Morgunblaðið - 22.12.2012, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 2012
Björn Valur Gíslason hefur veriðhandgenginn Steingrími J.
Sigfússyni. Reyndar er þá varlega
talað. Þingmenn halda því sumir
fram að reki Steingrímur sig á fái
Björn Valur marblettinn.
Nú getur enginnneitað því að
Vinstri grænir eru
dálítið hart leiknir
og fylgið kemur
fram við flokkinn
eins og ónefnd
dýrategund er sögð
gera við sökkvandi
skip.
Þess vegna þorði Björn Valurekki í framboð í sínu gamla
kjördæmi og sóttist eftir sæti á möl-
inni. En mölin vildi hann ekki.
Björn Valur telur ekki að afhroðflokksins og hans sjálfs hafi
neitt að gera með svik í ESB-
málinu, framgöngu í Icesave, gjöf á
tveimur bönkum til háskalegustu
hákarlasjóða heimsins, svo fátt eitt
sé nefnt og öðru sleppt, eins og
meðferðinni á sparisjóðakerfinu.
Þetta er allt öðrum að kenna,þessum:
Þú getur flett Morgunblaðinulangt aftur í tímann og þú finn-
ur enga gagnrýna forsíðufrétt um
neitt annað en núverandi stjórn-
völd. Þú stendur aldrei öðruvísi upp
frá Morgunblaðinu en dæsandi og
tautandi um að þetta sé nú meira
ástandið! Ég er sjálfur löngu hætt-
ur að tala við Morgunblaðið, ég hef
allt annað og betra með tímann að
gera en ræða við þá og vil helst
ekki sjá nafn mitt á síðum blaðs-
ins.“
Hvernig fara menn að þegarBjörn Valur talar ekki við þá?
Björn Valur
Gíslason
Björn Valur svalur
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 21.12., kl. 18.00
Reykjavík 6 súld
Bolungarvík 4 alskýjað
Akureyri 5 skýjað
Kirkjubæjarkl. 4 rigning
Vestmannaeyjar 6 rigning
Nuuk -2 léttskýjað
Þórshöfn 5 alskýjað
Ósló -7 snjókoma
Kaupmannahöfn 0 skýjað
Stokkhólmur -3 snjókoma
Helsinki -10 skýjað
Lúxemborg 6 skýjað
Brussel 7 súld
Dublin 6 skýjað
Glasgow 5 skýjað
London 8 léttskýjað
París 7 skýjað
Amsterdam 6 þoka
Hamborg -1 skýjað
Berlín -3 þoka
Vín 0 snjókoma
Moskva -17 skýjað
Algarve 17 heiðskírt
Madríd 13 léttskýjað
Barcelona 17 léttskýjað
Mallorca 17 léttskýjað
Róm 7 léttskýjað
Aþena 8 skýjað
Winnipeg -12 snjókoma
Montreal 1 snjókoma
New York 8 alskýjað
Chicago -1 skýjað
Orlando 11 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
22. desember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 11:23 15:31
ÍSAFJÖRÐUR 12:10 14:54
SIGLUFJÖRÐUR 11:55 14:35
DJÚPIVOGUR 11:02 14:51
Hjálparsími Rauða krossins 1717 er
opinn allan sólarhringinn, allan árs-
ins hring, og á það einnig við um há-
tíðisdagana. Þar eru veittar upplýs-
ingar um samfélagsleg úrræði,
matarúthlutanir, ókeypis hátíð-
armálsverði og hvenær ýmis athvörf
eru opin.
Auk þess er hlutverk Hjálparsím-
ans að veita fólki stuðning til að
mynda vegna þunglyndis, kvíða,
fjármálaáhyggja, vanlíðunar eða ein-
semdar. Í fyrra bárust samtals um
250 hringingar frá Þorláksmessu
fram á annan í jólum, og tæplega 100
símtöl bárust á gamlárs- og nýárs-
dag.
„Þeir sem hringja eru afar þakk-
látir fyrir að geta rætt við einhvern
um sín mál, því þessi tími árs reynist
mörgum erfiður,“ segir í frétt frá
Rauða krossinum.
Konukot, athvarf Rauða krossins
fyrir heimilislausar konur á höf-
uðborgarsvæðinu, er opið allan sól-
arhringinn frá Þorláksmessu til
fimmtudagsins 27. desember. Dag-
ana 27.-30. desember er opið á
venjulegum tíma (lokað frá kl. 12.00-
17.00), en svo opið allan sólarhring-
inn á gamlársdag og nýársdag. Á að-
fangadag er hátíðarkvöldverður, og
gestir fá gjafir frá velunnurum
Konukots þar sem gamlar hefðir eru
hafðar í hávegum, því flíkur, bækur
og konfekt leynast í pökkunum. Þar
leggjast því allir í hreina hvílu með
góða bók að lesa.
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Konukot Þar verður opið hús yfir
hátíðarnar og kvöldverður í boði.
Hjálparsím-
inn og Konu-
kot opin yfir
hátíðarnar