Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.01.2013, Qupperneq 27
6.1. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27
B
ryndís Óskarsdóttir og Ólafur Aðalgeirsson, allt-
af kölluð Dísa og Óli, fluttu fyrir nokkrum ár-
um ásamt börnum sínum frá Akureyri út í
Skjaldarvík, sem er aðeins nokkrum kílómetr-
um norðan bæjarins. „Við höfðum ekki úr miklu að
moða þegar við ákváðum að opna gistiheimili, en með
útsjónarsemi, endurvinnslu og góðri hjálp má segja að
gerst hafi kraftaverk á skömmum tíma. Við keyptum
ekkert nýtt nema rúmin, lín og þessháttar sem stendur
gestinum næst, annað er gamalt dót sem farið hefur
verið höndum um,“ segir Bryndís við Morgunblaðið.
Dísa er grafískur hönnuður og hefur frá unga aldri
föndrað og brasað eitt og annað, eins og hún orðar það.
„Óli er líka mjög liðtækur. Það á best við hann að vera
með skrúfjárn í annari hendi og pensil í hinni.“
Það kom þeim skemmtilega á óvart hve gestir kunnu
vel að meta þann stíl sem þau völdu að halda sig við „og
margir fara héðan stútfullir af hugmyndum; sjá oft sína
eigin geymslu í nýju ljósi; muna eftir gömlum skáp eða
stól sem hægt væri að nota. „Ég segi stundum að þetta
sé staðurinn til að stela hugmyndum!“ segir Dísa.
Þau rækta mikið grænmeti „og ég hef líka óskaplega
gaman af búa til góðan mat fyrir gestina. Þar fær sköp-
unargleðin svo sannarlega að njóta sín líka. Hér er t.d.
allt brauð heimabakað, salatið ræktað á staðnum og
sulturnar gerðar frá grunni.“ segir Dísa. „Í upphafi
bjuggum við okkur til ramma og höfum reynt að halda
okkur innan hans. Sveitarómantík, persónuleg þjónusta
og einfaldleiki er okkar mottó og eitt er á hreinu að við
komum alltaf til dyranna eins og við erum klædd.“
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Óþarfi er að henda
gömlum skyrtum.
Dísa breytti þessari í
smart áklæði á gaml-
an en flottan stól.
Skemmtilegt veggskraut á einum ganginum. Bryndís og Ólafur hafa safnað
margvíslegum gömlum munum sem notaðir eru til að lífga upp á staðinn.
„Dót“ í geymslunni
verður að gersemi
MARGT ÓVÆNT OG SKEMMTILEGT ER AÐ SJÁ Í GISTIHEIMILINU Í SKJALDARVÍK VIÐ
EYJAFJÖRÐ. SKÖPUNARGLEÐI FÆR AÐ NJÓTA SÍN Í HÚSBÚNAÐI OG MATARGERÐ.
Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
Lampi í stofunni/barnum. Skermurinn er búinn til úr gamalli blúndu-gardínu og
vegna munstursins er birtan á veggnum óvenjuleg en mjög falleg.
BRYNDÍS ÓSKARSDÓTTIR Í SKJALDARVÍK
er hafin 20-70
0/0
smáratorgi 522 7860 • korputorgi 522 7870 • glerártorgi 522 7880