Morgunblaðið - 22.12.2012, Side 32
32 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 2012
Bugarach. AFP. | Þúsundir manna
söfnuðust saman í gær við mikil-
vægar menningarminjar maya-
indíána í Mexíkó og Mið-Ameríku og
nokkrum öðrum stöðum í heiminum
– sumir þeirra til að bíða eftir heims-
endi.
Aðrir gerðu grín að dóms-
dagsspámönnum. „Ef þú ert í neðan-
jarðarbyrgi með lífstíðarbirgðir af
bökuðum baunum hlýtur þér að líða
eins og fífli núna,“ tísti einn af not-
endum samskiptavefjarins Twitter.
Á hverri mínútu voru birtir tugir
tísta á Twitter þar sem gert var grín
að dómsdagsspám sem ekki rættust.
Margar dómsdagsspánna tengd-
ust fornu tímatali maya-indíána, svo-
nefndri löngu talningu, sem lauk í
gær. Sérfræðingar í tímatalinu
sögðu ekkert benda til þess að may-
ar hefðu talið að heimurinn myndi
farast. Tímatal maya væri endalaust
og nýtt tímabil hæfist þegar löngu
talningu lyki.
Margir vonsviknir fréttamenn
Dómsdagsspámenn höfðu meðal
annars spáð að því franska þorpið
Bugarach myndi lifa af heimsendi og
geimverur myndu koma á geim-
skipum út úr tindi nálægs fjalls til að
bjarga fólki. Lögreglan lokaði veg-
um að bænum og gönguleiðum að
fjallinu þar sem óttast var að fólk
myndi flykkjast þangað.
Svo fór að fáir reyndu að komast
til bæjarins. Tugir fréttamanna voru
á svæðinu og urðu fyrir miklum von-
brigðum því þeir höfðu fáa til að
ræða við. Dómsdagsspámenn höfðu
einnig sagt að tyrkneska þorpið Sir-
ince myndi ekki farast vegna „já-
kvæðrar orku“ í þorpinu. Sam-
kvæmt kristnum helgisögum steig
María mey upp til himna á staðnum.
Fólk sem trúði á dómsdagsspána
flykktist til Sirince og einnig að fjalli
nokkru í Serbíu. Sagt var að fjallið
sendi frá sér óvenjulegar rafsegul-
bylgjur sem myndu verja fólk.
Þúsundir manna höfðu samband
við Geimferðastofnun Bandaríkj-
anna, NASA, til að spyrja hvað hægt
væri að gera ef dómsdagsspáin rætt-
ist. Stofnunin setti upp sérstaka vef-
síðu þar sem dómsdagsspáin var
hrakin og fólk fullvissað um að
heimurinn myndi ekki farast.
Margir þeirra sem gerðu grín að
dómsdagsspánni notuðu tækifærið
til að sletta úr klaufunum með dóms-
dagsveislum víða um heim.
Milljónir erlendra ferðamanna
voru einnig í Mexíkó og Mið-
Ameríkulöndum þar sem maya-
indíánar réðu ríkjum á blómaskeiði
þeirra á árunum 250-900 eftir Krist.
Tímamótanna var minnst með flug-
eldasýningum, tónleikum og fleiri
viðburðum. Margir litu á tímamótin
sem tækifæri til að vekja athygli á
fornri siðmenningu maya en samtök
frumbyggja í Mexíkó og Mið-
Ameríku sökuðu fyrirtæki og stjórn-
völd um að hafa hagnast á rangri
túlkun á tímatali maya, m.a. í banda-
rískum kvikmyndum.
Tímamótum maya fagnað
en heimurinn fórst ekki
Fjölmenn hátíðarhöld við menningarminjar maya
AFP
Nýtt tímabil Mayar í Tikal fagna því að tímatali þeirra, löngu talningu, er
lokið og nýtt tímabil hafið. Þúsundir manna tóku þátt í hátíðinni.
Hátíð Frá hátíðarhöldum við fornar minjar maya í Tikal í Gvatemala.
Bandaríkjamenn minntust í gær 26 fórn-
arlamba fjöldamorðingja í barnaskóla í
bænum Newtown í Connecticut með
kyrrðarstund meðan kirkjuklukkum var
hringt 26 sinnum. Fjöldamorðinginn skaut
20 börn og sex fullorðna starfsmenn skól-
ans til bana fyrir rúmri viku áður en hann
fyrirfór sér. Áður hafði hann myrt móður
sína. Ríkisstjóri Connecticut, Dannel
Malloy, hvatti alla íbúa ríkisins til að taka
þátt í kyrrðarstundinni. Kirkjuklukkum
var hringt í mörgum öðrum ríkjum.
Wayne LaPierre, framkvæmdastjóri
NRA, samtaka bandarískra byssueigenda,
rauf vikulanga þögn samtakanna um skotárásina. Hann sakaði stjórn-
málamenn um að hafa notfært sér þennan hörmulega atburð „í pólitískum til-
gangi“ og gagnrýndi lög sem banna byssur í barnaskólum. „Með lögunum er
öllum brjáluðum morðingjum í Bandaríkjunum sagt að skólar séu öruggasti
staðurinn til að valda sem mestu manntjóni með lágmarksáhættu,“ sagði La-
Pierre. Hann gagnrýndi einnig fjölmiðla fyrir að koma óorði á byssueigendur
og hafnaði tillögu demókrata um að herða löggjöfina um byssueign, m.a. með
banni við hríðskotarifflum. „Það eina sem stöðvar illmenni með byssu er góð-
ur maður með byssu,“ sagði hann.
Fórnarlambanna í
Newtown minnst
Evrópska lög-
reglan, Europol,
telur hættu á að
átök blossi upp á
milli vélhjóla-
gengja í Evrópu
með komu vél-
hjólagengja frá
Ástralíu, Banda-
ríkjunum og Kan-
ada til álfunnar.
Óttast er að í
uppsiglingu sé
svipað stríð og geisaði á milli glæpa-
hópa í Skandinavíu á tíunda áratug
aldarinnar sem leið.
Europol varar við aukinni spennu
milli glæpahópa sem tengjast vél-
hjólahópum í Evrópu. Til að mynda
hefur félögum í Outlaw Motorcycle
Gang (OMCG) fjölgað mikið og eru
hóparnir nú orðnir yfir 700 talsins
víðsvegar í Evrópu. Fjölgunin er
mest í Norðaustur- og Suðaustur-
Evrópu.
Einnig hefur fjölgað í öðrum
stórum vélhjólasamtökum, svo sem í
Bandidos MC, Outlaws MC og
Gremium MC. Jafnframt er farið að
bera meira á hópum eins og Satud-
arah Maluku MC og Blue Angels
MC í Norðvestur-Evrópu.
Europol segir að almenningi stafi
mikil hætta af glæpagengjunum
vegna þess að þau hneigist til að
beita hættulegum vopnum, m.a.
sjálfhlaðandi rifflum og hand-
sprengjum.
Europol telur hættu á
gengjastríði í Evrópu
Félagi í þýsku vél-
hjólagengi hand-
tekinn.
Kimmidoll á Íslandi | Ármúla 38 | Sími 588 5011
Hugljúfar gjafir
Stærðir frá
6 cm – 40 cm
Verð frá 2200,-