Morgunblaðið - 22.12.2012, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 2012
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Vökulir starfsmenn Náttúrustofu
Norðausturlands komu á miðviku-
dag auga á lítinn sel sem spókaði
sig á smábátabryggjunni fyrir utan
Langanes-húsið á Húsavík. Í fyrstu
var talið að um ungan landsel væri
að ræða en eftir töluverðar vanga-
veltur á veraldarvefnum þótti aug-
ljóst að hér var um hringanóra að
ræða. Þessi skemmtilegi jólagestur
stillti sér upp til myndatöku á flot-
bryggjunni, en hvarf síðan á braut
og hefur ekki sést síðan.
Á heimasíðu náttúrustofunnar
kemur fram að heimkynni hringa-
nóra eru norðurheimskautssvæðið
allt og er hann einkennisselur
Norður-Íshafsins og Ísland því á
jaðri útbreiðslunnar. Hann leitast
eftir því að vera í grennd við lagn-
aðarís árið um kring, sem hann
hvílist á og notar til að kæpa á síð-
vetrar og snemma vors.
Minnstur norrænna sela
Þar getur hann verið langt frá sjó
með því að halda opinni lítilli vök
sem gerir honum kleift að forðast
ísbirni á ísnum og hafa aðgang að
æti í sjónum. Því er ólíklegt að
hringanóri hafi kæpt á Íslandi.
Hringanóri er minnstur nor-
rænna sela. Honum svipar til ungs
landsels en vöxturinn er öðruvísi,
háls sver og stuttur og einkennandi
andlit sem gerir hann „krúttlegan“
Feldurinn einkennist vanalega af
fjölmörgum ljósum hringjum þó
þeir séu takmarkaðir á þessum ein-
staklingi, en nafn hans er dregið af
því.
Tegundin er fremur sjaldséð hér
við land og sést þá einna helst inn-
fjarða á Norður- og Vesturlandi.
Krúttlegur hringa-
nóri í Húsavíkurhöfn
Jólagesturinn
stillti sér upp til
myndatöku en
hvarf síðan á braut
Ljósmynd/Yann Kolbeinsson
Heimsókn Hringanórinn horfði stórum augum á ljósmyndarann á bryggj-
unni á Húsavík. Hvíldi þar lúin bein og hreifa áður en hann synti í burtu.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Bandarískt markaðs- og dreifing-
arfyrirtæki hefur pantað 600 þús-
und töflur af SagaPro náttúrulyfinu
sem Saga Medica framleiðir úr ís-
lenskri ætihvönn og notað er við
tíðum þvaglátum. Markaðsstjóri
fyrirtækisins vonast til að þetta sé
upphafið að ennþá meiri landvinn-
ingum í Bandaríkjunum og Evrópu.
Saga Medica hefur í tvö ár flutt
SagaPro til Kanada. „Við höfum
verið að leita leiða til að auka út-
flutning okkar enn frekar og kom-
umst í samband við bandarískt
markaðs- og dreifingarfyrirtæki
sem vill taka SagaPro undir sinn
verndarvæng. SagaPro á að vera
aðalvaran í kynningu þeirra á
næsta ári,“ segir Perla Björk Eg-
ilsdóttir, markaðsstjóri og verðandi
framkvæmdastjóri Saga Medica.
Þótt enn sé ekki búið að ganga
frá samningum og því ekki hægt að
upplýsa um kaupandann hefur fyr-
irtækið staðfest pöntun á 600 þús-
und töflum. Varan verður afhent í
febrúar og kynnt á stórri sýningu í
mars.
SagaPro verður dreift í heilsu-
verslanir og apótek og einnig til
fyrirtækja sem sjá læknum fyrir
vörum.
„Þetta er þeirra fyrsta pöntun og
sú stærsta sem við höfum afgreitt,“
segir Perla sem reiknar með að
þetta sé aðeins upphafið. Hún segir
að samstarfið muni hafa mjög góð
áhrif fyrir Saga Medica, ef allt
gangi samkvæmt áætlun.
Rannsóknin lykilatriði
SagaPro hefur farið í gegn um
klíníska rannsókn og birtist ritrýnd
vísindagrein um hana í sænska
læknablaðinu Scandinavian Journal
of Urology and Nephrology. Er
þetta eina íslenska náttúruvaran
sem hefur farið í gegn um klíníska
rannsókn.
Þótt bandaríska dreifingarfyr-
irtækið pakki töflunum í eigin um-
búðir mun það nota SagaPro-
vörumerkið. Perla segir að nið-
urstöður rannsóknarinnar sem
sýndu ákveðna virkni vörunnar og
að hún væri örugg og án aukaverk-
ana séu lykillinn að þessum samn-
ingum. „Það skiptir okkur miklu
máli að þetta fyrirtæki kostar
markaðssetningu á þessum stóra
markaði. Það hjálpar okkur á öðr-
um mörkuðum,“ segir Perla.
Saga Medica vinnur að skrán-
ingu vara sinna og öðrum und-
irbúningi útflutnings til Evrópu.
„Markmiðið er að byrja á Norð-
urlöndunum og færa okkur síðan
inn í önnur lönd,“ segir Perla og
getur þess að töluverður útflutn-
ingur sé nú þegar til Noregs á Vox-
is hálstöflum sem unnar eru úr
hvannarlaufum.
