnt að hljómsveitin muni leika á
næstu Hróarskelduhátíð í Danmörku.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Stærsta Ameríku-
förin og Hróarskelda
Kristinn Sig-
mundsson óperu-
söngvari mun
syngja hlutverk
Zaccaria æðsta-
prests í Nabucco
eftir Giuseppe
Verdi í Peking
næsta vor. Með
titilhlutverk óperunnar fer Placido
Domingo sem hefur fært sig úr
hlutverki tenórs í barítón með góð-
um árangri, að mati tónlistar-
heimsins.
Kristinn syngur með
Placido Domingo
Íslenska tísku- og hönnunarhúsið
ATMO, Laugavegi 91, verður opnað
í dag kl. 16.30. Í versluninni má
m.a. finna fatnað, skó,
gjafavöru, snyrtivör-
ur og skartgripi og
eru vörurnar allar
íslensk hönnun.
Um 60 vörumerki
má finna í verslun-
inni. Ásta Krist-
jánsdóttir er fram-
kvæmdastjóri
ATMO.
Um 60 íslensk vöru-
merki í ATMO
Á föstudag Vestlæg átt, 5-13 m/s, skýjað með köflum og stöku él,
hægt vaxandi norðan- og norðvestanátt með snjókomu norðan til.
Á laugardag Hvöss norðanátt og snjókoma, en þurrt að kalla fyrir
sunnan. Hægari vindur suðaustan til á landinu fram eftir degi.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðvestan og vestan 10-18 m/s. Hægari
sunnan til. Skúrir og él og kólnandi veður, léttir til á Austurlandi.
VEÐUR
Íslendingar báru sigurorð af
Andorramönnum, 2:0, í vin-
áttulandsleik en þjóðirnar
áttust við í Andorra í gær.
Rúnar Már Sigurjónsson
fékk óskabyrjun með A-
landsliðinu en þessi 22 ára
gamli miðjumaður úr Val
skoraði í sínum fyrsta lands-
leik og þá skoraði Jóhann
Berg Guðmundsson sitt
fyrsta landsliðsmark en
hann lék í gær sinn 22.
landsleik. »3
Óskabyrjun hjá
Rúnari Má
„Þetta líf er endalaus fótbolti,“ segir
Skagamaðurinn Bjarki Gunnlaugsson
í viðtali við Morgunblaðið en þessi sí-
ungi knattspyrnumað-
ur, sem lagði loks
skóna á hilluna eftir
langan feril í haust,
er ekki hættur af-
skiptum af knatt-
spyrnu.
Bjarki er fluttur
til Nijmegen í Hol-
landi þar sem
hann rekur útibú
frá umboðs-
skrifstofu fyrir
fótboltamenn. »4
Bjarki segir lífið snúast
endalaust um fótbolta
Sigurganga Keflvíkinga í Dominos-
deild kvenna í körfuknattleik hélt
áfram í gærkvöld en Keflavíkur-
konur unnu sinn 9. leik og eru með
fullt hús stiga. Keflavík hafði betur
gegn Grindavík á útivelli. Í Frosta-
skjóli fagnaði KR sætum eins stigs
sigri á móti Val, Haukar lögðu
Njarðvík og Snæfell burstaði Fjölni.
»2
Keflavíkurkonur áfram
á sigurbrautinni
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
„Ég hef ekki farið með þessa vinnu
fyrr að heiman,“ segir Laufey
Skúladóttir, bóndi á Stórutjörnum í
Ljósavatnsskarði með meiru, um
jólaskreytingar sem hún og Krist-
jana, tvíburasystir hennar og
bankastarfsmaður á Akureyri, hafa
verið að útbúa úr norðlenskri nátt-
úru undanfarna daga en þeim verð-
ur komið fyrir í veitingasölum og
víðar á Icelandair Hótel Reykjavík
Natura við Öskjuhlíð.
„Nafnið á hótelinu og áherslur
hótelstjórans passa svo vel við það
sem við erum að gera úr náttúr-
unni,“ heldur Laufey áfram og vísar
til þess að hótelið, sem áður hét
Hótel Loftleiðir, og umhverfi þess
var tekið í gegn í fyrra með áherslu
á aukna umhverfisvernd.
Laufey hefur ásamt fleiri lista-
mönnum rekið Gallerí Surtlu í
gömlu hlöðunni á Stórutjörnum
undanfarin ár. „Allt efnið sem við
notum er úr Vaglaskógi og Ljósa-
vatnsskarði,“ segir Laufey og máli
sínu til stuðnings bendir hún á sag-
aða og þurrkaða platta frá Skóg-
ræktinni í Vaglaskógi, grjót, hrein-
dýramosa, köngla, sortulyng,
beitilyng, krækiberjalyng, bláberja-
lyng, eini og ullarepli.
Ekkert fer til spillis
Systurnar hafa unnið að verkefn-
inu á hótelinu og koma efninu hag-
anlega fyrir á plöttunum og í mis-
munandi stórum glervösum. „Þetta
er ódýrt hráefni sem við nýtum á
skemmtilegan hátt,“ segir
Laufey.
Það er svolítill munur
á því að skreyta stof-
una á Stórutjörnum
og eitt stærsta hótel
landsins, en systurnar
taka á málinu eins og
hverju öðru verkefni. „Ég undirbjó
þetta vel og þess vegna höfum við
getað gengið í þetta,“ segir Laufey
um leið og hún hengir jólasveina-
kvæði eftir Jóhannes úr Kötlum á
stórt jólatré. „Sólborg Steinþórs-
dóttir hótelstjóri er snillingur í að
hugsa þetta út, hugsar þetta allt út
frá íslensku jólasveinunum og þess
vegna erum við með þá í skreyting-
unum. Þetta eru öðruvísi skreyt-
ingar en á öðrum hótelum.“
Laufey safnar efninu á haustin og
frystir þá lyngið til þess að litirnir
og berin haldi sér. „Með því að taka
þetta úr frysti núna helst það yfir
jólahátíðina,“ segir hún áður en hún
leggur smiðshöggið á verkið. „Við
ætlum að vera komnar aftur heim
áður en óveðrið skellur á.“
Norðlensk náttúra á Natura
Sérstakar jóla-
skreytingar á hót-
elinu við Öskjuhlíð
Morgunblaðið/RAX
Jól Kristjana og Laufey Skúladætur sjá um skreytingar fyrir jólahlaðborðið á Icelandair Hótel Reykjavík Natura.
Það er nóg að gera á kúabúinu á
Stórutjörnum. Hjónin eru með
230.000 lítra kvóta, um 45 til 50
kýr og auk þess 150 kindur. Þau
sluppu við skaða í
óveðrinu í septem-
ber, smöluðu
daginn áður og
voru því með
allt fé inni.
„Við vorum
mjög heppin,“
segir Laufey, sem nefnir gallerí
sitt eftir einni rollunni.
„Ég kem inn í svona verkefni
með henni,“ segir Kristjana um
jólaskreytingarnar og leggur
áherslu á að stutt sé frá Akureyri í
sveitina. Föndrið sé líka góð leið til
þess að tengjast náttúrunni.
„Þetta er dásamlegt og getur ekki
verið skemmtilegra,“ segir hún.
„Við göngum líka mikið og erum
miklar berjakonur,“ botnar Laufey.
Náttúrubörn að norðan
KRISTJANA OG LAUFEY SKÚLADÆTUR