Morgunblaðið - 08.12.2012, Side 53
MENNING 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 2012
Sænska skáldið TomasTranströmer hlaut bók-menntaverðlaun Nóbels ífyrra, og kom ekki á óvart.
Því þótt ljóðabækurnar hans fimm-
tán séu ekki miklar að vöxtum, þá er
Tranströmer afar áhrifamikið og
dáð skáld, og
hafa ljóð hans
komið víðar út í
þýðingum en
ljóð nokkurs
annars nor-
ræns sam-
tímaskálds.
Íslenskir les-
endur voru lánsamir að fá að kynn-
ast skáldskap Tranströmers
snemma, því Jóhann Hjálmarsson
birti strax árið 1965 þýðingar á
nokkrum ljóða hans, en fyrsta bók
sænska skáldsins kom út ellefu ár-
um fyrr. Jóhann hefur síðan þýtt
fleiri ljóð, sem og Pjetur Hafstein
Lárusson, og þá kom árið 1990 út
bók með þýðingum Njarðar P.
Njarðvík á ljóðum Tranströmers,
Tré og himinn, og árið 2001 önnur
bók með þýðingum Ingibjargar
Haraldsdóttur, Sorgargondóll og
fleiri ljóð. Allt eru þetta prýðilegar
þýðingar.
Nú er komin út í takmörkuðu
upplagi, 150 árituðum eintökum,
vönduð þýðing Hjartar Pálssonar á
ljóðabókinni Eystrasölt í veglegum
umbúðum. Þetta er stutt bók, ein-
ungis 36 síður, fallega um brotin og
kápu prýðir málverk Eggerts Pét-
urssonar af ljósbera. Bókinni, sem
gefin er út í tilefni þes að Nób-
elsverðlaunin féllu skáldinu í skaut,
fylgir geisladiskur með lestri Hjart-
ar á verkinu.
Eystrasölt er knappur ljóðabálk-
ur í sex hlutum. Óræður og loft-
kenndur, en um leið hnitmiðaður og
hrífandi, og fjallar um forfeður ljóð-
mælandans og heimkynni þeirra, afa
hans og ömmu í sænska skerjagarð-
inum. Afinn var lóðs og sigldi skip-
um „um undurfagurt völundarhús
eyja og ála“ með „blindsker og
grynningar geymd í minni eins og
sálmavers.“ Amman hafði alist upp
hjá vandalausum, of snemma var
endi bundinn á barnæsku hennar,
um það yrkir skáldið, og man hana:
„Ég hjúfraði mig að henni / og á
dauðastundinni (í andrá umskipt-
anna?) sendi hún hugskeyti / svo að
ég – fimm ára snáði – skildi hvað
gerst hafði / hálftíma áður en hringt
var.“
Þessi bók Tranströmers kom
fyrst út árið 1974, 16 árum áður en
hann fékk heilablóðfall sem rændi
hann mættinum í hægri hluta lík-
amans, og málinu að mestu. En í
þessari bók er lýsing á tónskáldi
sem getur sér orðstír en er for-
dæmdur, gerður landrækur (eins og
var nánast raunin með Tranströmer
sjálfan, ljóðrænn skáldskapur hans
átti lengi vel ekki upp á pallborðið í
félagslegu raunsæi heimalandsins
en frægð hans óx erlendis, einkum í
Bandaríkjunum), en þegar tón-
skáldið fær uppreisn æru, þá „kem-
ur heilablóðfallið: lömun hægra
megin og málstol, skilur aðeins
stuttar setningar, segir / ekki réttu
orðin.“
Tranströmer sjálfur segir hins-
vegar ennþá réttu orðin, rétt eins og
í þessu hrífandi verki sem Hjörtur
þýðir af mikilli list og kemur afar vel
til skila á hljómmikið og fagurt mál.
Fengur er að upplestri hans á þýð-
ingunni, sem hann les af mikilli en
þó hófstilltri tilfiningu. Á lesturinn
er hægt að hlýða aftur og aftur, og
sökkva dýpra og dýpra inn í verkið.
„Í átthagagrafreit
skerjagarðsfólksins“
Ljóð
Eystrasölt bbbbb
Eftir Tomas Tranströmer.
