Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.01.2013, Síða 18

Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.01.2013, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.1. 2013 Ferðalög og flakk Þ ær glápa á ferðamennina sem eru í lautarferð við Cam-ána í Cambridge, áreiðanlega ekki vegna þess að þeim finnst þeir svo álkulegir heldur í von um æti. Endurnar kætast mjög við að fá brauðmola og ferðamennirnir gleðjast yfir að geðjast þeim. Á sólríkum degi eru margir í pikknikk við Cam-ána, annaðhvort undir ein- hverju af risastórum trjánum sem veita gott skjól eða við árbakkann. Það er eitthvað bæði skáldlegt og rómantískt við veruna þarna, enda margt fólk sem lætur vel hvað að öðru, sumir draga upp gítarinn og syngja lög frá sjöunda áratugnum eða úr nútímanum þennan laugardagseftirmiðdag. Samkvæmið er hafið! Ekki langt frá glápa kýr á ferðamenn, ósköp rólegar og áreiðanlega ýmsu vanar. Þær eru ekki í leit að æti enda vel haldnar af landleigjendum sem sumir eru enn háskól- arnir. Nei, þær horfa á misklaufalega ferða- menn róa á Cam-bátum undir allar stórkost- legu brýrnar og bak við alla glæsilegu háskólana. Sumir eru flinkari en aðrir, sem falla í ána og rennblotna. Öllu flinkari eru at- vinnuræðararnir sem hægt er að ráða og segja þeir þá sögu brúnna sem eru ekki síðri en brýrnar í Madsion-sýslu, sumar algjör meistaraverk mannsins og umhverfisins. En jafnvel þeir eiga það til að mistaka sig og falla í ána – sem er fyndið þótt það sé auðvitað ekki fyndið. Háskólalífið setur sitt mark á borgina. Há- skólarnir eigar rætur sínar að rekja til bisk- upa og konunga á Englandi sem vildu efla menntunina í landinu. Um 1284 stofnaði bisk- upinn í Ely, Hugh de Balsham, Petershouse og aðrir skólar fylgdu í kjölfarið. Fljótlega varð orðstír Cambridge slíkur að skólinn varð vænlegur til menntunar fyrir efri stéttir Eng- lands. Árið 1546 stofnaði Hinrik VIII. Trinity College, en hann dó aðeins fimm vikum síðar. Þá má nefna skóla eins og Corpus Christi, King’s College, Queen’s College. Fjölmargir háskólar eru í Cambridge og nánast allt milli himins og jarðar er kennt þar. Þar hafa líka margir frægir komið við sögu í skólabygging- unum, eins og Monty Python, Milton, Stephen Fry og Guðfríður Lilja Grétarsdóttir svo nokkrir séu nefndir. Fleira en bara háskólar En borgin hefur upp á fleira að bjóða en bara háskóla, þó þeir setji vissulega svip sinn á bæ- inn. Cambridge er afskaplega vinalegur bær en íbúar hans eru um 300.000. Það er ekki streitu að finna í honum og náttúran, falleg tré sem manni finnst stundum hvískra að manni í blænum og fallegir garðar og há- skólagarðar, en því miður má í fæstum ganga, sumum þó gegn gjaldi. Cambridge er dálítið annað en Lundúnir en þó tekur ekki nema 50 mínútur að fara til Lundúna með lest og kost- ar 25 pund hvora leið fyrir þá sem vilja líta á Lundúnir í leiðinni. Í Cambridge er gott að versla og þar eru nánast nákvæmlega sömu verslanir og í Lond- on auk margra fleiri skemmtilegra eins og Cath Kithcen sem selur skemmtilegar eldhús- og baðvörur, T-lane sem selur föt og kjóla í stíl við sjötta og sjöunda áratuginn, svo eitt- hvað sé nefnt. Síðan má ekki gleyma Polyfon, sem er yndisleg búð og til í mörgum löndum en hún selur svo skemmtilega eldhúsmuni, Góður kostur fyrir ferðalanga ATVINNURÆÐARAR Á ÁNNI CAM ERU VINSÆLIR HJÁ FERÐAMÖNNUM EN ÞEIR KUNNA MARGAR SÖGUR AF BRÚNUM Í CAMBRIDGE SEM MARGAR ERU ALGJÖR MEISTARAVERK MANNSINS OG UMHVERFISINS Unnur H. Jóhannsdóttir uhj@simnet.is Götulífið er skemmtilegt og jafnvel má finna tónlistarmenn sem spila á ólíklegustu hljóðfæri eins og skúringafötur. Taktu útsýnisvagninn og þú sérð ekki eftir því! Útsýnisvagninn fer örlítið út fyrir Cam- bridge svo maður fær aðeins betri tilfinningu fyrir svæðinu. Ef maður tekur hann í Silver Street sér maður Queeńs College og St.Catherine College. Haldi maður áfram að Brid- get Street ber maður augum Historic City Centre og St. Johńs College. Auðvitað eru margir áhugaverðir áfangastaðir á leiðinni en ég mundi nema staðar við kirkjugarðinn Madingley American Military Cemetery. Þar hvíla bandarískir hermenn sem staðsettir voru í Englandi í heimsstyrjöldinni síðari. ÚTSÝNISVAGNINN ER GÓÐUR KOSTUR HÁSKÓLABORGIN CAMBRIDGE Fjölmargar verslanir eru í Cambridge. Stúdentagarðar í háskólaborginni gamalgrónu Cambridge. VEGGKLUKKA Þvermál 100 cm Verð KR. 14.990 SÖDAHL DÚN FYLLTIR PÚÐAR Margar stærðir og mikill fjöldi munstra og mynda. Verið má þvo í þvottavél. Verð frá KR. 4.990 „ JÁ NÚ ER KÁTT Í HÖLLINNI, HÖLLINNI, HÖLLINNI ...“ H DÚKURINN SÖDHAL STAR DAMASK DÚKAR Litur jólahvítur. Faldaðir. Hrinda frá sér. Má þvo og strauja. 140/220 verð: kr. 13.990 140/270 verð: kr.16.990 140/320 verð: kr. 19.990

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.