Þrátt fyrir að lengi hafi verið
unnið að útflutningi og það hafi
verið megintilgangur fyrirtækisins
hefur meginhluti sölunnar verið á
innanlandsmarkaði og hann staðið
undir þróunarstarfinu, að sögn
Perlu.
Sem dæmi má nefna að hér
heima eru seldar 900 þúsund til
milljón SagaPro töflur.
SagaPro til
Bandaríkjanna
Staðfest pöntun á
600 þúsund töflum
Morgunblaðið/Kristinn
SagaPro Perla Björk Egilsdóttir og
Þráinn Þorvaldsson eru í útrás með
afurðir íslensku hvannarinnar.
„Ákvörðun ráðuneytisins eyðileggur
öll okkar áform. Nú liggur fyrir að
stokka þarf upp fjárhagsáætlun
næsta árs og endurskoða allt frá
grunni. Þetta
eykur kostnað
sveitarfélagsins
um 15 til 20 millj-
ónir á ári. Nið-
urskurður á þjón-
ustu blasir við,“
segir Eygló
Kristjánsdóttir
sveitarstjóri
Skaftárhrepps.
Fulltrúar um-
hverfisráðuneyt-
isins tilkynntu stjórnendum hrepps-
ins í gær, að umsókn
sveitarfélagsins um undanþágu og
starfsleyfi sorpbrennslu á Kirkju-
bæjarklaustri fengist ekki. Leyfi
fyrir starfsemi rann úr gildi 12. des-
ember sl. Afstaða ráðuneytisins er
sú að ofn brennslunnar standist ekki
kröfur. Mælingar sýni að útblástur á
díoxín, sem talið er krabbameins-
valdandi, hafi verið 58-föld þau los-
unarmörk, sem gilda eiga frá næst-
komandi áramótum.
Í tilkynningu ráðuneytisins er
einnig tilgreint að ráðherra geti ekki
veitt undanþágu frá einstökum
ákvæðum reglugerða í sorpmálum.
Hann geti slíkt ef ríkar og sérstakar
ástæður séu fyrir hendi. Það eigi
ekki við í þessu máli.
„Okkur hefur þótt sorpbrennslan
góður kostur. Þetta hefur verið ódýr
leið við sorpeyðingu og ylinn frá ofn-
inum höfum við nýtt til að kynda
sundlaug og grunnskóla. Nú þurfum
við að leita nýrra leiða. Við vissum
að ofninn stæðist ekki kröfur og vor-
um því búin að biðja umhverf-
isráðherra að gefa okkur tveggja ára
frest meðan við útveguðum nýjan.
Nú liggur afstaða hins vegar fyrir og
því verðum við að hugsa mál upp á
nýtt,“ segir Eygló. sbs@mbl.is
Niðurskurður í
þjónustu blasir við
Sorpbrennslu á Klaustri var hafnað
Mikill útblástur og ofn stenst ekki
Klaustur Sorpmálin eru í uppnámi
vegna lokunar brennslustöðvar.
Eygló
Kristjánsdóttir
Ljósmynd/Gísli Sigurðsson
„Nú þegar nýtt
frumvarp um fisk-
veiðistjórnun, sem
verið hefur eitt
stærsta deilumál
þjóðarinnar, bíð-
ur framlagningar
í þinginu er brýnt
að niðurstaða ná-
ist sem fullnægi
grundvallarsjón-
armiðum um
þjóðareign auðlindarinnar, jafnræði,
nýliðunarmöguleika og bætt búsetu-
skilyrði í landinu,“ segir í frétta-
tilkynningu sem þingmennirnir Ólína
Þorvarðardóttir og Lilja Rafney
Magnúsdóttir sendu frá sér í gær.
Þá segir enn fremur í tilkynning-
unni að rétt kjörin stjórnvöld megi
ekki láta undan þeim hótunum og
hræðsluáróðri sem dunið hefur á
þjóðinni frá hagsmunasamtökum út-
vegsmanna. Telja þær að þó að frum-
varpið sem nú bíði sé vissulega mála-
miðlun þá sé það stórt skref í rétta átt
sem þær telji rétt að stíga fremur en
að una við óbreytt ástand.
„Afkoma sjávarútvegs er nú með
besta móti, hún batnaði um 26% milli
áranna 2010/2011 og hreinn hagn-
aður var um 60 milljarðar króna á
síðasta ári. Mikið er í húfi fyrir
byggðir landsins og þær tugþúsundir
Íslendinga sem hafa beina og óbeina
lífsafkomu af sjávarútvegi. Nú er
tækifærið – óvíst er að það gefist síð-
ar,“ segir jafnframt í tilkynningunni.
skulih@mbl.is
Stjórnvöld láti ekki
undan hótunum
Ólína
Þorvarðardóttir
ö frandi gjafir
Kringlan 4-12 | s. 577-7040 • loccitane.com
L’Occitane en Provence - Ísland
CHERRY BLOSSOM
Sturtusápa 250 ml - 2.230 kr. • Handkrem 50 ml - 1.150 kr. •
Ilmsápa 50 g - 500 kr. • Húðmjólk 250 ml - 3.630 kr.
r
tö frandi gjafir
FRá PROVENCE
5.990kr.
Verð áður:7.51
0 k
r.
GJAFAKASSI