Dimma, 2012. Hljóðdiskur og bók, 36
bls.
EINAR FALUR
INGÓLFSSON
BÆKUR
Tranströmer Ljóðabálkurinn er
„Óræður og loftkenndur, en um leið
hnitmiðaður og hrífandi.“
Kammerkór Mosfellsbæjar heldur aðventutónleika í
Listasafni Íslands annað kvöld kl. 20. Á efnisskránni
eru þekkt klassísk jólalög í bland við þekktar kórperlur
frá ýmsum tímabilum og löndum. Meðal verka sem
verða flutt eru lög eftir A. Vivaldi, G. F. Händel, T.
Tallis, F. Schubert, Gunnar Reyni Sveinsson, Snorra
Sigfús Birgisson, C. Franck. Paco Pena, og H. Villa Lo-
bos. Stjórnandi kórsins er Símon H. Ívarsson og með-
leikarar eru Liwen Huang á píanó og Ívar Símonarson
á gítar. Þá leikur Helga R. Óskarsdóttir einleik á fiðlu.
Aðventutónleikar í
Listasafni Íslands
Jólalög Kammerkór Mosfellsbæjar á æfingu.
„List og ólist“ er yfirskrift fjórðu
Vinnslunnar sem haldin verður í
Norðurpólnum í kvöld kl. 20. Þar
koma saman þrjátíu listamenn úr öll-
um listgreinum og setja upp verk sín,
en boðið verður upp á myndlist,
gjörninga, leiklist, dans, videóverk,
tónlist o.fl.
Meðal þeirra sem taka þátt eru
Birgir Örn Steinarsson sem kynnir
nýtt tónlistarefni, Julian JK Jóhanns-
son, heimsmeistari unglinga í kraft-
lyftingum, og félagar munu lyfta við óperusöng, Lilja
Nótt Þórarinsdóttir leikkona leggur ungum stúlkum
sem hyggjast leggja vændi fyrir sig lífsreglurnar,
Hulda Hlín Magnúsdóttir, myndlistarmaður og list-
fræðingur, sýnir myndir sínar, Kristína R. Berman,
textíl- og búningahönnuður, verður með innsetningu,
María Kjartans ljósmyndari sýnir myndir sínar og
Ninna Margrét Þórarinsdóttir verður með ljósainn-
setningu.
Húsið verður opið frá kl. 20.00-01.00.
List og ólist á
fjórðu Vinnslunni
Lilja Nótt
Þórarinsdóttir
Dómnefnd Jóla-
lagakeppni Rásar
2 hefur valið sex
lög í úrslit og
verða þau leikin
10.-16. desember
á Rás 2 en einnig
er hægt að hlusta
á þau á vef RÚV
og kjósa sitt
uppáhaldslag. 18.
desember nk. verður tilkynnt hvaða
lag er Jólalag Rásar 2 í ár.
Lögin sex og flytjendur þeirra
eru: „Hæhó og gleðileg jól“ – Einar
Lövdahl, „Já, já, jólin koma“ – Svan-
hildur Jakobsdóttir, „Mín bernsku
jól“ – White Signal og Graduale kór
Langholtskirkju, „Nútíma jól“ –
Sverrir Stormsker og Alda Björk
Ólafsdóttir, „Tvö fögur ljós“ – Sig-
ríður Guðnadóttir og „Þá koma jól“
– Margrét Stella Kaldalóns.
Sex jólalög
í úrslitum
Sverrir Stormsker
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Mýs og Menn (Stóra svið)
Fös 28/12 kl. 20:00 fors Mið 16/1 kl. 20:00 7.k Fim 31/1 kl. 20:00 13.k.
Lau 29/12 kl. 20:00 frums Fim 17/1 kl. 20:00 8.k Fös 1/2 kl. 20:00 14.k
Fös 4/1 kl. 20:00 2.k Fös 18/1 kl. 20:00 aukas Fös 8/2 kl. 20:00
Sun 6/1 kl. 20:00 3.k Lau 19/1 kl. 20:00 9.k Lau 9/2 kl. 20:00
Mið 9/1 kl. 20:00 4.k Sun 20/1 kl. 20:00 10.k Lau 16/2 kl. 20:00
Fim 10/1 kl. 20:00 aukas Fim 24/1 kl. 20:00 11.k Sun 17/2 kl. 20:00
Fös 11/1 kl. 20:00 5.k Fös 25/1 kl. 20:00 aukas Mið 27/2 kl. 20:00
Lau 12/1 kl. 20:00 aukas Lau 26/1 kl. 20:00 aukas
Sun 13/1 kl. 20:00 6.k Sun 27/1 kl. 20:00 12.k
Jólasýningin 2012. Saga um gildi manneskjunnar, drauma hennar og þrár
Á sama tíma að ári (Stóra sviðið)
Lau 8/12 kl. 20:00 Sun 30/12 kl. 20:00 Lau 5/1 kl. 20:00
Rómantískur gamanleikur í leikstjórn Sigga Sigurjóns og Bjarna Hauks
Gulleyjan (Stóra sviðið)
Sun 9/12 kl. 14:00 Mið 26/12 kl. 14:00 Sun 6/1 kl. 14:00
Sun 16/12 kl. 14:00 Sun 30/12 kl. 14:00 Sun 13/1 kl. 14:00
Ævintýralegasta fjársjóðsleit allra tíma. Örfáar aukasýningar í janúar!
Gullregn (Nýja sviðið)
Lau 8/12 kl. 20:00 16.k Sun 30/12 kl. 20:00 Fös 18/1 kl. 20:00
Fös 14/12 kl. 20:00 17.k Fim 3/1 kl. 20:00 Lau 19/1 kl. 20:00
Lau 15/12 kl. 20:00 aukas Fös 4/1 kl. 20:00 Mið 23/1 kl. 20:00
Sun 16/12 kl. 20:00 aukas Lau 12/1 kl. 20:00 Fim 24/1 kl. 20:00
Fim 27/12 kl. 20:00 Sun 13/1 kl. 20:00 Fös 25/1 kl. 20:00
Fös 28/12 kl. 20:00 Mið 16/1 kl. 20:00 Lau 26/1 kl. 20:00
Lau 29/12 kl. 20:00 Fim 17/1 kl. 20:00
Mannlegt verk um íslenskt fólk og útlenskt tré
Saga Þjóðar (Litla sviðið)
Lau 8/12 kl. 20:00 15.k Fös 11/1 kl. 20:00 Lau 26/1 kl. 20:00
Fös 14/12 kl. 20:00 16.k Lau 12/1 kl. 20:00 Sun 27/1 kl. 20:00
Lau 15/12 kl. 20:00 Fös 18/1 kl. 20:00
Fös 4/1 kl. 20:00 Lau 19/1 kl. 20:00
Íslandssagan á hundavaði í tónsjónleik með Hundi í óskilum.
Jesús litli (Litla svið)
Sun 9/12 kl. 20:00 aukas Fim 13/12 kl. 20:00 6.k Fös 21/12 kl. 19:00
Þri 11/12 kl. 20:00 4.k Mið 19/12 kl. 20:00 7.k Fös 21/12 kl. 21:00
Mið 12/12 kl. 20:00 5.k Fim 20/12 kl. 20:00 8.k Lau 5/1 kl. 20:00
Mannbætandi upplifun! Grímusýning ársins 2010
Stundarbrot (Nýja sviðið)
Fim 10/1 kl. 20:00 frums Þri 15/1 kl. 20:00 3.k Þri 22/1 kl. 20:00
Fös 11/1 kl. 20:00 2.k Sun 20/1 kl. 20:00 4.k
Framsækið og tilraunakennt sjónarspil
Hinn eini sanni jólaandi (Litla sviðið)
Lau 8/12 kl. 14:00 Lau 15/12 kl. 16:00
Sun 9/12 kl. 16:00 Sun 16/12 kl. 14:00
Notaleg sögustund fyrir alla fjölskylduna með Góa og Þresti Leó
Skoppa og Skrítla í leikhúsinu (Litla sviðið)
Lau 12/1 kl. 13:00 1.k Sun 13/1 kl. 13:00 3.k Lau 19/1 kl. 13:00 5.k
Sun 13/1 kl. 11:00 2.k Lau 19/1 kl. 11:00 4.k
Leikhús með söng og dansi fyrir börn frá níu mánaða aldri
Íslenski Dansflokkurinn: Á nýju sviði (Nýja sviðið)
Sun 9/12 kl. 20:00 Þri 18/12 kl. 20:00 lokas
Fjögur spennandi og ólík dansverk eftir dansara Íslenska dansflokksins
Hverfisgötu 19 551 1200 leikhusid.is midasala@leikhusid.is
Dýrin í Hálsaskógi (Stóra sviðið)
Lau 8/12 kl. 14:00 Aukas. Sun 30/12 kl. 14:00 31.sýn Sun 13/1 kl. 13:00 35.sýn
Lau 8/12 kl. 17:00 Aukas. Sun 30/12 kl. 17:00 32.sýn Sun 13/1 kl. 16:00 36.sýn
Sun 9/12 kl. 14:00 27.sýn Lau 5/1 kl. 13:00 Aukas. Sun 20/1 kl. 13:00 37.sýn
Sun 9/12 kl. 17:00 28.sýn Lau 5/1 kl. 16:00 Aukas. Sun 20/1 kl. 16:00 38.sýn
Lau 29/12 kl. 14:00 29.sýn Sun 6/1 kl. 13:00 33.sýn Sun 27/1 kl. 13:00 39.sýn
Lau 29/12 kl. 17:00 30.sýn Sun 6/1 kl. 16:00 34.sýn Sun 27/1 kl. 16:00 40.sýn
Sýningar í janúar komnar í sölu!
Macbeth (Stóra sviðið)
Sun 23/12 kl. 14:00 Fors Fös 28/12 kl. 19:30 3.sýn Fim 10/1 kl. 19:30 6.sýn
Mið 26/12 kl. 19:30 Frums. Fim 3/1 kl. 19:30 4.sýn Fös 11/1 kl. 19:30 7.sýn
Fim 27/12 kl. 19:30 2.sýn Fös 4/1 kl. 19:30 5.sýn
Miðasala hafin á jólasýningu Þjóðleikhússins! Tryggðu þér sæti!
Jónsmessunótt (Kassinn)
Lau 12/1 kl. 19:30 25.sýn
Meinfyndið nýtt íslenskt verk, svört kómedía beint úr íslenskum samtíma.
Karíus og Baktus (Kúlan)
Lau 29/12 kl. 13:30 Frums. Lau 5/1 kl. 13:30 5.sýn Lau 12/1 kl. 13:30 9.sýn
Lau 29/12 kl. 15:00 2.sýn Lau 5/1 kl. 15:00 6.sýn Lau 12/1 kl. 15:00 10.sýn
Sun 30/12 kl. 13:30 3.sýn Sun 6/1 kl. 13:30 7.sýn Sun 13/1 kl. 13:30 11.sýn
Sun 30/12 kl. 15:00 4.sýn Sun 6/1 kl. 15:00 8.sýn Sun 13/1 kl. 15:00 12.sýn
Frábært leikrit sem á erindi við alla krakka!
Leitin að jólunum (Þjóðleikhúsið)
Lau 8/12 kl. 11:00 Lau 15/12 kl. 13:00 Lau 22/12 kl. 11:00
Lau 8/12 kl. 12:30 Lau 15/12 kl. 14:30 Lau 22/12 kl. 13:00
Sun 9/12 kl. 11:00 Sun 16/12 kl. 11:00 Lau 22/12 kl. 14:30
Sun 9/12 kl. 12:30 Sun 16/12 kl. 13:00 Sun 23/12 kl. 11:00
Lau 15/12 kl. 11:00 Sun 16/12 kl. 14:30 Sun 23/12 kl. 12:30
Sívinsælt aðventuævintýri Þjóðleikhússins - áttunda árið í röð!
Með fulla vasa af grjóti (Stóra sviðið )
Fim 31/1 kl. 20:30 19.sýn Fös 8/2 kl. 20:30 21.sýn
Sun 3/2 kl. 20:30 20.sýn Sun 10/2 kl. 20:30
Nýtt sýningatímabil hefst eftir áramót - miðasala í fullum gangi!